Helgafell - 01.10.1953, Page 38

Helgafell - 01.10.1953, Page 38
36 HELGAFELL lífsþrótti, við óvæga og tvísýna baráttu fyrir heimili sínu. Eigi er ljóst, livað því olli, að hann brá búi á Kirkjuhóli vorið 1860, en ætla má, að hann hafi verið einn í hópi þeirra bænda, sem fellivorið mikla 1859 lamaði fjárhagslega, svo að hann sæi sitt óvænna að haldast þarna við, þótt heimil- ið mætti reyndar ekki þungt kalla. Ekki hefur þeim hjónum fallið til lengdar að vera annarra hjú og handbendi, og hefja þau því búskap í Víði- mýrarseli eftir tvö ár. TJm dvöl þeirra þar er fátt kunnugt, en ætla má, að hagur þeirra þar hafi öllu þrengri verið en á Kirkjuhóli áður. Kirkjuhóll var að nafninu til sjálfstætt býli, 10 hdr. að gömlu mati, en Selið mátti í hæsta lagi kalla hjáleigu frá Víðimýri, og mun oftar óbyggt verið hafa en byggt. Þarna óx Stephan upp frá 9 ára aldri, og við Selið eru flestar æsku- minningar hans tengdar. Á þessum árum (1861—76) bjó á Víðimýri Jón Árnason, maður skáld- mæltur vel, greiðamaður mikill og höfðingi í lund, vinveittur og vinmargur, gleðimaður mikill og vel að sér um flesta hluti. Með'al barna hans var Sig- urður. Batt Stephan við hann náið vinfengi, er hélzt vel meðan þeir lifðu, en Sigurður fluttist. vestur litlu síðar en Stephan og bjuggu þeir löngum í nágrenni. Víðimýrarheimilið varð Stephani efalaust hinn mesti griða- staður. Þar átti hann að mæta fjörugu og frjálslegu heimilislífi, er dauft gerðist heima fyrir. Þar var bókakostur nógur, eftir því sem þá gerðist, og var elcki minnst um það vert, því drengurinn var sólginn í bækur. Mun ekki ofsagt, að hann hafi alla ævi búið að því, sem hann las í æsku sinni, heima og í hjásetu úti á víðavangi, eftir því sem færi gafst. Að þessu víkur hann hvað eftir annað í kvæðum sínum, t. d. Hnjúkurinn (Víðimýrarhnjúk- ur), í vísum til Sigurðar frá Víðimýri og í ýmsum kvæðum, þar sem hann minnist smalans og smalamennskunnar. IJtivistin og einveran í skauti nátt- úrunnar var alla ævi mesta yndi lians, en þeim unaði kynntist hann snemma og mest og ógleymanlegast á þessum árum. Móðir hans, hin fagur-skyggna kona, kenndi honum fyrst að skilja og meta fegurð náttúrunnar, fegurð Iífsins, sem er öllum auði dýrmætari og raunar óþrotleg. Grasaferðin, sem Stephan minnist í hinu yndislega kvæði, er hann orti eftir móður sína dána, var efalaust farin í fyllstu lífsnauðsyn, er sneyðast tók um aðra lífsbjörg í Selinu. Fjallagrösin hafa fyrr og síðar orðið Islendingum réttnefnd lífgrös. Fátækt og skortur er þung byrði, en þá fyrst verður hún óbærileg, er hún leggst á huga manns með' þeim ofurþunga, að honum hverfur allt nema sjáll eymdin. Revndar getur auðsæld leikið manninn jafngrálega á sinn hátt, og eru þess nóg dæmi. En mæðginin frá Seli kunnu þá list, að láta ekki bazlið smækka sig. Þess vegna verður grasaferðin, þessi hungurganga ótaklra íslenzkra kynslóða, ógleymanleg skemmtiför inn í ríki fegurðar og unaðar, uppspretta lífsnautnar og lífsfyllingar, kostulegri og dýrmætari en keypt verð'i við nokkru gjaldi. Þá var líka þér við hlið ungur fótur fær og léttur,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.