Helgafell - 01.10.1953, Side 50

Helgafell - 01.10.1953, Side 50
Kristjcm Albertson: Stephan G. Stephansson Eitr sinn er regin öll sátu á rökstólum kom niður ræðum þeirra að greining tungnanna í veröldinm, og sagði ýmsum þunglega hugur um þá furðu, að ekki skyldu framar allar norrænar þjóðir mæla þá tungu, er æsir höfðu „norðr hingat í heim“, eins og Snorri segir. En með því að goð gera sór margt til gamans, og til vísdóms, þá var nornum gert að ráða svo örlög fjórum sveinum, Svía, Dana, Norðmanni og Islend- ingi, þeim er skáldkraftur væri í brjóst borinn, að hver þeirra skyldi fara ungur og fólaus úr byggðum ættlandsins til ævidvalar í Vesturheim, og aldrei hafa annan arf ór heimahögum en málið eitt, og skyldi reynt hver tungan dygði skáldi sínu bezt til afreks og til frægðar með þjóð sinni. fslendingurinn var Stephan G. Stephansson. En nöfn hinna þriggja hafa aldrei spurzt. Margt segjum vór fslendingar af ágæti tungu vorrar sem skáldskapar- máls, og má vera að sumt þyki raup. Einar Benediktsson skrifaði: ,,Allt sem afstaða lands vors, uppruni og saga þjóðarinnar og síðast en ekki sízt vort sterka fagra mál gefur Væringjum lands vors í veganesti er ekki lítils vert. Fá þjóðerm munu búa börn sín betur úr garði.“ Ég man að mór brá þegar óg las þessi orð fyrst, á unga aldri, þau hlutu að vera hóflausar ýkjur. Seinna hefur mór fundizt að þau gætu ver- ið einkunnarorð framan á bók um Stephan G. Stephansson. Efvers vegna hafa fslendingar eimr norðurþjóða, og ef til vill einir ó-enskumælandi þjóða eignazt stórskáld í Norður-Ameríku sem orti a máli feðra sinna? Er — eða var — þjóðerni og tunga sterkari þáttur 1 sálarlífi íslendinga en flestra annarra þjóða? Eitt er víst — tryggð Vestur-íslendinga við tungu feðranna, sú and- ans menning, sem þeir hafa til hennar sótt, og fyrst og fremst það skáldið, sem hæst gnæfir upp úr þjóðarbrotinu vestra, er fagur vottur um lífsgildi, tign og mátt þess máls og þeirrai ljóðlistar, sem verið hefur heiður íslenzkra byggða í þúsund ár.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.