Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012 Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt! Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er mjög óvenjulegt, svona mikill snjór og svona snemma,“ segir Páll Bergþórsson, fyrrv. veð- urstofustjóri, um norðanhretið sem gerði á Norður- og Norðaustur- landi í vikunni, og olli bændum og búfénaði, RA- RIK, Landsneti og fleiri aðilum miklu tjóni. „Það er rétt sem bændurnir segja að þeir hafi sjaldan kynnst öðru eins. Áhlaupið kemur sér sér- staklega illa þegar svona mikið af lömbum er enn í haga og ekki komið í sláturhús,“ segir Páll en bendir á að veðrið hafi verið fyr- irsjáanlegt. Strax 3. september sl. hafi tíu daga spár bent til þessa og spárnar styrkst eftir því sem nær dró. Nokkrum dögum áður en óveðrið gekk yfir benti Páll á fas- bókarsíðu sinni á að norðanhret væri í aðsigi. Gott framundan? Hann vill ekki ganga svo langt og segja eftir á, að bændur norð- anlands hefðu mátt búa sig betur undir áhlaupið. Ekki sé alltaf hægt að treysta á veður- spárnar, og eðlilegt að menn taki ekki alltaf mark á þeim, þó að þær séu orðnar „býsna góðar“ eins og hann orðar það. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við verðum að hafa rafmagn. Það skapast fljótt neyðarástand ef við missum það,“ segir Benedikt Krist- jánsson, stöðvarstjóri fiskeldisstöðv- arinnar Silfurstjörnunnar í Öxar- firði. Þar hefur verið straumlaust frá samveitu frá því á mánudag en ljósa- vélar fyrirtækisins hafa verið keyrð- ar á meðan og því hefur ekkert tjón orðið á eldisfiski. Um 700 tonn af fiski eru í kvíum stöðvarinnar, mest lax, eða um 450 þúsund fiskar. Eldisfiskurinn fær súrefni í gegnum vatnið og er raf- magn notað til að dæla. Er því nauð- synlegt að hafa varaafl tiltækt ef Kópaskerslína dettur út. Annars drepst fiskurinn. Ljósavélarnar eiga að fara sjálfkrafa í gang ef rafmagn- ið fer af. „Á meðan þær ganga gerist ekkert hjá okkur. Svo eigum við von á að fá rafmagn aftur í dag [í gær],“ segir Benedikt. Hann segir að óvenjulegt sé orðið að fá svona langvarandi rafmagns- leysi. Rifjar þó upp að 1995 hafi verið rafmagnslaust í tæpa viku. Sóttu fé á Seljaheiði Benedikt er með sauðfjárbúskap á Þverá í Öxarfirði og deilir því áhyggjum sauðfjárbænda vegna kindanna sem voru á heiðum þegar óveðrið skall á. „Ég held að þetta hafi sloppið að mestu hjá okkur. Við fórum á Seljaheiði í gær og fluttum heim á vögnum á annað þúsund fjár. Aðalvandamálið var að komast þang- að en við fengum mokað austur á heiðina. „Ég veit ekki til þess að neitt hafi farist á okkar smalasvæði,“ segir Benedikt. helgi@mbl.is Ljósavélarnar björguðu 450 þúsund fiskum  Ekki varð tjón hjá Silfurstjörnunni  Telur að fé sitt hafi sloppið að mestu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Súrefni Ef ekki hefði verið fyrir varaaflið hefði fiskurinn drepist. Fiskur í kvíum » Um 700 tonn af fiski eru í kvíum stöðvarinnar. » Von var á að rafmagn kæm- ist aftur á í dag. » Langt er síðan rafmagns- laust var svo lengi. Trausti Jónsson veðurfræðingur rifjar á bloggsíðu sinni (trj.blog.is) upp fréttir af hríðarveðri hér á landi í lok ágúst árið 1971. Þá urðu miklir skað- ar í norðanáhlaupi, einkum norðaustanlands. Ríflega 4.000 fjár drápust og mest varð tjónið í Vopnafirði. Slydduísing hlóðst á rafmagnsstaura og víða varð rafmagnslaust á Norðausturlandi. Fjallvegir urðu ófærir og ferðamenn lentu í hrakningum. Þá féllu skriður á vegi á Austurlandi og snjó festi á sjö veðurstöðvum. „Eitthvað kunn- uglegt? En harla óvenjulegt bæði nú og þá, því er ekki að neita,“ ritar Trausti á vef sínum. Þar rifjar hann einnig upp ársgamlan pistil um hvenær fyrst varð alhvít jörð á Akureyri og í Reykja- vík. Á árunum 1965-2011 varð fyrst alhvítt á Akureyri 18. september 2003 og á sama tíma varð hvít jörð aðeins fimm sinnum í september. Frá 1961-2011 