Helgafell - 01.10.1953, Page 24
Aí mælisk veð j a
r
til Páls Isólfssonar, tónskálds
Kæri vinur minn, Páll.
Mig langar iil að vera meðal þeirra, sem við þetta leiðarmark á ævi
þinni heilsa sérstaklega upp á þig. Eg ætla ekki að freista þess, að meta
og dæma tónlistarafrek þín. — Það munu gera aðrir, sem til þess eru færir.
— En mig langar til að segja þér frá því, hvers konar kenncl kynni mín af
þér og langt samstarf okkar hefur skilið eftir hjá mér um þig sem mann —
sem samfylgdarmann á lífsleiðinni.
Þegar ég var smali norð'ur í Þingeyjarsýslu var þar uppi bóndi, Magnús
í Kvígindisdal, sem var svo mikill völundur á járnsmíði, að undrum þótti
gegna. Avallt var um Magnús talað af virðingu og aðdáun vegna smíða-
snilli hans og af hlýju þeli vegna mannkosta hans og hjartalags. Þegar
Magnúsi voru sýndir smíðagripir annarra manna, miður gerðir, og bent á
smíðalýti, sagði hann jafnan: „Það er eftir öllum vonum hjá honum. Hann
hefur engin verkfæri“. í Þingeyjarsýslu var Magnús kallaður snillingurinn
með bamshjartað'.
Þegar ég fór að kynnast þér, Páll, að nokkru ráði, kom mér oftsinnis
í hug þessi bernskuminning um bóndann í Kvígindisdal. Mér fannst sem
þér í eðli þínu og innstu verund mundi svipa til hans; ást þín og þjónustu-
semi við list þína væri svipuð og hans, hjartalag ykkar hið sama.
Þú hefur nú um nálega hálfrar aldar skeið, eins og fleiri samherjar
þínir, barizt við tregðu samtíðar þinnar um skilning og mat á gildi tón-
listarinnar fyrir fegrun lífsins á jörðinni, þroskun mannssálarinnar og háa
nautn, og viðleitni þín hefur ávallt stefnt til hæstu marka. Þú hefur borið
í hjarta þínu sársauka margra ósigra, sem á undan voru gengnir. Bólu-
Iíjálmar dó úr kulda og hungri, sömuleiðis Sigurður Breiðfjörð. Sigurður
málari beið svipuð örlög og Sveinbjörnsson varð að flýja á náðir góðra
manna í öðru landi, til þess að forð'ast þau hin sömu örlög. Þú varst svo
lánsamur að vera síðar á ferðinni, þegar rofa tekur til í þjóðlífinu. Þó
hefur ganga þín verið fullerfið og þér mun þykja, að skannnt liafi miðað
á langri leið að fjarlægu marki.
Eg hef margoft orðið var tilfinningasemi þinnar og skaphita, þegar