Kjarninn - 26.06.2014, Blaðsíða 59
01/04 pistiLL
þ
að þarf varla að hefja pistilinn á að taka það
fram, en heimsmeistaramótið í knattspyrnu
stendur nú yfir í Brasilíu. Sérfræðingar hafa frá
upphafi móts verið allt að því samdóma um að
gestgjafinn eigi mestar sigurlíkur, en sennilegast
hafa Brasilíumenn einnig verið ofarlega á lista í rauðvíns-
pottum á vinnustöðum víða um land.
Þótt Brasilíumenn séu með firnasterkt lið er þó annar
þáttur en bara geta sem flestir virðast sammála um að skipti
máli, nefnilega heimavallaráhrif. Það þarf engan að undra
– á tólf heimsmeistaramótum af nítján hefur heimaþjóðin
komist í úrslit og sex sinnum sigrað, sem er mun hærra hlut-
fall en svo að það geti talist tilviljun, en sigurhlutfall heima-
þjóðanna hækkar upp í 50% þegar mótið hefur verið haldið
hjá stórþjóðum í fótbolta – þ.e. í Brasilíu, Ítalíu, Þýskalandi,
Argentínu, Úrúgvæ, Spáni, Frakklandi eða Englandi. Sé litið
til allra leikja gestgjafa HM frá 1990 hafa þeir samtals unnið
27 leiki, gert sex jafntefli og tapað sex leikjum. Það hjálpar
reyndar einnig til að vera í eigin heimsálfu; til dæmis hefur
Evrópuþjóð aldrei sigrað á heimsmeistaramóti vestanhafs.
á heimavelli á hm
HM í Brasilíu er ekki bara fótboltahátíð. Hagfræðingar njóta þess líka að spá í tölurnar.
pistiLL
hafsteinn hauksson
Hagfræðingur
kjarninn 26. júní 2014