Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. S E P T E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  215. tölublað  100. árgangur  BÖRNIN MEGA SULLA ÚT Í MATARGERÐ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI KOLBEINN Í AÐGERÐ OG FRÁ KEPPNI Í FJÓRA MÁNUÐI FRUMSÝNING 39 ÁFALL ÍÞRÓTTIRBÓKMENNTAHÁTÍÐ 10 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fjárleitir Mikil leit hefur staðið yfir að fé víða á Norðurlandi undanfarna daga. Tófur bitu lifandi lömb sem voru föst í snjó og gátu sig hvergi hrært í Hamraheiði, neðan og sunnan við Mælifellshnjúk í Skagafirði. Bæði var bitið í kjamma lambanna og annað lærið var étið af einu. Bændur og björgunarsveitar- menn leituðu fjár í Mælifellsdal í gær og náðu um 70 kindum, að sögn Guðmundar Hjálmarssonar leitarmanns. Hann sagði að aðkom- an hefði víða verið skelfileg. Blóði drifinn snjór og hálfétin lambshræ sem höfðu verið étin lifandi. Tófur voru hlaupandi í kringum fastar kindur og hrafnar sveimuðu yfir. Ákveðið verður í dag hvort neyð- arstigi almannavarna á Norður- landi verður aflýst, að sögn Svavars Pálssonar, sýslumanns á Húsavík. annalilja@mbl.is, gudni@mbl.is »4 Tófur lögðust á og bitu lifandi lömb sem voru föst í snjó skapaðist hérlendis á uppbyggingu orkuvera fyrir árið 2008, segir í skýrslunni. Flest þessara fyrirtækja eiga von á framhald verði á þessari erlendu starfsemi og að þau stefna á að auka hlutdeild hennar enn meira. »18 Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um íslenska orkumarkaðinn sem verður kynnt í dag. Aukin erlend umsvif má að mestu rekja til aukinnar eftirspurnar eftir þeirri þekkingu og reynslu sem slíkra fyrirtækja vegna orku- eða orkutengdra verkefna verði tvöfalt meiri á næsta ári heldur en árið 2009, eða sem nemur 26 milljörðum. Ríflega 200 starfsmenn hjá átta stærstu fyrirtækjunum eru nú stað- settir erlendis. Hörður Ægisson hordur@mbl.is Erlend umsvif verkfræði- og þjón- ustufyrirtækja vegna orkutengdrar starfsemi hafa stóraukist á umliðn- um árum. Talið er að heildarvelta Yfir 200 starfsmenn erlendis  Tvöföld velta verkfræðifyrirtækja  Eftirspurn eftir þekkingu í orkuiðnaði Morgunblaðið/Ómar Ferðaþjónusta Bílaleigur eiga von á auknum álögum á reksturinn. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta yrði algjört rothögg fyrir okk- ur og gæti einnig gengið af íslenskri ferðaþjónustu dauðri,“ segir Stein- grímur Birgisson, framkvæmda- stjóri bílaleigunnar Hölds, um þau áform stjórnvalda í nýju fjárlaga- frumvarpi að fella niður undanþágu á vörugjöldum af innfluttum bílaleigu- bílum. Hækka á vörugjöldin í tveim- ur áföngum árin 2013 og 2014 og laga þau að almennum vörugjöldum á ökutækjum. Er talið að þessi aðgerð muni skila ríkissjóði 500 milljónum króna í auknar tekjur á næsta ári. Steingrímur dregur stórlega í efa að sú tekjuáætlun standist. Bílaleig- urnar muni kaupa færri bíla en áður og nota þá lengur. „Ef áformin fara óbreytt í gegnum þingið mun það endanlega jarða íslenska ferðaþjón- ustu og rústa okkar rekstri. Við er- um að láta reikna áhrifin af þessu fyrir okkur en það er ljóst að við gæt- um þurft að hækka verð hjá okkur um tugi prósenta.“ Erna Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, tekur undir gagnrýni Steingríms. Þessi áform bætist ofan á fyrirhug- aða hækkun á vsk. af gistingu. „Mönnum er eiginlega ofboðið þegar bílaleigurnar eru komnar til viðbótar. Ég er hrædd um að það eigi eftir að koma við ríkiskassann ef bílaleigurnar þurfa að draga veru- lega úr innkaupum á bílum,“ segir Erna. MAlgjört rothögg »16 Rothögg fyrir bílaleigur  Gagnrýna áform um að fella niður undanþágu á vörugjöldum fyrir bílaleigubíla  „Gætum þurft að hækka verð hjá okkur um tugi prósenta“  Kaupa færri bíla Búnaður til framleiðslu fíkniefna fannst í bílskúr við Efstasund í austurbæ Reykjavíkur síðdegis í gær. Talið er að amfetamín hafi verið framleitt í bílskúrnum. Húsráðandi, karl á fimmtugsaldri, var handtekinn og vistaður á lögreglustöð. Lögregla vann að því í gærkvöldi að fjarlægja búnaðinn úr skúrnum og bar hluta hans inn í tjald sem reist hafði verið fyrir utan. Til að- stoðar voru sérfræðingar frá Háskóla Íslands og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Engin sprengihætta var sögð vera samfara aðgerðum lögreglunnar í gær. Í frétt lögreglu frá 2008 um amfetamínverksmiðju í Hafnarfirði kom fram að samfara framleiðslu amfetamíns væri mikil sprengi- og eldhætta. gudni@mbl.is Amfetamínverksmiðja í íbúðarhverfi upprætt Morgunblaðið/Kristinn  Maðurinn, sem grunaður er um að hafa gert kvikmyndina, sem kynt hefur undir mótmælum og óeirðum víða í arabaheiminum í þessari viku, nýtur nú lögreglu- verndar í Kaliforníu. Maðurinn heitir Nakoula Basse- ley Nakoula. Hann er kristinn og mun tilheyra koptum, en ekki vera ísraelskur Bandaríkjamaður eins og haldið var fram. Hann er talinn hafa sett myndina þar sem veist er að íslam og Múhameð spámanni á netið undir nafninu Sam Bacile og jafnvel hafa leikstýrt henni líka. Víða voru mótmæli gegn Banda- ríkjamönnum í gær og var atgang- urinn harðastur í Egyptalandi og Jemen. »20 Forkólfur myndar um íslam fær vernd Með breytingum á vörugjöldum á sykruð matvæli á að afla ríkissjóði 800 milljóna á næsta ári. Breyt- ingin er sögð vera gerð með manneldissjón- armið að leiðarljósi. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir ljóst að ríkið geri ekki ráð fyrir að hækkunin uppfylli mann- eldissjónarmið, enda reikni ríkið með tekjunum. »6 Sælgætisskattur skili 800 milljónum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.