Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Þarna hefur náðst sátt um veiga- mikil atriði, en um önnur grund- vallaratriði gat aldrei orðið sam- komulag,“ segir Einar K. Guðfinnsson, einn fjögurra þing- manna í trúnaðarmannahópi stjórnmálaflokkanna um kvóta- frumvarp ríkisstjórnarinnar. Þann- ig er samkomulag um að falla frá ákvæði, sem var í lagafrumvarpi um stjórn fiskveiða í fyrravetur, um að banna framsal aflaheimilda algerlega frá árinu 2032. „Í heild- ina skiptir það mestu máli að í yf- irlýsingu formanna stjórnarflokk- anna skuldbinda þau sig til að leggja frumvarpið fram með þeim breytingum, sem við yrðum ásáttir um,“ segir Einar. Vísar hann þar til orða í yfirlýs- ingu oddvita ríkisstjórnarinnar við þinglok 18. júní þess efnis að „náist samkomulag á þessum vettvangi mun það verða lagt til grundvallar framlagningu frumvarps um stjórn fiskveiða af hálfu stjórnarflokk- anna á nýju þingi í haust.“ Margvíslegar áherslur og athugasemdir Í yfirlýsingu oddvita ríkisstjórn- arinnar segir að trúnaðarmanna- hópur fulltrúa stjórnmálaflokk- anna, sem hafi unnið með frumvarp um stjórn fiskveiða muni halda þeirri vinnu áfram og ljúka störf- um með samantekt eða greinar- gerð. Í sameiginlegri greinargerð starfshópsins, sem kynnt var á fundi atvinnuveganefndar í gær, er fjallað um álit hópsins á fyrirfram skilgreindum deiluefnum og koma þar fram margvíslegar athuga- semdir og áherslur. Í starfshópn- um voru Kristján Möller, Björn Valur Gíslason, Einar K. Guðfinns- son og Sigurður Ingi Jóhannsson. Auk þeirra sitja í atvinnuvega- nefnd þingsins Ólína Þorvarðar- dóttir, Jón Gunnarsson, Lilja Raf- ney Magnúsdóttir, Þór Saari og Jónína Rós Guðmundsdóttir. Einar K. Guðfinnsson segist gera ágreining um veigamikil mál í greinargerð starfshópsins og nefn- ir fyrst andstöðu við hugmyndina um kvótaþing eins og hún hafi ver- ið sett fram. Hann segir of mikið sett í pott 2 og leigupotturinn sem þar sé að finna sé alltof stór. Auk þess sem slíkt leigupottakerfi rík- isins eigi ekki að vera í lögunum. Einnig segir hann það sína skoð- un að í frumvarpinu eigi að byggja á samningaleið, en ekki veiðileyfa- leið. Skilgreint magn fer í flokk 2 Hins vegar hafi verið samkomu- lag í starfshópnum um að falla frá afnámi framsals eftir 20 ár eins og áður er nefnt. Einnig var sátt um að skilgreina skyldi ákveðið magn í flokk 2 og það yrði sett í hlutdeild þannig að magnið ykist með vax- andi kvótum en minnkaði þegar aflaheimildir yrðu minni. Í upp- haflegu frumvarpi hafi verið marg- vísleg ákvæði sem hefðu gert það að verkum að potturinn gæti stækkað verulega umfram þau 16, 18 og 20 þúsund tonn sem miðað var við á ákveðnu árabili. Einnig hafi nú verið fallið frá því að þeir sem selja frá sér aflahlut- deild greiddu 3% af sölukvótanum til ríkisins og þessi hlutdeild færi í flokk 2. Sömuleiðis væri fallið frá svokallaðri stillimynd, sem hefði einnig aukið heimildir í flokki 2. Rækju- og skelbætur hafi átt að falla alveg niður en samkomulag hafi verið um að þær yrðu áfram. Bundin af atriðum sem sátt var um  Trúnaðarmannahópur stjórnmálaflokka um stjórn fiskveiða hefur skilað niðurstöðum  Sátt um veigamikil atriði, en um önnur gat aldrei orðið samkomulag, segir Einar K. Guðfinnsson Morgunblaðið/Ómar Flotinn í Reykjavíkurhöfn Frumvarp um stjórnun fiskveiða verður væntanlega til umræðu á Alþingi á næstu vikum. Einar K. Guðfinnsson Björn Valur Gíslason Kristján Möller Sigurður Ingi Jóhannsson Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, vísar til föðurhúsanna ásökunum um að trúnaðarmannahópur formanna stjórnmálaflokkanna hafi verið sjálfskipaður. Slíkar yfirlýsingar séu byggðar á misskilningi því formenn flokkanna hafi þvert á móti tilnefnt hver sinn fulltrúa. Í