Morgunblaðið - 17.08.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
Einkatímar á pianó
Hljómborðsnámskeið
Byrjendur og lengra komnir
Börn og fullorðnir
Ármúli 38 Rvík. | S. 551 6751 og 691 6980
pianoskoli@gmail.com | pianoskolinn.is
Innritun hafin á haustönn
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði lögðu
fram tillögu á fundi ráðsins í gær þar sem rík-
isstjórn Íslands var hvött til þess að endurskoða
áform sín um skattahækkanir. Tillagan var ekki af-
greidd á fundinum. „Fyrir tveimur mánuðum var
samþykkt löng og hástemmd atvinnustefna fyrir
Reykjavíkurborg en þegar kemur að því að fylgja
henni eftir og standa í lappirnar þá er hlaupið í fel-
ur,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, annar af borg-
arráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Ályktunin
hefði verið borin fram í borgarráði til þess að
meirihlutinn gæti ekki vikið sér undan því að taka
afstöðu í málinu.
Í tillögunni kemur fram að fyrirhugaðar hækk-
anir myndu augljóslega hafa mjög alvarleg áhrif á
rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar og bitna sér-
staklega hart á reykvísku atvinnulífi. Bent var á í
tillögunni að flest hótel og gistihús landsins væru
staðsett í höfuðborginni og að fjölmörg önnur fyr-
irtæki byggðu afkomu sína á annars konar þjón-
ustu við ferðamenn. Fyrirhuguð hækkun á virð-
isaukaskatti myndi setja mörg áform um
uppbyggingu nýrra hótelrýma í uppnám.
Tekið var fram í tillögunni að hótel og gistihús
störfuðu í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og
hefðu því takmarkað svigrúm til þess að fleyta
hækkunum sem þessum út í verðlagið. „Fyrirhug-
aðar skattahækkanir munu leiða til lækkunar
tekjuskattsgreiðslna í greininni og veruleg hætta
er á að þær muni leiða til aukinna undanskota og
skila sér þannig í óheilbrigðara viðskiptaumhverfi,“
segir meðal annars í tillögu Sjálfstæðisflokksins.
Ráðuneyti sendi fulltrúa á fund borgarráðs
Talsverðar umræður sköpuðust um tillöguna í
borgarráði og tóku allir borgarráðsfulltrúar til
máls um hana. Afgreiðslu tillögunnar var svo frest-
að og bókuðu borgarráðsfulltrúar Besta flokksins
og Samfylkingarinnar að þeir myndu óska eftir því
að viðkomandi ráðuneyti myndu senda fulltrúa
sinn á fund borgarráðs til þess að ræða fyrirhug-
aða hækkun á virðisaukaskatti á gistingu. „Jafn-
framt verði viðræður hafnar við ríkisstjórnina um
að slást í lið með borgaryfirvöldum um sameig-
inlegar aðgerðir og hagfellt umhverfi til eflingar
atvinnulífi í Reykjavík, í samræmi við nýsam-
þykkta atvinnustefnu Reykjavíkur sem borgar-
stjórn samþykkti í júní sl.,“ segir í bókuninni.
Júlíus Vífill segir að það hafi fljótlega komið í
ljós við umræður um tillögu flokksins að hún
myndi ekki fást samþykkt í óbreyttri mynd. Hann
sagði það með ólíkindum að meirihluti borgar-
stjórnar kysi að læðast með veggjum þegar verið
væri að undirbúa gríðarlegar skattahækkanir á
ferðaþjónustuna sem myndu bitna sérstaklega
hart á atvinnulífinu í Reykjavík og þá um leið
borgarbúum.
Meirihlutinn í felur
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram tillögu gegn fyrirhugaðri
hækkun virðisaukaskatts á hótelrekstur Tillögunni frestað af meirihlutanum
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Páll Fannar Einarsson
Hitamet sumarsins var slegið í
höfuðborginni í gær. Hitinn mældist
mestur 20,9 stig í borginni. Heitast
var þó á Þingvöllum þar sem hiti
mældist 24,8 stig, 23,2 stig á Bræðra-
tunguvegi og 23,1 stig. á Korpu. Á
hálendinu var hitinn 20,9 gráður við
Kröflu og í Veiðivatnahrauni.
Ágætt veður var á öllu landinu í
dag og nutu landsmenn veðurblíð-
unnar enda hlýtt langt fram eftir
kvöldi. Vinsælir staðir í Reykjavík
eins og Nauthólsvíkin og Austur-
völlur voru þétt setnir í gær.
