Helgafell - 01.03.1942, Síða 58

Helgafell - 01.03.1942, Síða 58
44 HELGAFELL glæsilegt yfirlitum, er t. d. lítt eða ekki skiljan- legt þeim, sem eigi þekkja harmsöguna um Hallbjörn og Hallgerði í Landnámu eða þjóð- sögnina um Hallbjarnarvörður. Ég þykist að vísu vita, að Guðmundur hefur ekki ætlað sér að yrkja hér sögukvæði í venjulegri merkingu þess orðs, en engu að síður hefði hann átt að gera lesendum sínum tilefni kvæðisins ljósara, a. m. k. með fyrirsögn þess. Þessarar dular gætir í íleiri kvæðum bókarinnar, án þess þó að hún bregði ávallt yfir þau heillandi leyndardómsblæ. Trúað gæti ég, að Guðmundur ætti að hugsa sig betur um, áður en hann heldur lengra út á þessa braut, og það því heldur sem ástæða er til að ætla, að hér séu fremur listbrögð í tafli en náttúrufar og nauðsyn. Meðal góðra kvæða í þessari bók, er skara þó varla fram úr beztu ljóðum fyrri bókanna vil ég nefna: Flakfcannn á hestum (niðurlag þess kvæðis er stórfenglegur skáldskapur), Hrjóstursins ást, Morgunn, Lynghei&in rauð, Eftirmáli og Bogmenn. En á þetta síðasttalda kvæði, sem annars er eitt hið bezta og veiga- mesta í bókinni, ber þó þann skugga, að það minnir allt of mikið á Garð/jóð Tómasar Guð- mundssonar, bæði um háttblæ og efni, til þess að ánægjan af því, fyrir hönd Guðmundar Böðv- arssonar, geti orðið óblandin. Áhrifa frá Tómasi gætir víðar í bókinni, einkum í tveim kvæðum (Sk.áld og Gátur hjartans), þar sem skáldið bregður til gamansemi og ádeilu, án þess að ná æskilegum árangri. Betur tekst honum í kvæðinu Fuglar í runni, sem er af sama toga. Ekki er örgrannt um að svipur einstakra vísu- orða eða jafnvel erinda minni á Stein Steinarr, og í kvæðinu Ehhi má ek b/óð sjá hefur Kvœðið um fangann eftir Oscar Wilde orkað á hátt og efnismeðferð. Annars er þetta langa kvæði frem- ur óljóst og laust í reipunum. Þessara annarlegu áhrifa gætir að vísu ekki nema í örfáum kvæð- um, en þau sýna þó, að Guðmundur Böðvarsson þarf að vera á verði gagnvart þeim framvegis. Nokkuð virðist bresta á síðustu fágun í ein- stöku kvæði, og bendir það til þess, að höfundur hafi verið of fljótur á sér að þessu sinni að láta handritið frá sér fara. Ég hirði þó ekki um að fara langt út í þá sálma, enda eru þessar vanrækslusyndir sjaldan stórvægilegar. Vafa- samt er t. d., hvort höfundur hefur gert sér ljóst, hvað hann var að fara, er hann talar um ísópsins sirenuþyt“ í Atlantis. Setningin: ,,og hjartanu blóðmissir uís“ í Hugleiðing um stríðið stingur í stúf við venjulega smekkvísi Guðmund- ar. Ekki er það góð tækni heldur að láta mikið og gott kvæði, eins og Plœging, enda á jafn lit- lausu og áherzlulausu rímorði og forsetningunni við — en vel má vera að hér sé undirritaður að kasta grjóti úr glerhúsi. Það mætti með sanni segja, að enn væri ekki farið að víkja hér einu orði að einkennum Guð- mundar sem skálds, yrkisefnum hans, hugðar- málum og afstöðu til manna og máttarvalda. Svarið verður á þá leið, að tilraun til slíks í örstuttu máli kæmi þeim að engu haldi, er ekki hafa lesið bækur hans, en hinum væri hún ó- þörf. En það skal sagt síðast orða, að þrátt fyrir nokkur mistök, og þó fremur smávægileg, í Alf- um kvöldsins, stendur Guðmundur Böðvarsson eftir sem áður framarlega meðal beztu ljóðskálda vorra, og spá mín er sú, að fjórða bók hans skipi honum þar í fremstu röð, er hún kemur, að nokkrum árum liðnum. M. Á. Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum: LJÓÐ. ísafoldarprentsmiðja h. f. — 94 bls. Ib. kr. 10.00. Ljóðin í þessari bók bera hæfileikum skáld- konunnar svo merkilegt vitni, að þau hefðu átt það skilið að vera flest betur ort en raun er á. Um mörg þeirra er það að vísu svo, að ekki virðist annað vanta en herzlumuninn, til þess að þau hefðu orðið verulega góð, en eins og jafnan, þegar svo stendur á, er það einmitt sá herzlu- munur, sem skilur milli feigs og ófeigs. Það er þessi skortur á samningslipurð, sem er aðall allrar listar. I orðabók hennar er afsláttur ekki til, og ekkert kvæði, sem stendur til bóta, er góð ljóðlist. Nú er það vissulega svo, að til eru þau ljóð í bók Guðfinnu frá Hömrum, sem er óblandin ánægja að lesa. Svo er t. d. um kvæðið Máriu- erla, (bls. 38), sem er yndislegur skáldskapur, tær og látlaus. Sama mætti einnig segja um ýms önnur kvæði, sem sum gjalda þess eins, að óviðkomandi efni hefur ekki verið ,,bannaður aðgangur*'. Kvæðið A skautum (bls. 40), er t. d. mjög prýðilega ort, en mundi þó græða veru- lega á því, og fá miklu heillegri svip, væri síð- asta erindinu sleppt. Nýtni og hirðusemi koma sér að sjálfsögðu vel í daglegu lífi, en í skáld- skap eru þessar dyggðir mjög varasamar. En þó þessu sé þannig farið um sum kvæð- anna, eiga ágallar þeirra oftar rót sfna að rekja

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.