Morgunblaðið - 17.08.2012, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
Hveragerði Veraldarvinir tóku til hendi í Hveragerði í gær vegna Blómstrandi daga og snyrtu meðal annars gróður á Breiðumörk, en gert er ráð fyrir fjölda gesta á ísdag Kjöríss í dag.
Helgi Bjarnason
Í athyglisverðri
frétt á heimasíðu sinni
segist Fjármálaeft-
irlitið (FME) ekki
hafa gert kröfu til
þess að Sjóvá yrði
bjargað sumarið 2009.
Ákvörðun um björgun
Sjóvár hafi verið
„pólitísk ákvörðun“.
Af fréttinni er ljóst að
Steingrímur Sigfús-
son og Jóhanna Sig-
urðardóttir tóku ákvörðun um að
verja rúmum 11 milljörðum af al-
mannafé í Sjóvá án sérstakra
meðmæla fagstofnunarinnar.
Grundvöllur ákvörðunar
Gera verður þá kröfu til stjórn-
valda að ákvörðun um að setja 11
milljarða í einkafyrirtæki sé vand-
lega undirbúin. Í ljósi 4 milljarða
taps ríkissjóðs á ákvörðuninni
þarf að skoða hvaða forsendur
Steingrímur og Jóhanna lögðu
henni til grundvallar. Hvaða
minnisblöð, útreikningar, rekstr-
ar- og viðskiptaáætlanir og úttekt
á áhrifum á samkeppni liggja fyr-
ir vegna yfirtöku ríkisins á Sjóvá?
Þetta þarf að leggja fram. Ef slík
gögn liggja ekki fyrir má efast um
að ákvörðunin hafi verið tekin á
faglegan hátt.
Aðrir og ódýrari valkostir
En spurningin er líka hvort
velja hefði mátt aðrar og ódýrari
leiðir fyrir skattborgara. Bæði
forstjórar TM og VÍS, á þeim
tíma, hafa sagt opinberlega að
þeir hafi verið reiðubúnir að koma
að björgun Sjóvár. Í fréttinni seg-
ir að félögin hafi ekki „formlega
látið reyna á slíkt“, sem að mínu
mati staðfestir framangreint.
Stjórnvöldum bar hins vegar
skylda til að kanna slíkan
„áhuga“, þó að hann hafi verið
„óformlegur“.
Þar sem ákvörðunin var Jó-
hönnu og Steingríms
þarf að kanna hvort,
og þá hvernig, ráð-
herrarnir leituðu eftir
aðkomu annarra
tryggingafélaga og á
hvaða gögnum var
byggt þegar ákveðið
var að hafna slíkri
markaðslausn. Í þessu
sambandi má benda á
það að mögulega hefði
mátt skipta vátrygg-
ingastofnum Sjóvá á
milli TM og VÍS.
Hæsta boði hafnað
Þannig er mögulegt að ekki
hefði þurft að ráðstafa skattfé til
Sjóvár með aðkoma VÍS og TM
eða að minnsta kosti hefði mátt
lækka kostnaðinn. Enn þá er ekki
öll sagan sögð. Reikningurinn upp
á 4 milljarða hefði getað orðið
lægri ef Sjóvá hefði verið seld
hæstbjóðanda. Ríkið ákvað hins
vegar að ganga framhjá hæsta
boði og auka þannig tap sitt.
Allt upp á borðið
Ég hef óskað eftir því að efna-
hags- og viðskiptanefnd verði
kynnt öll gögn málsins. Kanna þarf
forsendur pólitískrar ákvörðunar
Jóhönnu og Steingríms að verja 11
milljörðum í Sjóvá og einnig þeirr-
ar ákvörðunar að neita hæsta til-
boði og sitja upp með aukið tap. Á
þessum ákvörðunum bera Stein-
grímur og Jóhanna ábyrgð.
Eftir Guðlaug Þór
Þórðarson
» Ljóst er að Stein-
grímur og Jóhanna
tóku ákvörðun um að
verja rúmum 11 millj-
örðum af almannafé í
Sjóvá án sérstakra með-
mæla fagstofnunar-
innar.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Höfundur er alþingismaður.
Sjóvá: Pólitísk
ákvörðun –
pólitísk ábyrgðHinn 24. október2007 úrskurðaði Mann-
réttindanefnd Samein-
uðu þjóðanna í kæru-
máli sjómannanna,
Erlings Sveins Har-
aldssonar og Arnar
Snævars Sveinssonar,
gegn Íslenzka ríkinu út
af kvótakerfi laganna
um stjórn fiskveiða. Í
þessum úrskurði taldi
meirihluti Mannréttindanefnd-
arinnar kvótakerfið brjóta gegn 26.
gr. Alþjóðasamnings um borgaraleg
og stjórnmálaleg réttindi (Nr. 10, 28.
ágúst 1979), er kveður á um jafnrétti
allra manna. Kvótakerfið væri ósann-
gjarnt í eðli sínu, þar sem menn, er
vildu stunda sjó, en hefðu ekki kvóta,
þyrftu að kaupa hann af þeim, sem
fengið hefðu veiðiheimildir úthlut-
aðar frá ríkinu. Sanngirnin er nefni-
lega gildasti þáttur jafnréttisins, sem
einnig er varið í 65. gr. Stjórnarskrár
hins íslenzka lýðveldis nr. 33, 17. júní
1944, með síðari breytingum.
Í úrskurði sínum mælti Mannrétt-
indanefndin svo fyrir, að íslenzka rík-
ið skyldi greiða þeim Erlingi og Erni
skaðabætur og endurskoða fisk-
veiðistjórnunarkerfið á þann hátt, að
það fullnægði ákvæðum 26. gr. Al-
þjóðasamningsins um borgaraleg og
stjórnmálaleg réttindi um jafnrétti
allra manna. Skyldi þessu fullnægt
innan 6 mánaða.
Að gengnum þessum úrskurði,
sendi þáverandi sjávarútvegs-
ráðherra mannréttindanefndinni
bréf, dags. 6. júní 2008, þar sem fram
kom, að íslenzka ríkið mundi ekki
greiða kærendunum skaðabætur né
heldur teldi íslenzka ríkið sig vera í
aðstöðu til að breyta fiskveiðistjórn-
unarkerfinu umsvifalaust, en boðaði,
að tilmæli mannréttindanefndarinnar
yrðu höfð til hliðsjónar við heildstæða
endurskoðun fiskveiðistjórn-
unarkerfisins. Í febrúar 2009 mun ný-
skipaður sjávarútvegsráðherra hafa
áréttað við mannréttindanefndina, að
íslenzka ríkisstjórnin hafi ákveðið að
styrkja mannréttindaþátt stjórn-
arskrárinnar og festa í sessi, að auð-
lindir sjávar séu sameign þjóð-
arinnar, en tók að öðru leyti undir
afstöðu fyrrverandi sjárútvegs-
ráðherra.
Nú eru liðin tæp 5 ár
frá því að mannrétt-
indanefndin úrskurðaði
í máli þessu með ofan-
greindum hætti. Enn
þverskallast íslenzka
ríkið við að greiða kær-
endum skaðabætur, og
enn hefir íslenzka rík-
isstjórnin ekki lagt
fram frumvarp til
stjórnskipunarlaga um
það, að auðlindir sjávar
séu sameign þjóð-
arinnar. Hins vegar hef-
ir núverandi sjávarútvegsráðherra, á
síðasta þingi, lagt fram frumvarp til
breytinga á lögum um fiskveiðistjórn-
un, þar sem hann hefir bætt gráu of-
an á svart með því að festa í sessi, í að
minnsta kosti 20 ár, forréttindi þeirra
kvótagreifa, sem nú njóta þeirra.
Þetta er ennþá alvarlegra mannrétt-
indabrot, en samkvæmt núgildandi
lögum, þar sem veiðiheimildum er nú
aðeins úthlutað til eins árs í senn.