Hámarkshitinn á landinu hefur
nú náð 20 stigum í 21 dag í röð og er
það lengsta 20-stiga syrpan í áratugi.
Gangi spár eftir verður 20 stiga há-
markshiti á land-
inu í 22 daga í röð.
„Þetta hitamet er
í raun og veru
ósköp eðlilegt,“
segir Páll Berg-
þórsson veð-
urfræðingur.
„Loftslagið
hefur hlýnað og
þegar það gerist
verður hár hiti
miklu algengari. Ég býst við því að
svipaður hiti eigi eftir að mælast
næstu 2-3 daga. Eftir helgi verður
þetta svo heldur svalara. Sérstaklega
á Austurlandi þar sem minna sólskin
verður og meiri væta.“
Hitametið í Reykjavík stendur
þó enn. Það er síðan 2008 en þá
mældist hitinn 25,7° í höfuðborginni í
júlí. Veðurfarið á Íslandi hefur verið
svipað frá því í maí, en mikil hlýindi
og sólskin hafa einkennt seinustu
mánuði. „Þetta sver sig í ættina við
hlýnun jarðar og seinustu 12 ár bera
af um hita. Menn verða þó að búa sig
undir það að veðrið verði ekki enda-
laust hlýtt. Veðrið kemur í bylgjum,“
segir Páll.
Áfram er spáð góðu veðri um
allt land næstu daga. Sólríkt verður á
Vestur- og Suðvesturlandi fram til
sunnudags en búast má við rigningu
á Suðurlandi eftir helgina. „Dag-
urinn verður svo hlýr og góður á
Menningarnótt og þá sérstaklega á
Vesturlandi,“ segir Páll, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands verður hitinn á bilinu 15-18
gráður í Reykjavík og hæglætis
austanátt.
Heitasti dagurinn í Reykjavík í sumar
Morgunblaðið/Ómar
Veðrið kemur í bylgjum
Páll
Bergþórsson
Hlýindi Fjöldi fólks lagði leið sína í Nauthólsvík í gær. Þessi föngulegi hópur var í nestishléi þegar ljósmyndarinn átti leið hjá.
Hitametið í Reykjavík er 25,7° Sólríkt og hlýtt sumar
Bæjarráð Reykjanesbæjar
samþykkti í gærmorgun með
fjórum atkvæðum gegn einu
atkvæði fulltrúa Samfylking-
ar ályktun þar sem varað er
við afleiðingum þess að
hækka virðisaukaskatt á gist-
ingu. „Óhjákvæmileg afleið-
ing skattahækkunar er sam-
dráttur sem mun hafa í för
með sér fækkun ferðamanna
sem veldur fækkun flugferða
og minni þörf fyrir starfsfólk
í ferðaþjónustu sem aftur
leiðir af sér aukið atvinnu-
leysi á Suðurnesjum,“ segir í
ályktuninni. Þá skorar bæjar-
ráð á fjármálaráðherra sem
íbúa og þingmann Suðurnesja
að endurskoða stefnu sína í
málinu.
Varað við af-
leiðingunum
REYKJANESBÆR
Matvöruverslunin Iceland, sem var
nú með í fyrsta skipti í verðkönnun
ASÍ, var oftast með lægsta verðið.
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á
matvöru í átta lágvöruverðs-
verslunum og stórmörkuðum víðs-
vegar um landið sl. þriðjudag.
Af þeim 96 vörutegundum sem
skoðaðar voru, var Iceland með
lægsta verðið á 45 tegundum en Bón-
us kom þar á eftir með lægsta verðið
á 24 tegundum. Jóhannes Jónsson,
kaupmaður Iceland, sagði í viðtali
við mbl.is að viðtökurnar væru betri
en Bónus fékk á sínum tíma.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónus, vildi ekki tjá
sig efnislega um hvernig Bónus ætl-
aði að bregðast við og vísaði í yfirlýs-
ingu frá fyrirtækinu vegna verð-
könnunarinnar. Þar var sagt að
Bónus myndi áfram leggja áherslu á
að lágmarka rekstrarkostnað og að
stunda magninnkaup á hagkvæm-
asta verði. aslaug@mbl.is
Verðið var
oftast lægst
hjá Iceland
Jóhannes
Jónsson
Guðmundur
Marteinsson