Helgafell - 01.10.1953, Side 93
91
Á FÖRNUM VEGI
hússtjóri sannarlega stigið djarft spor,
sem ber að þakka. Mikil heppni fylgdi
líka ráðningu fyrsta kennara skólans.
Danski ballettsnillingurinn Erik Bid-
sted er afburða duglegur listamaður
og virðist auk þess vera óvenjulega
laginn kennari. Ballettsýning sú, er fór
fram í Þjóðleikhúsinu á síðastliðnum
vetri undir stjórn hans, var með mikl-
um menningarbrag og á köflum mjög
glæsileg. Hefur Þjóðleikhúsið hrundið
hér af stað góðu og gagnlegu fyrir-
tæki, sem vafalaust á eftir að auðga
listalíf í landinu.
Nýlega fékk Þjóðleikhúsið hingað
urvals listafólk úr ballett konunglega
leikhússins í Höfn, og dansaði það hér
nokkur kvöld. Leikni þess og listræn
tök vöktu mikla og maklega hrifningu
hér, enda stendur ballett þessa ágæta
leikhúss í allra fremstu röð meðal ball-
etta álfunnar. Hér var því um ein-
stæða heimsókn að ræða, og hefði í
senn getað orðið okkur lærdómsríkur
°g ógleymanlegur listviðburður, með
svipuðum hætti og heimsókn sænsku
operunnar með Brúðkaup Figarós,
hnnsku óperunnar með Österbottning-
una og norsku leikkonunnar Tore Seg-
Ucke. En hér varð því miður alvarleg-
nr misbrestur á, frá hendi Þjóðleik-
hússins. Ballettinn dansaði með píanó-
undirleik einum saman í stað hljóm-
sveitarundirleiks, sem hann átti kröfu
a> ur því slík hljómsveit var hér fyrir
^endi. Ballett án hljómsveitar er eins
°g skip á þurru landi. Hafið, með sinni
síkviku báru, er gjálpar mjúklega við
byrðinginn, eða þungri undiröldu, sem
ýnnist lyftir því á bárufaldana eða tek-
Ur það með sér niðrí öldudalina, er
Þess lifandi veröld, það umhverfi, sem
o'tt getur skapað því lífsrúm og marg-
reytileg örlög. Á þurru landi er það
orðið eins konar fjarstæða, viðskila
við lífið, afklætt fegurð sinni og reisn.
Svipað er því farið með balletta. Þeirra
eðli er að svífa á breiðum og þytmikl-
um söngsins væng, öldum hljómsveit-
artónanna, kyrrum og róandi eða hvít-
fyssandi og æsandi til skiptis. Ballett
og hljómsveit eru að eðli sínu og til-
gangi í jafn órofa tengslum hvort við
annað eins og skipið og hið víða haf.
Meðan hér var ekki til að dreifa
neinni hljómsveit, er því nafni yrði
nefnd, datt engum heilvita manni í
hug að fá hingað ballett. Nú hefur
Þjóðleikhúsið aðgang að ágætri hljóm-
sveit, sem kostuð er af almannafé eins
og Þjóðleikhúsið, og þá er engin af-
sökun til fyrir þeirri ráðstöfun að vera
að ,,sýna“ hér ballett með píanóundir-
leik.
Stjörnur úr austri
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að öll eða mestöll listastarfsemi
vestan járntjalds er ,,úrkynjuð“ og