störfum hópsins hafi verið unnið af mikilli trúmennsku og í samræmi við yfirlýs- ingu oddvita ríkisstjórnarinnar. Þar hafi nákvæmlega verið tíundað hver verkefni hópsins væru. Aðeins í einu tilviki hefði verið brugðið út frá því, en hópurinn fór þess á leit við sjávarútvegsráðherra í síðasta mánuði að gerð yrði fagleg og fræðileg út- tekt á strandveiðum. Atvinnuveganefnd hefði síðan fengið skýrslu um störf hópsins í gær- morgun eða við fyrsta tækifæri. Kristján segist ekki hafa starfað í hópnum sem formaður atvinnuveganefndar heldur hafi hann verið skipaður beint af Jóhönnu Sigurðardóttur. Sérstakur formaður hafi ekki farið fyrir starf- inu í trúnaðarmannahópnum. Í skilabréfi hópsins til ráðherra komi fram skoðanir fjórmenninganna og þær bindi hvorki aðra þingmenn né þingflokka. Það sé síðan ráðherra að ákveða framhaldið. Kristján segist ekki hafa miklar áhyggjur af bókun Þórs Saari og kvört- un til forsætisnefndar. Þór hafi skrifað nefndinni bréf og sagt sig frá störf- um hópsins. Skoðanir hans hafi komið fram á fundum hópsins á fyrri stig- um og í samtölum við hann síðar. Vísar ásökunum til föðurhúsa Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, á sæti í atvinnuveganefnd og lýsir hún sig mótfallna og um leið óbundna af hugmyndum fjórmenninganna. Í bloggi sínu í gær undir fyrirsögninni Átakafundur í atvinnu- veganefnd kemur fram að auk hennar hafi Lilja Rafney Magnúsdóttir og Þór Saari lagt fram bókanir þar sem tildrög hópsins og vinnuaðferðir séu gagnrýndar, sem og þau efnisatriði sem hópurinn hefur unnið út frá. „Sá hópur fjögurra þingmanna sem hér leggur fram greinargerð sína hefur ekki hlotið umboð atvinnuvega- nefndar Alþingis né heldur þingflokka stjórnarflokkana til sinna starfa. Hópurinn er sjálfskipaður hluti nefndarmanna í atvinnuveganefnd sem fengið hefur samþykki forystumanna ríkisstjórnarinnar til þess að leita niðurstöðu sín á milli um fiskveiðistjórnunarfrumvarp atvinnuvegaráð- herra sem sátt geti náðst um,“ skrifar Ólína. Hún gagnrýnir 20 ára forgangsúthlutun 95% aflaheimilda til núverandi kvótahafa, takmarkanir á vaxtarmöguleikum leigupottsins við 20 þús. tonn og segir óviðunandi að í uppsjávar- og úthafsveiðum deilistofna „verði komið á samskonar gjafakvótakerfi og því sem viðgengist hefur í botn- fiskveiðum, eins og tillögur hópsins gera ráð fyrir“. Þá segir að „verði þær breytingar á fiskveiðistjórnunarfrumvarpinu sem fjórmenningarnir hafa drepið á er ljóst að upphaflegt markmið með frum- varpinu – um jafnræði, atvinnufrelsi og nýliðunarmöguleika – yrði að engu. Væri þá verr af stað farið en heima setið með mál þetta í heild sinni.“ Mótfallin og óbundin af áliti hópsins Á fundi atvinnuveganefndar í gær mótmælti Þór Saari harðlega vinnubrögðum formanns hópsins „sem hefur tekið að sér að stýra fundi hennar þrátt fyrir óafgreitt erindi til forsætisnefndar um vanhæfi hans sem for- manns vegna brots á samkomulagi formanna stjórn- málaflokkana um þinglok og kröfu um afsögn hans sem formanns nefndarinnar,“ segir í bókun Hreyfingarinnar um vinnubrögð í nefndinni. „Framganga formanns atvinnuveganefndar í þessu máli er Alþingi, atvinnuveganefnd og formanninum sjálfum til vansa og hann og þeir þrír þingmenn sem tóku þátt í þessari vinnu … eiga að biðja Alþingi opinberlega afsökunar á framkomu sinni í þessu máli,“ segir í bókuninni. Haft var eftir Birni Val Gíslasyni fyrir nokkru að Þór hefði lýst því yfir á fundi í sumarbyrjun að hann myndi ekki taka þátt í störfum hópsins enda teldi hann hópinn ekki hafa þinglegt umboð til að starfa. Björn Valur sagði einnig þá að það væri tæpast við hæfi að færa menn til fundar í böndum og gegn þeirra vilja. Framganga Alþingi til vansa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.