Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Haag. AFP | Flokkarnir sitt hvorum
megin við miðju héldu velli í kosning-
unum í Hollandi á miðvikudag og hóf
Mark Rutte, forsætisráðherra lands-
ins, stjórnarmyndunarviðræður bak
við luktar dyr í gær.
Hinn frjálslyndi flokkur Ruttes,
VVD, hlaut 41 sæti í kosningunum,
tveimur meira en Verkamannaflokk-
urinn. Sigur þeirra var á kostnað
flokkanna, sem gerðu út á andstöðu
við Evrópusambandið. Flokkur
Geerts Wilders, sem er lengst til
hægri, galt afhroð og Sósíalista-
flokkur Emiles Roemers, sem er yst
til vinstri, stóð í stað.
Skoðanakannanir bentu um tíma
til þess að Sósíalistaflokkurinn
myndi vinna stórsigur og verða
stærsti flokkur landsins.
Flokkur Wilders tapaði níu sætum
og er nú með 15. Hann felldi stjórn-
ina í apríl þegar hann neitaði að sam-
þykkja fjárlög þar sem aðhald var
sett á oddinn. Talið er að myndun
nýrrar ríkisstjórnar geti tekið vikur
ef ekki mánuði vegna ólíkra sjónar-
miða leiðtoga stærstu flokkanna.
Segja má að Rutte fylgi Angelu
Merkel, kanslara Þýskalands, að
málum í þeirri baráttu. Diederik
Samsom, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, stendur nær Francois
Hollande, forseta Frakklands, sem
hefur gagnrýnt áherslu Merkel á að-
hald og hvatt til aukinna útgjalda til
að glæða efnahagslífið.
Saman eru flokkarnir með 80 sæti
á þingi af 150. Talið er að myndun
nýrrar ríkisstjórnar geti tekið vikur
ef ekki mánuði vegna ólíkra sjónar-
miða leiðtoga stærstu flokkanna.
„Þetta er eiginlega eini leiðtoginn
í Evrópu, sem hefur farið í kosningar
mitt í kreppunni og náð endurkjöri,“
sagði Claes de Vreese, sem kennir
stjórnmálafræði við Amsterdam-há-
skóla, um sigur Ruttes. „Reyndar
var hann þegar horft er á úrslitin
ekki aðeins endurkjörinn, heldur
jókst fylgi hans.“
AFP
Hrósar sigri Stuðningsmenn fagna Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands.
Miðjan hélt í Hollandi
Aukin harka hef-
ur færst í mál-
flutning Arturs
Mas, leiðtoga
Katalóníu, í garð
spænskra stjórn-
valda á und-
anförnum dögum.
Mas sagði fyrir
tveimur dögum
eftir að milljón
manns fór í kröfugöngu í Barselónu í
þágu sjálfstæðis Katalóníu að halda
mætti þjóðaratkvæði um stöðu
Katalóna sem þjóðar.
Í gær ávarpaði hann efnahags-
málaþing í Madríd og kvaðst telja að
milli Spánar og Katalóníu væri að
koma fram svipaður klofningur og
milli Norður- og Suður-Evrópu.
„Ég held að þreytutilfinning sé að
koma í ljós á milli Katalóníu og
Spánar og ég held að sú þreyta sé
gagnkvæm,“ sagði hann á þinginu.
„Katalónía er þreytt á að ná ekki
þeim árangri, sem hún telur að hún
gæti náð, innan spænska ríkisins og
ég held að Spánverjar séu orðnir
þreyttir á hvernig Katalónar gera
hlutina.“
Katalónum finnst þeir ekki njóta
sannmælis í Madríd. Fimmtungur af
framleiðslu Spánar kemur frá Kata-
lóníu, sem er með stærra hagkerfi
en Portúgal. Þeir hafa sett fram
kröfu um fjárhagslegt sjálfstæði líkt
og Baskar njóta nú.
Katalónar
ókyrrast
Artur Mas
Heimskautaref-
urinn kom til Ís-
lands yfir hafís,
að því er vís-
indamenn hafa
komist að. Einn
þeirra er Greger
Larson við Dur-
ham-háskóla í
Bretlandi. „Sum-
ir refir eru
þekktir fyrir að ganga hundruð
mílna á ísnum,“ er haft eftir honum
á vefsíðu vísindatímaritsins New
Scientist. „All sem til þarf er smá ís
og viti menn, refurinn er mættur.“
Larson og félagar telja að heim-
skautarefurinn, vulpes lagopus,
gæti hafa náð til Íslands snemma á
litlu ísöldinni, sem stóð yfir á milli
1450 og 1900, þegar haf var ísi lagt
á norðurslóðum.
Nýlegar erfðarannsóknir á refum
sýna að á Íslandi er að finna fimm
hópa, hvern með sína arfgerð eða
setröð. Þegar Larson og félagar
greindu þúsund ára gömul refabein,
sem komu fram í fornleifaupp-
greftri hér á landi, kom í ljós að
þau tilheyrðu öll aðeins einni arf-
gerð af þessum fimm. „Það er of
skammur tími fyrir hinar [fjórar
arfgerðirnar] til að þróast,“ segir
hann.
Refurinn
lagði ís
undir fót
Íslenskur refur.
BÖRN OG UNGMENNI KEPPA Í FJÓRUM FLOKKUM:
n GULI FLOKKURINN 1.og 2. bekkur
n RAUÐI FLOKKURINN 3. og 4. bekkur
n GRÆNI FLOKKURINN 5. og 6. bekkur
n BLÁI FLOKKURINN 7.,8. 9. og 10 bekkur
Umhugsunartími er 7 mínútur og tefldar eru 6 umferðir.
Í flokki 60 ára og eldri eru tefldar 7 umferðir
með 10 mínútna umhugsunartíma.
SKÁKMÓTIÐ HEFST KL. 13.
Fimm efstu í hverjum flokki fá verðlaunapeninga og sigurvegarar
fá glæsilega bikara. Allir keppendur fá sérmerktan bol sem
hannaður er af þessu tilefni.
Þá verður efnt til happdrættis, þar sem allir eiga möguleika –
stærsti vinningurinn er flugmiði!
Hátíðinni lýkur með verðlaunaafhendingu
og happdrætti á fimmta tímanum.
Skákmót og málþing í Laugardalshöll 15. september 2012 til að minnast heims-
meistara-einvígisins 1972, þegar Robert J. Fischer náði krúnunni af Boris Spassky.
AFMÆLISMÓT
ALDARINNAR
Málþing í tilefni af 40 ára afmæli Einvígis aldarinnar. Laugardalshöll 15. september klukkan 11.
Ávarp: Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og formaður undirbúningsnefndar.
Ávarp: Katrín Jakobsdóttir menntamálaraðherra.
Ávarp: Eric Green, Deputy Chief of Mission, staðgengill sendiherra Bandaríkjanna.
Ávarp: Andrei Melnikov sendiráðsritari Rússlands.
Erindi: Friðrik Ólafsson stórmeistari og fv. forseti FIDE.
Erindi: Helgi Ólafsson stórmeistari.
Ávarp: Óttarr Ólafur Proppé borgarfulltrúi og formaður Skákakademíunnar.
Málþingsstjóri: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fv. forseti Skáksambands Íslands.
Allir velkomnir á málþingið Skráning á skákmótið á skak.is
hSkák er skemmtileg!h