Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012 Nú er því miður ekk- ert hægt að sækja lengur til öryrkja og eldri borgara. Þá er nauðsynlegt að finna aðrar leiðir til skatt- heimtu eða nið- urskurðar. Hér kemur uppá- stunga um eina góða sem virkar og sparar ríkinu verulegar fjár- hæðir þegar til lengri tíma er litið. Öryrkjar sem eru í hjónabandi eða sambúð eru skertir um 15% af tekjum sínum miðað við einstakling sem er öryrki. Hér er tillaga sem miðar að því að skerða laun allra ríkisstarfsmanna, sem eru í sambúð eða hjónabandi eða bara búa með öðrum fullorðnum ein- staklingi, um 15%. Ríkisstarfsmenn eru um það bil 23.000 eða 12% þjóð- arinnar og af þeim áætlað að í hjóna- bandi eða sambúð séu um það bil 75%. Skerðum ríkisstarfsmenn, sem búa með öðrum fullorðnum, um 15% af launum þeirra. Hvað ætli sú að- gerð myndi spara ríkinu? Hvernig ætli ríkisstarfsmönnum litist á þá hugmynd? Í dag hafa hjón og sambúðarfólk sem eru öryrkjar tryggð laun sem eru kr. 174.946 fyrir hvort þeirra, fyrir skatt. Það gerir kr. 156.153 til að lifa af hvern mánuð. Neysluviðmið velferð- arráðuneytisins segir að ofangreint fólk þurfi kr. 161.137 á mann á mán- uði til að lifa af, húsnæð- iskostnaður er ekki í þeirri tölu. Við þetta má bæta að öryrkjar og eldri borgarar fá ekki nema lítið brot af kostn- aði greitt sem styrk/uppbót vegna kaupa á heyrnartækjum en þing- menn samþykktu í vor að þeir fengju sjálfir ókeypis heyrnartæki og gler- augu. Stoppum í fjárlagagatið Eftir Maríu Óskarsdóttur María Óskarsdóttir »Nú er því miður ekkert hægt að sækja lengur til öryrkja og eldri borgara. Þá er nauðsynlegt að finna aðrar leiðir til skattheimtu eða niðurskurðar. Höfundur er formaður Sjálfsbjargar á Húsavík og í Þingeyjarsýslum og er í kjarahóp ÖBÍ. Það syrtir jafnan að þegar ástvinur kveður. Ofan á sorgina og söknuðinn sem leggj- ast á sálina bætast oft áhyggjur af framtíð- inni, m.a. fjárhags- legar. Í samfélaginu hafa skapast hefðir um hvernig skuli standa að útför og þeim fylgir gjarna gífurlegur kostnaður sem reynist mörgum ofviða og veldur kvíða og erfiðleikum. Ég hef orðið vitni að innri átökum eftirlifenda milli þess að „gera vel“ við minningu hins látna og þess að sitja uppi með erfiðar skuldir. Ég hef líka líka orðið vitni að því þegar aðstandendur þurfa að velja milli þess sem þeir álíta að hafi ver- ið ósk hins látna og þess sem aðrir vinir og ættingjar búast við eða ætl- ast til varðandi útförina. Það er ekki svo einfalt að brjóta á bak aftur hefðir þegar andlát ber að höndum. Sorg og söknuður og væntingar samfélagsins gera það erfitt að beita skynseminni eða fara óhefðbundnar leiðir þegar um hinstu kveðju er að ræða. Og tilheyrandi Flestir leita til útfararstofu þegar ástvinur deyr, enda auðveldar það erfiða ferð um ókunna stigu. Útfar- arstofur og -þjónustur eru margar og ekki um sömu þjónustu né kostn- að að ræða alls staðar. Þess má þó geta að viss lög gilda um hinn tæknilega þátt útfara, sbr. greftrun og bálför og um það stendur ekkert val. Hin hefðbundna útför miðast við að hinn látni sé jarðsettur eða brenndur í þartilgerðri líkkistu sem kostar liðlega hundrað og allt á þriðja hundrað þúsund krónur. Í kistuna er einnig í boði ýmis um- búnaður s.s. vandaðar fóðringar, sæng, koddi, klútur og líkklæði. Ef lík er brennt þarf einnig að kaupa duftker. Til að gera umhverfi útfararinnar sem glæsilegast eru í boði blóma- skreytingar á kistuna sjálfa og á alt- ari í kirkju. Fallegur söngur þykir prýða og við allflestar athafnir eru aðkeypt tónlistaratriði með hljóðfæraleik og söng. Í boði er einnig að láta gera vandaða sálma- skrá sem dreift er meðal gesta. Þá gerir hefðin ráð fyrir að tilkynnt sé um andlát og útför með til- heyrandi auglýsingum í útvarpi og blöðum