Helgafell - 01.03.1942, Side 42
Sverrir Kristjánsson:
Aldarminnini
Georg Brandes er fæddur 4. dag febrúarmánaðar 1842, og kom í heim-
inn tveimur mánuðum fyrir tímann, að því er hann sjálfur segir. Þessi bráð-
láti sveinn varð samt síð-
búinn til brottferðar úr
heiminum. Hann andaðist
85 ára gamall árið 1927
með höndina kreppta um
pennaskaftið, en þóttist
þó ekki hafa lokið að
fullu dagsverki sínu.
Hann var ungur stúd-
ent, er Prússar tóku af
Dönum Holtsetaland og
Suðurjótland, og lifði von-
brigði þjóðar sinnar og
harmleik, en varð skyggn-
ari á marga hluti eftir en
áður. Hann var nýorðinn
doktor í fagurfræði sum-
arið 1870, þegar her Vikt-
ors Emanúels Ítalíukon-
ungs rauf Vatíkanmúrinn
hjá Pia Porta í Róm
og veraldlegt ríki páfa-
dómsins féll við lítinn orðstír. Brandes var þá staddur í Flórenz. Honum far-
ast svo orð um þennan viðburð : ,,Ekki var þetta mikið afreksverk, því að páfi
var fáliðaður, en þó er þessi atburður mikið tímanna tákn. Mér vöknaði um
augu, er ég hugsaði um þann sigur, er frelsi mannanna hafði hér unnið”. Og
hann flýtti sér til Rómar til að líta á vegsummerkin. ,,Eg tók smástein úr
múrruðningnum. Því að nú skein loksins sól inn um skarð þeirrar borgar,
þar sem Giordanó var brenndur á báli og Galílei var píndur”.