Helgafell - 01.10.1953, Page 49

Helgafell - 01.10.1953, Page 49
STEPHAN G. STEPHANSSON 47 yeröld, hermt frá langri og torsóttri för um borgir og byggðir Vesturheims, óbyggðir hans og auðnir, ýmist í annarra þjónustu eða sjálfsmennsku. Þann- ig' Hða árin til 1889. Honuin hefur eins og fleirum orðið torsótt fjöldans leið, myrkviðurinn ógreiður og næsta sporadrjúgur. Loks tekur hann það ráð að höggva sér braut út úr slóðinni, hefur víst reynt það áður, og nú tekst honum það. Leið hans hefur legið um frjósöm héruð. Skógar Wisconsin hafa staðið honum til boða. Hann hefur líka átt þess kost að setjast að miklum landskostum á sléttum Norður-Dakota. Hann hefur eignazt marga góða vini, hefur numið margt, þroskazt og mannazt. Hann hefur ort sitthvað, en iæst af því hefur samboðið innstu þrám lians og kröfum til sjálfs sín, stundum að því kominn að hætta um stund að lifa: Að hætta bæði við að yrkja og skrifa. Og nú er hann staddur vestur í frumbýli Alberta, á yztu mörkum mannabyggða Norðvesturlandsins, vestur undir Klettafjöllum. Hér gerist 1T>esta undrið á allri hans ævi. Flestum myndi sýnast, að hann hefði til Htils farið um hin frjósömustu lönd Norður-Ameríku til þess að festa loks Hyggð sína á útskaga hinnar mestu óbyggðar, vestur undir Klettafjöllum. Til lítils hafði hann unnið land tvisvar sinnum áður, eytt kröftum sínum 1 að koma sér upp heimili, brjóta land og rækta, er hann á nú, eftir 16 ára ieit, sjálfur kominn hátt á fertugsaldur, að hefja af nýju allt erfiði og strit frumbýlingsins. Ilvað knúði hann til slíks? Voru það þá eftir allt saman ekki landkostirnir einir, sem liann leitaði yfir þvera heimsálfuna? Var það einhver óljós en knýjandi þrá, sem rak hann stað úr stað, þar til hann ey??ði í vestri hina miklu tinda Klettafjallanna, eygði eitthvað, sem minnti a Oyngjufjöll, jökulgarðinn mikla yfir Ódáðahrauni og Trölladyngju? í i'uuninni er óþarft að spyrja svo. Stephan hefur sjálfur leyst úr þessari ^atu. Hér lokast loks hinn rnikli hringur óralangrar vegferðar frá Víði- m.vrarseli og Mjóadal, allt vestur til Markerville, Alberta, en þar er hann rneð dularfullum hætti aftur staddur á æskuslóðum sínum. Hér festir Hann loksins yndi. Hér lýkur útlegð hans, sem orðin var næstum jafnlöng °ö útlegð Grettis forðum. Hér finnur hann loksins sjálfan sig, maðurinn og skáldið: ITr ferða-flækings sveim mér finnst ég kominn heim í kotin yngri ára við afrétt, heið'ageim.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.