Kjarninn - 04.09.2014, Page 36

Kjarninn - 04.09.2014, Page 36
01/01 SpES 01/01 spes kjarninn 4. september 2014 SpES Heimsmetabók Guinness viðurkennir ekki elstu konu í heimi, sem kveðst 127 ára fæðingarvottorðið glataðist fyrir 40 árum Þ egar Leandra Becerra Lumbreras fæddist í litlu þorpi í Mexíkó hinn 31. ágúst árið 1887 var enn rúmlega ár í að Kobbi Kviðrista hrelldi Lundúnabúa með hrottafengnum glæpum sínum. Á þeim tíma hafði heldur engin heyrt um útvarp, körfubolta eða flugvélina. Ættingjar Leöndru fullyrða að gamla konan sé 127 ára gömul og þar með elsta manneskja sem nokkurn tímann hefur lifað á jörðinni. Heimsmetabók Guinness neitar hins vegar að viðurkenna langlífi Leöndru, þar sem fæðingarvottorð hennar glataðist fyrir fjörutíu árum og því er engin leið að fá aldur hennar staðfestan. Ættingjar gömlu konunnar, sem lifði tvær heimsstyrjaldir, mexíkósku byltinguna, kalda stríðið og internetöldina, segja hana ótrúlega erna og hún geti rifjað upp nákvæmar sögur úr löngu lífshlaupi sínu. Leandra, sem vann áður sem sauma- kona, býr í borginni Zapopan í Mexíkó, en hún lifði öll fimm börnin sín. Hún á tuttugu barnabörn, 73 barnabarnabörn og 55 barnabarnabarnabörn.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.