Helgafell - 01.10.1953, Side 84

Helgafell - 01.10.1953, Side 84
Göngu-Hrólfur: Á FÖRNUM VEGI Verk gjalda höfunda sinna Eitt af hvimleiðustu einkennum þeirrar minnimáttarkenndar, sem ein- att gerir vart við sig hér á landi, er hamslaus þörf sumra listamanna til þess að auglýsa ,,afurðir“ sínar og ota þeim fram. Hefur þó alveg keyrt um þverbak í þeim efnum á þessu ári. Að hætti eyþjóða hafa Islendingar löngum goldið þess og notið að vera miklir einstaklingshyggjumenn, fast- heldnir á gömul sjónarmið og tor- tryggnir gagnvart erlendum nýjungum. Þannig hafa heil tímabil listsögunnar farið hér fyrir ofan garð og neðan, og ýmsar þær nýstefnur í menningarhátt- um og trúarbrögðum, sem hafa tröll- riðið mörgum menningarþjóðum álf- unnar, hafa látið íslenzku þjóðina í senn ósnortna og óskemmda. En fram- ar öllu er alþýða manna á Íslandi tóm- lát gagnvart háværum auglýsingum, leiðir hjá sér þá menn, sem beita for- dild og skrumi, og er yfirleitt varkár í dómum sínum um nýjan boðskap, bæði til lofs og lasts. Skyldu menn var- ast að meta henni slíka hneigð til van- virðu, því í raun réttri er hún aðals- merki þeirrar þjóðar, sem stendur á gömlum og traustum merg. Hefur það og löngum sýnt sig, að alþýða manna hér á landi kann vel að meta það, sem bezt og drengilegast er unnið á sviði menningar og lista. En vér lifum á auglýsingaöld. Þjóð- ir auglýsa menningu sína, fyrirtæki framleiðslu sína og einstaklingar afrek sín. Að sjálfsögðu hefur þjóð vor einn- ig skolazt inn í þennan auglýsinga- hernað og margir virðast jafnvel telja það mestu skipta, að þar verði þjóðin ekki eftirbátur annarra. En þrátt fyrir allt yfirlætið og gjallandann virðist al- menningur snúast mjög misjafnlega við áróðrinum. Það vekur t. d. mik- inn ugg hjá grandvöru fólki, ér það stendur allt í einu andspænis mönnum, er hampa háværu frægðarorði sjálfs sín, án þess að þeir hafi nokkuð unnið sér til fremdar á eigin spýtur, svo vit- að sé. Þegar slíkir menn gerast svo óvarkárir að ætla verkum sínum að tala eigin máli, fer rödd þeirra sem veikur vindgustur um eyru, því anda- giftin tekur ekki ótímabærum skyndi- heimboðum. Allur þessi auglýsingaáróður er þó tiltölulega meinlaus á meðan hann er ekki gerður að útflutningsvöru. En þegar þessir framhleypnu loddarar gerast svo umsvifamiklir erlendis í á- róðri fyrir verkum sínum og persónum, að allur heimurinn rekur upp trölla- hlátur hvar semi þá ber að garði, þá er sannarlega komið meira en nóg af svo góðu. Það sakar ekki stórþjóðirn- ar, þó að einhverjir einstaklingar þeirra séu ekki ,,teknir alvarlega“, en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.