Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012 Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart- ansson hlaut Sjónlistaorðu Íslensku sjónlistaverðlaunanna í gærkvöld en þau voru síðast veitt árið 2008. Verðlaunin voru afhent við hátíð- lega athöfn, Sjónlist 2012, í menn- ingarhúsinu Hofi á Akureyri. Auk Ragnars voru tilnefnd til orðunnar þau Ásmundur Ásmundsson fyrir sýninguna Hola í Listasafni Reykja- víkur – Hafnarhúsi árið 2009 og Katrín Sigurðardóttir fyrir sýn- inguna Katrin Sigurdardottir at the Met sem haldin var á Metropolitan- safninu í New York, 2010-2011. Orðuna hlaut Ragnar fyrir sýning- arnar The End, framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2009; Bliss á Performa-hátíðinni í New York, 2011 og Song í Carnegie- safninu í Pittsburgh árið 2011. Hildur Hákonardóttir er heiðurs- listamaður verðlaunanna í ár og Spíruna 2012 hlýtur Jeanette Cas- tioni frá Ítalíu, heiðursverðlaun ætluð listamanni af yngri kynslóð íslenskra listamanna. Íslensku sjónlistaverðlaunin voru fyrst veitt árið 2006, að frumkvæði Hannesar Sigurðssonar, forstöðu- manns Listasafnsins á Akureyri. Þau voru veitt næstu tvö ár, 2007 og 2008, en voru eftir það lögð nið- ur vegna fjárskorts. Sjónlistamiðstöðin á Akureyri end- urreisti svo verðlaunin í ár. Dómnefnd verðlaunanna í ár skipuðu Kristín Dagmar Jóhann- esdóttir, formaður hennar og list- fræðingur, fyrir hönd Listfræða- félags Íslands; Hildur Bjarndóttir myndlistarmaður fyrir hönd Lista- háskóla Íslands og Hlynur Hallsson myndlistarmaður fyrir hönd Sam- bands íslenskra myndlistarmanna. Sýning á verkum Ragnars, Ás- mundar, Katrínar, Hildar og Cas- tioni verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á morgun, laugardaginn 15. september, kl. 15. Morgunblaðið/Ernir Orðuhafinn Ragnar Kjartansson hlaut Sjónlistaorðuna 2012. Ragnar hlaut Sjónlistaorðuna  Sjónlistaverðlaunin afhent í gær Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Húðflúrað fólk verður áberandi í Súlnasal Hótels Sögu um helgina því þá fer fram húðflúrsráðstefna, Ice- landic Tattoo Expo. Ráðstefnan hefst í dag kl. 15 og stendur út sunnudag. Ráðstefna þessi er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi, 45 listamenn sækja hana, 35 erlendir og tíu ís- lenskir og hafa flestir þeirra hlotið verðlaun fyrir verk sín. Af forvitnilegum viðburðum ráð- stefnunnar má nefna að einn flúr- aðasti maður heims, Lizardman eða Eðlumaðurinn, mun bjóða upp á sk. „freak show“, viðundurssýningu á sjálfum sér. Eðlumaðurinn er þak- inn flúri í líki hreisturs og með klofna tungu, svo eitthvað sé nefnt. Ólíkar ástæður Einn hinna íslensku flúrlista- manna er Fjölnir Bragason en hann hefur stundað húðflúrslistina um árabil og sér jafnframt um kynning- armál ráðstefnunnar. Fjölnir segir þetta tiltekna listform afar fjöl- breytt og margskipt eins og gestir muni sjá á ráðstefnunni. „Hvert vel gert flúr sem fer héðan út er svo áhrifamikið, fólk heillast af þessu og vill koma og fá sér líka,“ segir Fjölnir um listformið. „Ástæð- urnar fyrir því að menn fá sér flúr geta verið svo margar; menn geta verið að ljúka sorgarferli, fagna áfanga, skreyta sig, vera flottir, allt mögulegt,“ segir Fjölnir. Húðflúr sé ákveðinn kúltúr. Víkingaflúrarar og