Helgafell - 01.03.1942, Síða 57

Helgafell - 01.03.1942, Síða 57
BÓKMENNTIR 43 ,,En getir þú Jóni í skjóðunni skotið inn um skínandi hliðið, er afl mitt þrotið, lögmál himins og nelvítis brotið“. (Hlær). Þó að líkindum eigi aðeins að felast storkun í þessum orðum, er hér of berlega sagt fyrir um leikslokin, jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að þjóð- sagan sé þorra lesenda og áhorfenda kunn. Auk þess virðist eðlilegra og betur til fallið, að ást og örvænting kerlingar, þegar öll sund eru að lokast, veiti henni kjark og slægvizku til örþrifa- ráðsins, fremur en bein vísbending sjálfs óvin- arins. Vafalaust hefur skáldið þó talið sig hafa giidar ástæður til þess að taka efni sitt þessum tökum, og er sú líklegust, að það hafi látið freistast til þess að koma hér að þeirri skemmti- legu skoðun, er rík hefur verið frá öndverðu í íslenzkri þjóðtrú, og víðar að vísu, að fjandinn falli löngum á sjálfs sín bragði í viðskiptum sín- um við guð og menn. Fjórða aðfinnslan mun vafalaust eiga sér þó nokkra formælendur og hefur komið fram í rit- dómi. Hún er á þá leið, að leikslokin, er kerling skotrar skjóðu sinni inn um dyragátt himnarík- is, séu háskalega skopleg, og hefði skáldið átt að leysa vandann með því að láta Jón fá nokkra iðrun á síðustu stundu. Þannig hefði einhvers konar skilorðsbundin sáluhjálp á nýguðfræðilega vísu átt að verða að samningum þar efra, Jóni til handa, í fullri mótsögn við allan anda leikritsins, þjóðsögunnar og Jón sjálfan, eins og hann er úr garði gerður að öðru leyti, og er víst óþarfi að þakka höfundinum fyrir það, að hann hefur ekki fallið fyrir svo ólistrænni freistingu, til þess að geðjast talsverðum hópi lesenda og áhorfenda, því að hún hefur sjálfsagt aldrei flökrað að hon- um. Davíð Stefánsson á skilið þann veg og vin- sældir, sem þetta leikrit hans hefur enn aukið honum, en ánægjulegast er þó, að Gullna hliðið bendir til þess, að hann eigi eftir að vinna enn glæsilegri sigra á sama vettvangi. M. Á. Sambúð ljóðs og listar Guhmundur Bö&varsson: ÁLFAR KVÖLDSINS. Ljóð. — Heimskringla. Reykjavík 1941, 91 bls. í stóru 8vo. Verð kr. 12,00. Vafasamt er, hvort sú fáskipaða sveit, sem enn þá ann fögrum ljóðum hér á landi, hefur gert sér svo ljóst sem skyldi, hversu merkur at- burður útkoma hinnar fyrstu Ijóðabókar Guð- mundar Böðvarssonar (1936), var í raun og veru: Einyrki í afskekktri sveit, óskólagenginn og fá- förull, sendir frá sér fyrstu ljóðabók sína, þar sem hvert kvæði er með ótvíræðum menningar- brag, og nokkur þeirra (Kyssti mig sól —, Það uxu tvö tré, ,,Ok velkjti þá lengi i hafi“) meðal þess, sem bezt hefur verið kveðið á íslenzku. I næstu bók sinni, Hin hvítu skip (1939), velur skáldið sér yfirleitt stærri viðfangsefni, og bætir þar við sig nokkrum ágætum kvæðum, er bera vott um aukinn þroska og öryggi í efnismeðferð (Rauði steinninn, Kvœðið um steininn, Bolta- lei\ur og síðast, en ekki sízt, smákvæðið Vor borg), en eru þó ef til vill ekki eins heillandi ljóðræn og beztu kvæði fyrstu bókarinnar. Þó að ekki yrði séð, þegar hér var komið, að Guð- mundur væri háður annarlegum áhrifum, að öðru leyti en því, að hann fylgdi dæmum hinna beztu skálda af yngri kynslóðinni um fágun í orðavali og ytri vinnubrögðum, varð ekki um hann sagt, að hann væri verulega sérkennilegur í list sinni. Til þess virtist þessi ungi bóndi í rauninni vera í of nánum tengslum við margt hið Jsezta í Ijóðmenningu samtíðar sinnar. Talið er, að mörgum góðum ljóðskáldum, sem fara vel af stað, sé það nokkur vandi að sleppa með fullri sæmd frá þriðju bók sinni. Onnur bókin nýtur venjulega góðs af þeim viðtökum, sem hin fyrsta átti að fagna, bæði hjá skáldinu sjálfu og lesendum þess, en oftast eru áhrif þeirrar hrifningar tekin að fyrnast og fjara út hjá báðum aðiljum, er þriðja bókin kemur, en kröfur lesendanna aldrei meiri en þá. Þriðja Ijóðabók Guðmundar Böðvarssonar, er hann hefur valið nafnið Alfar kvöldsins, virð- ist hafa fengið að kenna nokkuð á þessu harða lögmáli, og sú hugsun liggur vandlátum lesanda ekki fjarri, að skáldið hefði mátt staldra ögn lengur við, áður en það lagði á svo örðug- an hjalla, enda mætti það undur heita, ef mað- ur, sem býr við aðstöðu Guðmundar Böðvars- sonar til skáldskapar, væri því vaxinn að láta frá sér fara, eftir tvö ár frá útkomu annarrar bókar sinnar, nýja ljóðabók, er fullnægði þeim miklu kröfum, sem hann má vita, að nú er farið að gera til hans. Þessi ummæli ber þó ekki að skilja svo, að ekki sé margt um ágætan skáldskap í þessari nýj- ustu bók Guðmundar. Skáldið leggst þar ef til vill dýpra í hugsun en áður, en gerist jafnframt dulara í tjáningu, að líkindum með vilja. Kvæði eins og Tvœr hæðir, sem annars er ljóðrænt og

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.