Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012 Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Hugmynd um stofnun stuðningsmið- stöðvar fyrir börn með alvarlega og ólæknandi sjúkdóma er að öllum lík- indum að verða að veruleika með söfnunarátakinu Á allra vörum. Mið- stöðin mun bera nafnið Nótt og dag- ur. „Fyrir ári komu að máli við mig Bára Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í barnahjúkrun, og Hanna Sigurrós Ásmundsdóttir, móðir Svanfríðar Briönu Romant, langveikrar stúlku sem lést fyrr á þessu ári. Þær komu með ákveðnar hugmyndir um hvað mætti betur fara í heilbrigðiskerfinu varðandi umönnun og stuðning við alvarlega veik börn og fjölskyldur þeirra,“ segir Elín Hirst stjórn- arformaður samtakanna Nætur og dags sem undanfarið ár hefur unnið að undirbúningi stofnunar stuðn- ingsmiðstöðvarinnar. „Að undirbún- ingum hafa komið aðilar úr ýmsum áttum, til dæmis frá Barnaspítala Hringsins, velferðarráðuneytinu og Umhyggju. Síðan ákváðu ofurkon- urnar í Á allra vörum að koma með okkur í þetta verkefni sem var nátt- úrlega grunnforsenda þess að fá fjár- magn til að stofnunar slíkrar mið- stöðvar. Í kjölfarið var myndaður faghópur sem hefur unnið að und- irbúningi svo mánuðum skiptir,“ seg- ir Elín og tekur fram að undirbún- ingsvinnu sé lokið. Gangi söfnunin að óskum geti stuðningsmiðstöðin verið opnuð mjög fljótlega. Ráðgjöf á einum stað Ragnar Bjarnason, yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins og stjórn- armaður í Nótt og degi, er sann- færður um að tilkoma stuðnings- miðstöðvar muni skipta miklu máli. „Stuðningsmiðstöðin á ekki að vera nýr meðferðaraðili heldur hjálpa fólki að samhæfa allar aðgerðir og verkefni sem fylgja veikindum barnanna. Fjölskyldurnar þurfa oft að sjá sjálfar um að allt gangi upp varðandi tryggingamál, greiningar, endurhæfingu og annað sem til fell- ur. Það er kannski það sem oft tekur hvað mestan tíma fyrir fólk,“ segir Ragnar. Hann segir að á margan hátt sé góð þjónusta hér á landi og nefnir Umhyggju, styrktarfélög, greining- arstöðina, Rjóðrið og Barnaspítalann en hins vegar vanti oft upp á samhæf- ingu. Í sumum tilfellum sé t.d. hluti eftirfylgni ekki á höndum spítalans. „Miðstöðin miðar að því að hægt sé að leita ráðgjafar á einum stað, fjöl- skyldur séu með einn ráðgjafa sem leiðir þær um kerfið og þekki að- stæður hverju sinni,“ segir Ragnar. Morgunblaðið/Golli Kærkomið Undirbúningur að stofnun stuðningsmiðstöðvar hefur staðið yfir í ár. Hún mun skipta miklu máli. Átakið forsenda fyrir opnun Nætur og dags  „Ofurkonurnar“ í Á allra vörum létu málið til sín taka Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Svokallaður sælgætisskattur á að skila 800 milljóna króna tekjuauka í ríkissjóð á næsta ári samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu. Uppi eru áform um að breyta fyrirkomulagi vörugjalda á matvæli á grundvelli tillagna starfs- hóps þannig að þau taki meira mið af manneldismarkmiðum, þ.e sykruð matvæli eru hærra skattlögð en þau sem hollari þykja. Samkvæmt upplýsingum frá fjár- málaráðuneytinu hefur starfshópur- inn unnið frá því í sumar að tillögum sínum en gert er ráð fyrir að starfi hans ljúki í þessum mánuði. Hjá hópn- um liggja fyrir ákveðnar tillögur sem eru bæði til hækkunar og lækkunar vörugjalda, auk þess sem lögð er til mikil einföldun á álagningu vöru- gjalda. Í starfshópnum eiga sæti Sig- urður Guðmundsson, fjármálaráðu- neyti, Haraldur Jónsson, Samtökum verslunar og þjónustu, Ragnheiður Héðinsdóttir, Samtökum iðnaðarins, Erna Bjarnadóttir, Bændasamtökum Íslands, Jóhannes Gunnarsson, Neyt- endasamtökunum, og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, landlæknisembættinu. Þrátt fyrir að starfshópurinn hafi ekki skilað tillögum sínum þykir ekki óeðlilegt að áform um tiltekna tekju- öflun séu sett fram í fjárlagafrum- varpinu, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Eftir sé að vinna að því að útfæra áformin um tekjuöflunina áður en málið er afgreitt sem lög frá þinginu. Dæmigert fyrir ríkið Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að samtökin hafi í gegnum tíðina gagn- rýnt álagningu vörugjalda á matvæli. „Þessi gjöld hafa verið ótrúlega handahófskennd og ekki unnin á fag- legum grunni. Fyrr á þessu ári settust fulltrúar Samtaka verslunar og þjón- ustu niður með fjármálaráðuneytinu og skoðuðu með hvaða hætti væri hægt að innleiða meiri fagmennsku í vörugjaldakerfið. Þá var gert ráð fyrir að kerfisbreyting af þessum toga myndi ekki hafa í för með sér tekju- hækkun fyrir ríkið. Svo sjá menn það í fjárlagafrumvarpinu að ríkisstjórnin ætlar allt í einu að fara í svona breyt- ingar og láta þær skila 800 milljónum meiri tekjum en núverandi kerfi,“ segir Vilhjálmur. Hann segir ljóst að ríkið geri ekki ráð fyrir því að hækkunin skili því manneldismarkmiði sem hún eigi að gera miðað við tekjurnar. „Þetta er dæmigert fyrir það hvernig ríkið set- ur hlutina fram. Tóbaksgjaldið á að hækka því fjármálaráðherra hefur sérstakar áhyggjur af ungum karl- mönnum en samt er gert ráð fyrir því að þeir hlusti ekki neitt og haldi áfram að neyta vörunnar í sama magni.