í Reykjavík varð fyrst alhvít jörð 30. september árið 1969. Ríflega 4.000 fjár drápust TRAUSTI RIFJAR UPP NORÐANÁHLAUP Í LOK ÁGÚST 1971 Trausti Jónsson Það hefur verið kallað haustkálf- ur, þegar hret skellur á svona snemma að hausti eins og í byrjun vikunnar, og það geti verið ávísun á góða haustdaga framundan. Páll kannast við þessa fornu speki og segir ágæta möguleika á því að næstu vikur verði hagstæðar. Möguleiki á góðum vetri sé jafn- framt meiri en oft áður. Víxlverkun í gangi „Við erum í mjög góðu loftslagi núna og höfum verið undanfarin 12 ár. Margir tala um að þessi hlýindi séu örugg sönnun fyrir hlýnun jarðar en það þýðir ekki að þetta haldi stanslaust áfram. Síðustu 100 árin hafa komið á víxl 30 til 40 ára hlýindaskeið og síðan álíka löng kuldaskeið. Við erum núna á miðju hlýindaskeiði og þessi vegna gæti farið að kólna hér á næstu árum,“ segir Páll en telur að næsta kulda- skeið verði hlýrra en það síðasta og það geti komið til af hlýnun jarðar. Hann segir hlýnun og kólnun gerast af sjálfu sér. „Það er víxl- verkun á milli hafíssins og sólar- geislunarinnar og gerist þannig að ef hafísinn eykst dálítið þá eykst hvíta svæðið sem endurkastar geisluninni. Þá verður kólnun og sú kólnun eykur aftur ísinn og sú aukning veldur aftur meira tapi á geisluninni. Þannig verkar þetta ár eftir ár og jafnvel áratugi. Síðan hefur þetta snúist við og það er al- veg sérstakt fyrirbæri,“ segir Páll og bætir við að þessu hafi verið lít- ill gaumur gefinn í umræðu um loftslagsmálin. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Norðanhret Bændur og sjálfboðaliðar hjálpast að við að koma heyi á snævi þakta haga á Þeistareykjum. Óvenjulegt norðan- hret en fyrirsjáanlegt  Enn möguleiki á góðum vetri, segir Páll Bergþórsson Páll Bergþórsson Leit að týndu fé á Þeistareykjasvæð- inu gekk sæmilega vel í gær, að sögn Svavars Pálssonar, sýslumanns á Húsavík og yfirmanns almanna- varna í Þingeyjarsýslu. Um 200-250 manns voru við leitina. Þungbúið var og úrkoma á köflum. Búið er að gróf- leita svæðið og fínkemba að hluta. Leit verður haldið áfram í dag. Fénu hefur verið safnað í tvö að- höld á heiðinni og hefur reynst tíma- frekt að koma því yfir ófærurnar, bæði er landið hrjóstrugt og víða mikill snjór eða skaflar. Sennilega verður ekki farið að flytja féð til byggða fyrr en á morgun, að mati Svavars. Lítið var grafið eftir fé í gær og fannst ekkert dautt. Formlegri leit á öðrum svæðum, svo sem Flateyjardal, Skarðsdal, Kelduhverfi og fremsta hluta Fnjóskadals er lokið. Bændur og búalið munu þó áfram leita á þessum svæðum á meðan enn vantar fé. Ákveðið var að þeir sem hafa verið við leit frá því í byrjun vikunnar fái að hvíla sig í dag, enda orðnir lang- þreyttir. Björgunarsveitarmenn sem komu síðar til leitar munu halda leit- inni áfram. gudni@mbl.is Áfram leitað í fönninni  Líklega verður byrjað að flytja fé af Þeistareykjasvæðinu til byggða á morgun  Talsmaður sauðfjárbænda óttast að gríðarmikill fjárfellir hafi orðið í óveðrinu Ljósmynd/Hreinn Hjartarson Rekstur Fé var rekið saman á Reykjaheiði, rétt norðan Þeistareykja, í gær. Neyðarástand í kjölfar óveðurs „Menn óttast að það hafi orðið æv- intýralega mikið tjón,“ sagði Þór- arinn Pétursson, bóndi og formað- ur Landssamtaka sauðfjárbænda. Hann óttaðist að margt fé hefði tap- ast á Þeistareykjum, Mývatnsheiði og Reykjaheiði. Þórarinn hafði heyrt af stóru fjárbúi þar sem ein- ungis var búið að finna 30% fjárins. „Tíminn líður og útlitið fer að verða nokkuð svart. Það er hell- ingur undir fönn ennþá,“ sagði Þór- arinn. „Aðalmálið nú er hvernig tekið verður á þessu varðandi bætur fyr- ir þessa bændur. Sumir horfa fram á að tekjurnar þeirra séu horfnar og var kannski ekki af miklu að taka hjá mörgum.“ „Óttast að það hafi orðið ævintýralega mikið tjón“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.