og að í framhaldi sé erfi- drykkja þar sem öllum athafnargestum er boðið til kaffi- hlaðborðs sem helst þarf að svigna undan kræsingum. Ekki er óalgengt að leigður sé salur undir erfidrykkjur og við það bætist kostnaður við veitingarnar sjálfar, laun starfsmanns og oft ein- hver kostnaður við skreytingar. Ef hinn látni hefur verið vinmargur, ættstór eða opinber persóna hleyp- ur kostnaður af slíkri erfidrykkju á hundruðum þúsunda króna. Að lokum þarf að merkja leiðið og bætist þar við kostnaður við leg- stein eða annars konar minn- ismerki. Það gefur auga leið að hefðbundin útför er ekki aðeins óyfirstíganlegur kostnaður fyrir marga, heldur getur einnig strítt gegn vilja og sannfær- ingu hins látna og eftirlifenda hans. Gerviþarfir og efnishyggja Því miður get ég ekki litið á þessa hefð öðruvísi en sem óskapnað efn- ishyggjunnar. Hér er einfaldlega búið að gera „eins dauða að annars brauði“ og smyrja þá sneið ríkulega. Er ekki löngu kominn tími til að hugsa sinn gang og spyrja sig hvort þjónkun við gegndarlaust prjál og sölu- mennsku sé það sem við viljum láta einkenna okkar hinstu kveðju? Og margar spurningar vakna: Hvers vegna þarf líkkista að kosta 100-250.000 krónur? Hvers vegna brennum við rán- dýrar kistur við líkbrennslur? Væri ekki nóg að brenna botninn, en end- urnýta lok og hliðar hennar? Eru umbúnaðurinn og skreyting- arnar endilega nauðsynlegar eða viðeigandi? Hvers vegna þarf líkklæði og annan umbúnað í kistu þegar hinn látni á fatnað og annað sem þarf til hinstu fararinnar? Er ekki alveg nóg að bjóða kaffi, te, vatn og e.t.v. gosdrykki þar sem ættingjar eru aðeins komnir til að votta virðingu sína og minnast? Mörgum finnst það vinalegur sið- ur að ættingjar hittist eftir útför en í sumum tilfellum vilja nánustu ætt- ingjar fá að hittast einir við slík tækifæri og það á að vera jafn sjálf- sagt. Að ósk Það verður æ algengara að full- orðið fólk hafi mótað sér skoðun á því hvernig það vill vera kvatt og setji fram óskir um það við sína nánustu. Í öllum tilfellum sem ég þekki hafa þessar óskir miðast við að minnka tilstandið, kostnaðinn og mannfjöldann við útför. Hvað er það sem mestu máli skiptir við þessa dýrmætu kveðju- stund? Er það aðkeyptur umbúnaður, dýrar og mannmargar veislur eða tilfinningaleg úrvinnsla þeirra sem eftir lifa? Öll höfum við ólíkar skoðanir á líf- inu og tilverunni, mismunandi trú og persónulegt mat á því hvað skiptir mestu máli. Við eigum öll rétt á að þær skoðanir séu virtar, einnig við dauðann. Enginn skyldi láta efnishyggju og sölumennsku móta það hvernig hann kýs að kveðja við andlát, hvorki sitt eigið né ástvinanna. Ég hvet alla til að endurskoða þessar hefðir út frá eigin for- sendum, hugsa málið og þora að taka sjálfstæðar ákvarðanir ef efn- ishyggjan og yfirborðsmennskan gengur fram af þeim. Bestu og inni- legustu kveðjustundir sem ég hef orðið vitni að eru þær athafnir sem ættingjarnir hafa sjálfir af ást og virðingu mótað að ósk hins látna og í samræmi við eigin tilfinningar. „Hefðbundin“ útför Eftir Jóhanna Harðardóttir » Það ekki einfalt að brjóta hefðir á bak aftur þegar andlát ber að höndum. Jóhanna Harðardóttir Höfundur er blaðamaður og Kjalnesingagoði. þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335 caruso.is · caruso@caruso.is við Erum líka á facebook Á fimmtudagskvöldum í nóv. og des. ætlar hinn frábæri tónlistamaður Eyjólfur Kristjánsson að spila öll sín bestu lög í bland við sérvaldar perlur. Kósýkvöldin hafa verið gríðarlega vinsæl undanfarin ár og því bendum við á að panta tímanlega. Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi Suðrænn og seiðandi Rómantískur og hlýlegur veitingastaður á þremur hæðum í miðbæ Reykjavíkur Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.