“ Sykur á að auka tekjur ríkissjóðs  Vörugjöld með manneldismarkmið  SA segja aðgerðina handahófskennda Talið er að um 50 börn hér á landi séu með sjaldgæfa, ólæknandi og mjög alvarlega sjúkdóma. Umönnun margra þeirra fer fram á heimilum barnanna og því fylgir mikil vinna og álag á fjölskyldur þeirra. Með tilkomu stuðnings- miðstöðvar á að búa til vettvang þar sem samfelld, samhæfð þjónusta er við þessi börn og fjölskyldur þeirra. Slík þjónusta verður veitt í þverfaglegu samstarfi allra aðila sem koma að málum barnsins og fjölskyldu þess. Innnan stuðningsmiðstöðvarinnar verða hjúkrunarfræðingar sem verða liðsmenn fjölskyldnanna. Þeir verða sérfræðingar í málefnum barnsins og fjölskyldunnar, munu leiðbeina þeim um kerfið. Útvega aðstoð inn á heim- ilið, leiðbeina um umönnun barnsins, hafa eftirlit með líðan þess og veita upplýsingar um réttindamál. Þverfaglegt samstarf Á VIÐ UM 50 BÖRN MEÐ ALVARLEGA SJÚKDÓMA Samtök at- vinnulífsins segja fjár- lagafrum- varpið 2013 vera ögrun við fyrirtækin í landinu og starfsfólk þeirra. „Í grundvallar- atriðum finnst okkur hafa orðið stefnu- breyting hjá ríkisstjórninni. Í fyrri fjárlögum var leitast við að fylgja þeirri stefnumörkun að ná niður halla ríkissjóðs með lægri útgjöldum til helminga við hærri skatttekjur. Núna er þess- ari stefnu hætt og tekin upp sú nýja stefna að fjármagna aukin útgjöld með skattlagningu á at- vinnulífið. Það á eftir að koma fram í hækkuðu verðlagi,“ segir Vilhjálmur. Hættir að spara á móti BREYTA UM STEFNU Vilhjálmur Egilsson Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? VERÐI LJÓS Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum Ljóskastari 2.295 Ljóskastari á fæti 4.490 Gemstone LED ljós f/rafhlöður 1.290 ZB2105 LED ljós með hleðslurafhlöðu 2.995 Kapalkefli Wis- SCR2-30 30 metrar 4.690 SHA-2625 Vinnuljóskastari Rone 28W m. innst. blár 5.995 Steindór Hjörleifsson leikari andaðist á heim- ili sínu í gær 86 ára gamall. Hann fæddist 22. júlí 1926 í Hnífsdal, sonur Elísabetar Þór- arinsdóttur húsmóður og Hjörleifs Steindórs- sonar, sjómanns og fiskimatsmanns. Að loknu gagnfræða- prófi 1942 vann Stein- dór ýmis störf til sjós og lands, m.a. í Lands- banka Íslands 1946-61 og Seðlabanka Íslands 1961-65. Hann var fyrsti dagskrárstjóri lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins 1965- 68. Steindór lauk leiklistarnámi frá Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar 1949 og nam við leiklistardeild Danska útvarpsins 1956-57. Hann var leikari og leikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur (LR) frá 1947, sat í stjórn þess og var formað- ur til fjölda ára. Stein- dór lék hjá Þjóðleik- húsinu 1950-52 og var fastráðinn hjá LR frá 1968 og til starfsloka 1996. Hann kenndi einnig við Leiklist- arskóla LR og lék hjá Ríkisútvarpinu, hljóð- varpi og sjónvarpi, og í kvikmyndum. Steindóri hlotnuðust margar viðurkenn- ingar. Hann fékk Silf- urlampann og Skál- holtssveininn leikárið 1961-62, var kjörinn heiðursfélagi LR 1987, fékk gull- merki Félags íslenskra leikara 1991, var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1993 og var heið- urslistamaður Garðabæjar 1999. Eiginkona Steindórs var Margrét Ólafsdóttir leikkona (f. 1931, d. 2011). Dóttir þeirra er Ragnheiður Kristín leikkona. Andlát Steindór Hjörleifsson Ökumaður jeppa lenti í kröppum dansi þegar hann ók inn í Héðins- fjarðargöng síðastliðinn mánudags- morgun. Hvass norðanvindur blés fyrir utan göngin og snjókrap var á veginum og vildi ekki betur til en svo að þegar bifreiðin slapp inni í göngin kastaðist hún til, snérist og lenti í gangaveggjunum, bæði vinstra og hægra megin. Ökumaðurinn slapp ómeiddur en bifreiðin skemmdist talsvert í óhappinu og var dreginn á brott með kranabíl. Kastaðist til í Héð- insfjarðargöngum Óhapp Bíllinn skemmdist töluvert.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.