Helgafell - 01.07.1943, Qupperneq 32
298
HELGAFELL
möguleikum. Ferðinni er heitið til
Ameríku úr grimmustu frostum 19. ald-
arinnar. En ferðin varð aldrei lengri en
út í Flatey í biðtíma eftir vesturfarinu og
upp til dalstrandarinnar á nýjan leik, og
nú inn úr dalnum og upp á heiði og yfir
heiði, en svo aldrei lengra. Faðir litla
drengsins hafði lánað kunningja sínum
peningana, sem hann fékk fyrir búið
sitt og ætlaði að nota í fargjaldið, það
er einn gallinn við þetta fátæka fólk,
það er svo greiðvikið og vill alltaf
vera að hjálpa einhverjum. En kunn-
ingi hans var svo fátækur, að hann
gat ekki greitt skuld sína, og um leið
og vetur gekk í garð og vesturfarið bar
að landi, þá voru ekki peningarnir til
fyrir farinu, og þar með var draumur-
inn búinn. Og í staðinn fyrir að byggja
upp sameiginlega hamingju í gósen-
landi Vesturheims, þá tvístraðist þessi
fátæka fimm manna fjölskylda í þrjá
eða fjóra staði, og söguhetjan okkar
var slitin frá föður og móður, aðeins sex
ára að aldri. Þá þrammar hann við
hlið föður sínum yfir Flateyjardals-
heiði. Faðir hans var enn að flytja hann
út í þessa eyju, þar sem hann hafði
fæðzt, og nú átti hann að vera þar
foreldralaus.
Svona hófst lífsferillinn hans, og í
þessari tóntegund söng líf hans áfram
sinn söng. Foreldra sína heimti hann
að vísu aftur næsta vor á fæðingar-
stöðvar sínar, en þá var fjölskyldan
komin í þurrabúð. Það var búið að
selja alla gripi og afsala sér öllu jarð-
næði, af því að það átti að fara til
Ameríku. Svona getur það verið hættu-
legt fyrir fátækan mann að láta sig
dreyma um betri daga. Hann fer barn
að aldri að sækja sjóinn með föður sín-
um, knýr farið áfram með handafli
sínu. 13 ára að aldri fær hann brjóst-
himnubólgu. Það hefði ekki gert svo
mikið til fyrir Krapotkin fursta, þó að
hann hefði fengið sams konar brjóst-
himnubólgu á æskuárum sínum. Það
er óvíst, að hann hefði séð ástæðu til
að segja frá því, hann hefði sennilega
gleymt því; hann hefði fengið sérstaka
hjúkrun sérhvern tíma, meðan þetta
var að líða frá. En með Theódór var
allt öðru máli að gegna. Þótt hann væri
aðeins 13 ára og ætti fullvinnandi föð-
ur á lífi, þá hvíldi framfærsla heillar
fjölskyldu svo mjög á herðum honum,
að hann hafði ekki leyfi til að hlífa
sér, meðan uppi varð staðið. Hann varð
að sitja við árina og strengja brjóst-
vöðvana af ýtrasta megni, og þá rifn-
aði upp plásturinn og nuddaði vessa-
þrungin fleiðrin um brjóst og herðar.
Þetta hlýzt af því að vera sonur fátæks
þurrabúðarmanns norður í Flatey á
Skjálfanda.
Draumur Theódórs var vitanlega sá,
að verða stór og sterkur, sá draumur
var í rökréttu sambandi við lífskröfur
þær, er blöstu við æsku hans. Hann
hafði litlar áhyggjur af því, þó að hann
fengi ekki mikið að læra. Það var
skylda hans við guð að læra að lesa,
svo að hann gæti lært kverið, og hon-
um var það sérstök lífsnautn að full-
nægja þeirri skyldu, þá komu þrjár vik-
ur, án þess að hann fyndi til nokkurra
þreytuverkja að kvöldinu, og þá hlotn-
uðust honum ný leiksystkini. Og hann
lærði að drekka þorskalýsi og borða
mikið af góðum mat, svo að hann yrði
sterkur og gæti borið stóra bagga á
bakinu og þyldi að strita nótt með
degi. Svo vakna honum auðvitað
hneigðir til kvenna, og hann nær sér
í kvenmann. En til hjúskapar og bú-
skapar hefur hann ekkert á að byggja
annað en sinn eigin skrokk og kjark,
einstakir blettir fósturjarðarinnar eru
honum ótryggir, enda hefur hann ekki