Kjarninn - 26.06.2014, Blaðsíða 4
02/05 Leiðari
H
inn 9. febrúar 2007 flutti Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, ræðu á málþingi í Dan-
mörku sem var skipulagt af Dansk Industri.
Tilefnið var, eins og svo oft á þessum tíma, að
útskýra og lofa íslenska efnahagsundrið og
útrás íslenskra yfirburðamanna á sviði viðskipti. Á meðal
annarra frummælanda voru Hannes Smárason, þá forstjóri
FL Group, og Sigurður Einarsson, þá stjórnar formaður
Kaupþings banka. Þeir hafa síðan báðir verið ákærðir fyrir
stórfelld efnahagsbrot og fyrirtækin sem þeir stýrðu farið
konunglega á hliðina. Héraðsdómur hefur raunar dæmt
Sigurð í margra ára fangelsi en þeirri niðurstöðu hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar.
Í endursögn á ræðu forsetans sem hægt er að finna á
heimasíðu embættisins segir: „Forsetinn rakti einnig ýmis
sérkenni íslensks viðskiptalífs sem gert hefðu íslenskum
athafnamönnum kleift að vinna marga sigra í samkeppni
við stærri fyrirtæki á heimsmarkaði. Þar kæmi einkum til
vinnusemi þjóðarinnar, áhersla á skjót viðbrögð, stuttar boð-
leiðir, trúnaður í samskiptum einstaklinga og sú staðreynd
Litla Ísland
Þórður Snær Júlíusson skrifar um stuttar boðleiðir, trúnað
og hvernig Íslandi tekst aldrei að hrista spillinguna af sér.
Leiðari
Þórður Snær
Júlíusson
kjarninn 26. júní 2014