Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012 „Þetta er í raun flottasta sýningin sem hefur verið haldin hér í Norræna húsinu. Við erum með ljósmyndir, myndbönd, fyrirlestra, upp- stoppaða fugla og síðast en ekki síst er hægt að taka sýni og skoða í smásjá,“ segir Helga Víðisdóttir, markaðsstjóri Norræna hússins. Í gær var opnuð sýningin Lífið í Vatnsmýr- inni ásamt Náttúruskóla Norræna hússins. Sýningin bregður ljósi á fuglalíf, gróður og mannlíf í Vatnsmýri auk mikilvægis votlend- isins í Vatnsmýri. Í vor hófust framkvæmdir við að endurheimta votlendið og uppbyggingu varplandsins í Vatnsmýri. Jón Gnarr borg- arstjóri mætti einmitt á sýninguna siglandi á kanó. Helga segir að sýningin sé kjörin fyrir alla fjölskylduna. „Sýningin er mjög myndræn og við tökum tillit til ungu kynslóðarinnar, því er skilaboðunum komið á framfæri hreint og beint.“ Meðfram sýningunni starfar Nátt- úruskóli Norræna hússins og segir Helga að kjörið sé fyrir alla fjölskylduna að koma og njóta útiverunnar í fallegri náttúru. „Fjöl- skyldur hafa verið að koma hingað með háfa og veiða síli. Svo er boðið upp á ratleik til að skerpa skilningarvitin.“ heimirs@mbl.is Flottasta sýningin í húsinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Fræðsla Sýningin er kjörin dægradvöl fyrir alla, unga sem aldna. Kanó Borgarstjórinn, Jón Gnarr, mætti sigl- andi á sýninguna.  Sýning um lífið í votlendinu í Vatnsmýri  Fjölskyldur koma með háfa og veiða síli Þar sem gæðagleraugu kosta minna ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS SJÓNARHÓLL gleraugu á verði fyrir ALLA Mikið úrval umgjarða fisléttar og sterkar flott hönnun litríkar • • • • Margverðlaunuð frönsk gæðagler verð uMgjarða 4.900 9.900 14.900 19.900 24.900 3 litir Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Ríta tískuverslun Síðar mussur á 9.800 kr. Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is Fastus til framtíðar Bjóðum öflugar og endingargóðar vélar frá Electrolux og Primus. Hafðu samband við söluráðgjafa okkar og við aðstoðum þig við að finna hagkvæmustu lausnina. ÞVOTTAVÉLAR, ÞURRKARAR, STRAU- OG BROTVÉLAR Laugavegi 54, sími 552 5201 Glæsileg kjólasending ótrúlegt úrval Fyrir árshátíðina og brúðkaupin Háskólinn í Reykjavík heiðraði í gær 94 afburðanemendur í skól- anum. Af þeim hlutu 56 nemendur styrk af forsetalista skólans. Á þann lista komast þeir sem náð hafa bestum árangri í hverri deild, þ.e. viðskiptadeild, laga- deild, tölvunarfræðideild eða tækni- og verkfræðideild. Þá hlutu 29 nemendur nýnema- styrk í grunnnámi og þrír nem- endur í frumgreinanámi fengu verðlaun fyrir góðan náms- árangur. Allir þessir nemendur fá skólagjöld einnar annar nið- urfelld. Fimm nemendum var veitt við- urkenning samtals að upphæð 400.000 krónur úr Frumkvöðla- sjóði Guðfinnu S. Bjarnadóttur, en þeim sjóði er ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykja- vík sem leggja fram bestu við- skiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju. Bókaútgáfan Codex veitti hvatningaverðlaun til þess nem- anda á fyrsta ári í lögfræði sem hefur hæstu meðaleinkunn. Sá sem hlaut verðlaunin að þessu sinni var Árni Þórólfur Árnason og fær hann kennslubækur annars og þriðja árs í lögfræði í verðlaun. HR heiðrar 94 afburða- nemendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.