Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 258. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Dó standandi á höndum 2. Heppinn að vera á lífi 3. Aldrei vitað annað eins 4. Rætur harmleiksins í Bretlandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Breiðskífa hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, My Head Is An Animal, hefur setið í 18 vikur í 1. sæti Tónlistans íslenska, þ.e. lista yfir mest seldu plötur landsins og er það lengsta seta hljómplötu í því sæti frá því farið var að birta listann. OMAM slær met á Tónlistanum  Dansararnir og danshöfundarnir Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir sýna um helgina verkið Glymskrattann í Kutomo-leik- húsinu í Turku í Finnlandi. Kutomo er vettvangur fyrir unga danshöfunda til að koma sér á framfæri. Verkið var frumsýnt í maí síðastliðnum á Listahátíð í Reykjavík. Glymskrattinn í leikhúsinu Kutomo  Söngtónleikar til heiðurs tónskáld- inu Jóni Þórarinssyni, sem lést 12. febrúar sl., verða haldnir í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn, 16. september, kl. 16. Söngvararnir Auður Gunnarsdóttir, Berg- þór Pálsson, og Gunn- ar Guðbjörnsson munu flytja lög Jóns ásamt píanóleik- aranum Jónasi Ingimund- arsyni. Tónleikur til heiðurs Jóni Þórarinssyni Á laugardag Norðlæg átt, 5-10 m/s, en V-lægari S-lands fram eftir degi. Rigning með köflum víða um land. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast SA- til, en svalast N-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og rign- ing eða súld í flestum landshlutum. Hvessir lítillega á V-verðu land- inu seinnipartinn. Hiti yfirleitt á bilinu 2 til 10 stig, mildast syðst. VEÐUR Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson, leikmenn norska 1. deildar liðsins Start, vilja vera áfram hjá liðinu sem stefnir hraðbyri upp í úrvalsdeild- ina. Leikmennirnir eru í láni frá FH og Breiðabliki en Start hefur forkaupsrétt á þeim og hefur þjálfari liðs- ins hrósað þeim báðum í há- stert. Start vill semja við þá báða en Matthías er marka- hæstur í deildinni. »2 Vilja vera áfram hjá Start í Noregi Katrín Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, segir að landsliðið muni leggja allt í sölurnar á morgun til að sigra Norður-Írland á Laugardalsvell- inum. Með sigri yrði ís- lenska liðið í góðri stöðu fyrir hreinan úrslitaleik í Noregi í næstu viku. „Það er auðvitað draum- urinn að komast í loka- keppnina og gera betur en síðast. En við getum ekki hugsað um það strax,“ segir Katrín. »3 Leggja allt í sölurnar gegn Norður-Írum Handknattleiksvertíðin hefst fyrir al- vöru í kvöld þegar Haukar taka á móti Mojkovac frá Svartfjallalandi í EHF- bikar karla á Ásvöllum klukkan 18. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að þeir renni frekar blint í sjó- inn gegn mótherjum sínum og erfitt sé að meta styrk þeirra, en báðir leik- ir liðanna fara fram hér á landi. »4 Haukar mæta Svartfell- ingum á Ásvöllum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Það er yfirleitt mikil gleði á þess- um árstíma í sveitinni en það er annað núna,“ segir Guðmundur Jónsson, fjárbóndi í Fagraneskoti í Suður-Þingeyjarsýslu. Hjá bændum á Norðausturlandi fer lítið fyrir þeirri gleðilegu uppskerustemningu sem er yfirleitt til sveita á haustin. Guðmundur segir að í venjulegu ár- ferði hefðu fjallmenn lagt af stað í leitir í gær og svo átti að rétta í Hraunsrétt á sunnudaginn. Leit- irnar eru öðruvísi þetta árið, snúast um að grafa féð úr fönn í kapp við tímann og aðeins er hægt að kom- ast um á vélsleðum og stórum jepp- um. Réttardagsetning helst þó að sögn Guðmundar því draga þarf það fé í sundur sem hefur fundist. „Eins og staðan er núna er stefnt að því að rétta á sunnudaginn. Féð verður mun færra og stemningin önnur en það verður að draga það í sundur sem hefur fundist í snjón- um.“ Snjórinn erfiður yfirferðar Guðmundur er með um 450 vetr- arfóðraðar kindur. Allt hans fé, full- orðið ásamt lömbum, var úti á Þeistareykjum og Reykjaheiði þeg- ar fárviðrið gekk yfir á mánudag- inn. Hann hefur staðið í ströngu alla vikuna við að leita að bústofni sínum. Leitin hefur gengið ágæt- lega að hans sögn en verið mjög seinleg, enda snjórinn gríðarlegur. Þegar haft var samband við Guð- mund um miðjan dag í gær var rigning á svæðinu og snjórinn farinn að setj- ast svo það var miklu erfiðara að ganga í hon- um en dagana áður. Guðmundur hafði farið af stað klukkan átta um morguninn að leita að fé og ætlaði að vera fram að mið- nætti eins og önnur kvöld. „Við reynum bara að bjarga því sem við sjáum. Það sem við finnum er lifandi en það eru svo miklar fannir að það gætu verið margar kindur undir.“ Heimturnar eftir að koma í ljós Guðmundur getur ekki sagt um það á þessu stigi hvað margt af hans fé hefur fundist eða farist. „Það kemur eiginlega ekki í ljós fyrr en eftir helgi. Það er leiðinda- veðurspá eftir helgi og við ætlum að berjast við að ná þessu saman eins og við getum fram á sunnudag og þá kemur í ljós hverjar heimturnar eru. Gróflega áætlað tel ég að ég fái ekki nema ¾ af mínu fé,“ segir Guð- mundur. Berst við að bjarga bústofninum  Guðmundur bóndi var með allt sitt fé á afrétti Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fannfergi Guðmundur Jónsson frá Fagraneskoti gaf því fé sem smalað var í girðingu við Þeistareyki heyrúllu á miðvikudaginn. Allt hans fé, 450 ær ásamt lömbum, var á afrétti þegar óveðrið gekk yfir á mánudaginn. Ljóst er að tilfinningalegt og fjár- hagslegt tjón bænda á svæðinu er mikið. Guðmundur segir menn þó ekkert vera að barma sér, enginn hafi tíma til að hugsa út í það. „Ætli það komi ekki seinna. Menn eru að keppast við tímann og reyna að ná sem flestu fé fyrir helgina.“ Bændur á þessu svæði hafa fengið slæm kuldaköst undanfarin vor og nú kemur ótímabært haustillviðri. „Það hefur verið erfið tíð og mjög erfitt í búskapnum. Svo er umræð- an í þjóðfélaginu okkur ekki hlið- holl oft og tíðum. Það er margt erfitt við þetta en ég finn ekki að það sé uppgjafartónn í bændum.“ Guðmundur var nýbúinn að fara um afréttinn og segir hann hafa verið gríðarlega fallegan og lömbin væn. „Þetta leit allt vel út.“ Enginn tími til að barma sér AFRÉTTURINN VAR FALLEGUR OG LÖMBIN VÆN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.