En þrátt fyrir allt þetta, þ. e. full-
komnar vanefndir íslenzka ríkisins á
úrskurði mannréttindanefndarinnar
frá 24. október 2007, hefir hið ótrú-
lega gerzt. Mannréttindanefnd Sam-
einuðu þjóðanna hefir í bréfi, dags.
29. maí 2012, til fastafulltrúa Íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf til-
kynnt, að hún hafi ákveðið að loka
málinu í ljósi þess, að stjórnvöld hafi
brugðizt með ásættanlegum hætti, að
hluta til, við tilmælum mannréttinda-
nefndarinnar. (Á ensku: „The Com-
mittee decided, in light of the meas-
ures taken so far by the State party
to give effect to the Committee’s
Views, not to examine the case any
further under the follow-up proced-
ure, with a note of a partly sat-
isfactory implementation of its re-
commendation.“)
Þessi ákvörðun mannréttinda-
nefndarinnar er óskiljanleg með öllu.
Ég þurfti að láta segja mér hana
þrisvar, eins og Njáli forðum. Varð ég
fyrst undrandi en síðar hneykslaður.
Ákvörðun þessi stríðir gegn siðfræði,
lögfræði, rökfræði og grunnreglum
réttarfars. Gegn siðfræði vegna þess,
að nefndin hafði í úrskurði sínum
slegið því föstu, að kvótakerfið væri
ósanngjarnt, en sanngirni er grund-
vallaratriði í siðfræði. Gegn lögfræði,
þar eð nefndin hafði túlkað jafnrétt-
isákvæði 26. gr. Mannréttinda-
sáttmálans lögfræðilega á þann veg,
að kvótakerfið bryti gegn því. Gegn
rökfræði með því að loka kærumálinu
án þess að fullnægt væri úrskurði
mannréttindanefndarinnar, nema
síður sé. Óljósar yfirlýsingar ís-
lenzkra stjórnvalda um það, að þau
muni hafa tilmæli nefndarinnar til
hliðsjónar við heildstæða endur-
skoðun fiskveiðikerfisins eru mark-
lausar, þar sem þær segja ekkert til
um það í hverju sú endurskoðun verði
fólgin, né hvenær hún eigi að fara
fram. Dómstóll eða annar úrskurð-
araðili vísar ekki máli frá, þótt
stefndi, sem vanefnt hefir dómkröf-
urnar, gefi yfirlýsingu um það, að
hann muni fullnægja kröfum stefn-
anda hugsanlega einhvern tímann í
framtíðinni. Því brýtur þessi ákvörð-
un einnig í bága við grundvall-
arreglur réttarfars.
Samkvæmt 3. mgr. 2. gr. Alþjóða-
samnings um borgaraleg og stjórn-
málaleg réttindi, sem Ísland er aðili
að, skuldbindur sérhvert aðildarríki
sig til, að maður, sem brotið hefir ver-
ið á, skuli fá raunhæfar úrbætur,
enda þótt brotið hafi verið framið af
mönnum, sem fara með stjórnvald.
Mannréttindanefndin hefir úrskurð-
að um þetta. Það á að greiða kær-
endum skaðabætur og það á að
breyta íslenzka fiskveiðistjórn-
unarkerfinu á þann veg, að það full-
nægi ákvæðum 26. Sáttmálans um
jafnrétti allra manna. Íslenzka ríkið
hefir gert hvorugt. Samt sem áður
lætur Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna þetta yfir sig ganga: „Lítið
er geð guma“. Með þeirri ákvörðun
að loka þessu kærumáli hefir Mann-
réttindanefndin lyppast niður og
svert orðstír sinn með smánarlegum
hætti. Bretar myndu segja: „Soiled
their fame with shame.“
Eftir Magnús
Thoroddsen » Þessi ákvörðun
mannréttinda-
nefndarinnar er óskilj-
anleg með öllu. Ég
þurfti að láta segja mér
hana þrisvar, eins og
Njáli forðum. Varð ég
fyrst undrandi en síðar
hneykslaður.
Magnús Thoroddsen
Höfundur er fyrrverandi
hæstaréttarlögmaður.
Hneykslanleg ákvörðun