handstunga Hægt verður að panta sér flúr hjá listamönnunum á ráðstefnunni. En hvernig skyldi húðflúrsráðstefna fara fram? „Við erum með tattóverara og hver sérhæfir sig í sínu. Við erum t.d. með tvo víkingaflúrara sem klæða sig eins og víkingar og lifa í þessum víkingaheimi, ferðast milli víkingasýninga og handstinga bara með nálum,“ nefnir Fjölnir. Fleiri listamenn beiti handstungu á ráð- stefnunni, hinni upphaflegu aðferð húðflúrslistarinnar. „Svo kemur einn taílenskur sem stingur upp á taílenska vísu og þá eru engar vélar, þetta er bara eins og hefur verið gert um aldaraðir.“ Af öðru forvitnilegu sem fyrir augu mun bera um helgina má nefna leiksýningu um húðflúrsmenningu Japana og húðflúrskeppnir sem öll- um er frjálst að taka þátt í sem bera á húð sinni flúr. Eðlumaður og fagurlega skreyttir skrokkar  Húðflúrsráðstefna verður haldin um helgina á Hótel Sögu Flúraðir Fjölnir með Lizardman í Gautaborg árið 2008. Eðlumaðurinn mun sýna sig á ráðstefnunni í Súlnasal en hann er heldur óvenjulegur útlits. Frekari upplýsingar má finna á icelandictattooexpo.com og á fa- cebook.com/IcelandicTattooExpo. Liðsmenn hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, þau Nanna, Raggi, Arnar, Brynjar, Árni og Kristján verða viðmælendur Ragn- hildar Steinunnar Jónsdóttur í fyrsta þætti þáttaraðarinnar Ís- þjóðin sem sýndur verður sunnu- dagskvöldið 16. september. Ragnhildur Steinunn hitti hljóm- sveitina þegar hún var á tónleika- ferðalagi um Bretland og munu áhorfendur verða margs fróðari eftir þáttinn um liðsmenn hennar. Af öðrum þáttum Ísþjóðarinnar má nefna að snjóbrettakappinn Halldór Helgason verður sóttur heim, Kári Steinn Karlsson mara- þonhlaupari og Hera Hilmarsdóttir leikkona sem hefur m.a. leikið með sjarmatröllinu Jude Law. Of Monsters and Men í Ísþjóðinni Ísþjóð Ragnhildur Steinunn. RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 2D Sýnd kl. 8 - 10 THE BOURNE LEGACY Sýnd kl. 7 - 10 THE EXPENDABLES 2 Sýnd kl. 5:50- 10:20 ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 4 INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 5:50 - 8 PARANORMAN 3D Sýnd kl. 4 LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÍSL TEXTI 60.000 MANNS! -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU 7 12 L 16 16 16 HÖRKU SPENNUMYNDTRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS HEILNÆMT FJÖR FYRIR ÞAU YNGSTU -H.V.A., FBL RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 2D KL. 5.50 -8 - 10.10 16 RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 3D KL. 10.20 16 THE BOURNE LEGACY KL. 8 - 10.45 16 THE BOURNE LEGACY LÚXUS KL. 10.20 16 ÁVAXTAKARFAN KL. 4 - 6 L THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 THE EXPENDABLES 2 LÚXUS KL. 5.40 - 8 16 THE WATCH KL. 5.40 - 8 12 PARANORMAN 2D KL. 3.30 7 ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 3D KL. 8 - 10.10 16 SVANAVATNIÐ 3D KL. 7 L THE BOURNE LEGACY KL. 10.30 16 ÁVAXTAKARFAN KL. 6 L THE EXPENDABLES 2 KL. 10.30 16 TO ROME WITH LOVE KL. 5.30 - 8 L INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 L RESIDENT EVIL: RETRIBUTION KL. 6 - 8 - 10 16 THE BOURNE LEGACY KL. 10 16 THE EXPENDABLES 2 KL. 8 12 ÁVAXTAKARFAN KL. 6 L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.