Morgunblaðið - 17.08.2012, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2012
Ég ætla ekki að gera neitt sérstakt í dag en ég ætla aðeins aðlyfta mér upp á morgun,“ segir Selma Hreindal Svavars-dóttir, en hún er fimmtug í dag.
Selma er fædd og uppalin á Miðhúsum í Vatnsdal, en best þykir
henni að búa á Blönduósi. „Ég bý náttúrlega á besta staðnum. Ég er
búin að vera hérna að mestu í 15 ár og kann mjög vel við mig hérna
fyrir norðan,“ segir Selma.
Í tilefni af afmælinu ætlar Selma að skella sér á styrktartónleika á
morgun, umvafin vinum og vandamönnum, en henni þykir fátt jafnt
skemmtilegt og að hlusta á lifandi tónlist. „Það eru tónleikar í Reið-
höllinni á Blönduósi á morgun. Ég er mjög spennt fyrir þeim og verð
örugglega fyrsta manneskjan á svæðið,“ segir Selma, en tónleikarn-
ir eru til styrktar hjartveikum börnum.
Selma hefur mjög gaman af því að ferðast um landið og ætlar
seinna í sumar með hóp af ferðamönnum í túr um landið. „Við ætl-
um að fara hringinn í kringum landið. Þetta eru ferðamenn frá
Bandaríkjunum og við ætlum bara að leigja okkur bíl og ég ætla að
segja þeim allt um okkar frábæra land,“ segir Selma.
Eitt helsta áhugamál Selmu eru hestar, en hún og fjölskylda
hennar eiga alls 10 hesta. „Ég og strákarnir mínir erum mikið í
hestum. Við höfum mjög gaman af hestum og reynum að ríða út eins
oft og við getum,“ segir Selma. pfe@mbl.is
Selma Hreindal Svavarsdóttir, 50 ára í dag
Afmæli Fátt þykir Selmu jafn skemmtilegt og að hlusta á tónlist.
Ætlar að ferðast
hringinn um landið
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Ronja og Alís Elmars-
dætur, Matthildur Una
Valdimarsdóttir og Elva
Sól Káradóttir, héldu
hlutaveltu á Akureyri. Þær
söfnuðu alls 5.048 krón-
um sem þær færðu Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Akureyri Alex Horns fæddist 25.
október kl. 13.24. Hann vó 3.840 g og
var 52 cm langur. Foreldrar hans eru
Marcis Horns og Katarzyna Ja-
blonska.
Nýir borgarar
Akureyri Julia Helena fæddist 25. júlí
kl. 4.33. Hún vó 3.275 g og var 53 cm
löng. Foreldrar hennar eru Magdalena
Morawska Piekarska og Gregor Mar-
ek Piekarska.
H
ilda Jana Gísladóttir
fæddist í Reykjavík og
ólst upp í Vesturbænum.
Hún æfði handbolta með
KR um árabil sem var
lífið í hennar huga til 14 ára aldurs. Hún
gekk í Laugarnesskóla þá Melaskóla og
á unglingsárunum tók Hagaskóli við.
Kvennaskólinn í Reykjavík varð næst
fyrir valinu og líkaði henni dvöl þar vel.
Árið 1996 fluttist hún norður til Ak-
ureyrar með foreldrum sínum, ólétt af
fyrsta barninu. Upphaflega ætlaði hún
einungis að vera þar í eitt ár en hefur
dvalið þar síðan. Hún er grunnskóla-
kennari að mennt frá Háskólanum á
Akureyri.
Hilda Jana starfar síðastliðin ár á
sjónvarpsstöðinni N4 á Akureyri.
„Ég hreinlega elska þetta starf. Ég
var að koma úr sumarfríi og ég hlakka
til að mæta aftur. Mér finnst gaman að
fá að vita hvað það er sem fær fólk til að
fara á fætur á morgnana. Þegar farið er
að kafa dýpra eiga allir sér svo merki-
lega sögu,“ segir Hilda Jana. Hún hefur
getið sér gott orð fyrir einlæg og
skemmtileg viðtöl. Efniviðurinn er
óþrjótandi á Akureyri.
Hilda Jana Gísladóttir sjónvarpskona – 36 ára
Vinnufélagar Hilda Jana ásamt Sigurði Gunnarssyni á Siglufirði við verk Aðalheiðar Eysteinsdóttur listakonu.
Á réttri hillu í lífinu
Fjölskyldan Ferming elstu dótturinnar, Ingvar, Hrafnhildur, Hilda, Sig-
urbjörg Brynja og Ísabella Sól.
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður