Helgafell - 01.10.1953, Síða 72
70
HELGAFELL
legri útbreiðslu. Nálega öll blöð flytja
slíka ,,cc>mics“, óendanlegar mynda-
sögur um afrek og svaðilferðir ,,hetj-
unnar”, sem ýmist er karlkyns eða
kvenkyns, en alltaf jafn ósæranleg og
ósigrandi. Eftir að sjónvarpið kom til
sögunnar hafa myndasögurnar lagt
það einnig undir sig, enda sjónvarps-
tæknin tilvalin fyrir þessa alþýðlegu
,,listgrein“ í menningu nútímans.
Bækurnar um Benna og Beúerly
Gray eru að efninu til af sama and-
lega toga og Comics, þótt formið sé
dálítið frábrugðið. Þær eru skáldsögu-
leg langavitleysa, sem getur haldið
áfram án enda, og skiptir tæplega
neinu máli, hvort höfundarnir mundu
deyja frá sögum sínum eða ekki!
Manni virðist þær mundu geta haldið
áfréum af sjálfu sér, líkt og Tarzansög-
urnar, sem halda áfram að koma út
nýjar af nálinni þótt höfundurinn sé
farinn veg allrar veraldar. Norðri hef-
ur nú á örfáum árum gefið út 12 bæk-
ur um Beverly Gray og 9 bækur um
Benna. Höfundur Beverly-bókanna er
amerísk kona, Clairis Blank, en Benna-
bækurnar eru eftir enskan mann, W.
E. Johns. Ekki er kunnugt, hvort fram-
hald verði á þessum bókaflokkum, en
hafi mr. W. E. Johns gert Benna full
skil, þá á hann sýnilega meira í poka-
horninu. Því að Norðri hefur þegar
gefið út eftir hann nýja bók — Stúlli-
una jrá L,ondon —. Ungfrú Worrals
er kvenhetja þeirrar sögu og virðist
ekki ætla að gefa Benna neitt eftir,
enda lifandi eftirmynd hinnar brezku
flughetju, munurinn aðeins kynferði-
legur. Auglýsingastjóri Norðra telur-
hins vegar, að bókin sé tilvalin lestur
stúlkum á aldrinum 14—20 ára, og gef-
ur það nokkra vísbendingu um, hvaða
hugmyndir samvinnuútgáfan gerir sér
um andlegan þroska stúlkna á þeim
aldri, er þær verða gjafvaxta.
Auglýsingastjóri Norðra álítur, að
Beverly Gray-bækurnar séu ekki að-
eins einstaklega heppileg lesning ung-
um stúlkum, heldur séu þær „hrífandi
heimilisbækur". Ennfremur fullyrðir
auglýsingastjórinn, að þótt Benna-
bækurnar séu aðallega ætlaðar drengj-
um, þá verði þær fljótt eftirlætisbækur
allra í fjölskyldunni. Benni er sem sé
orðinn augnayndi heimilisins, allt frá
12 ára strákprakkara götunnar upp í
ömmuna fjörgamla. Auglýsingastjór-
inn segir þá sögu, að fyrir skömmu
hafi drengur í Reykjavík verið að því
spurður „hverjum hann vildi líkjast
þegar hann yrði stór. ,,Benna“, svar-
aði hann. Þar var hvorki hik né efi
hjá dreng.“
Bókaútgáfa Norðra hefur sýnilega
aflað sér mikilla vinsælda hjá lesend-
unum. Auglýsingastjórinn birtir meira
að segja lítið ljóðabréf frá ungri stúlku
til útgáfunnar, þar sem mærin stuðlar
þakklæti sitt á þessa lund:
Norðri þiggðu þökk frá mér,
þú átt góða penna,
en kærstar þakkir kann ég þér
fyrir Kalla, Áka og Benna.
Þótt samvinnufélagsskapurinn hér á
landi sé enn ungur í hinni svörtu list
bókaútgáfunnar, þá hefur hann þegar
skapað þá karlmannshugsjón, er ung"
ir Islendingar vilja helzt líkjast, hinn
enska kappa Benna, er leitar uppi ó-
vini og glæpamenn brezka heimsveld-
isins, sem um leið eru auðvitað óvinir
mannkynsins, og gerir þá óvíga. Benni
hræðist aldrei neitt, hversu svart secn
útlitið er, alltaf stuttur í spuna í svör-
um og spurningum, kann ráð við