Morgunblaðið - 14.09.2012, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Nú er því miður ekk-
ert hægt að sækja
lengur til öryrkja og
eldri borgara. Þá er
nauðsynlegt að finna
aðrar leiðir til skatt-
heimtu eða nið-
urskurðar.
Hér kemur uppá-
stunga um eina góða
sem virkar og sparar
ríkinu verulegar fjár-
hæðir þegar til lengri tíma er litið.
Öryrkjar sem eru í hjónabandi eða
sambúð eru skertir um 15% af
tekjum sínum miðað við einstakling
sem er öryrki.
Hér er tillaga sem miðar að því að
skerða laun allra ríkisstarfsmanna,
sem eru í sambúð eða hjónabandi eða
bara búa með öðrum fullorðnum ein-
staklingi, um 15%. Ríkisstarfsmenn
eru um það bil 23.000 eða 12% þjóð-
arinnar og af þeim áætlað að í hjóna-
bandi eða sambúð séu um það bil
75%. Skerðum ríkisstarfsmenn, sem
búa með öðrum fullorðnum, um 15%
af launum þeirra. Hvað ætli sú að-
gerð myndi spara ríkinu? Hvernig
ætli ríkisstarfsmönnum litist á þá
hugmynd?
Í dag hafa hjón og sambúðarfólk
sem eru öryrkjar tryggð laun sem
eru kr. 174.946 fyrir
hvort þeirra, fyrir skatt.
Það gerir kr. 156.153 til
að lifa af hvern mánuð.
Neysluviðmið velferð-
arráðuneytisins segir að
ofangreint fólk þurfi kr.
161.137 á mann á mán-
uði til að lifa af, húsnæð-
iskostnaður er ekki í
þeirri tölu. Við þetta má
bæta að öryrkjar og
eldri borgarar fá ekki
nema lítið brot af kostn-
aði greitt sem styrk/uppbót vegna
kaupa á heyrnartækjum en þing-
menn samþykktu í vor að þeir fengju
sjálfir ókeypis heyrnartæki og gler-
augu.
Stoppum í
fjárlagagatið
Eftir Maríu
Óskarsdóttur
María Óskarsdóttir
»Nú er því miður
ekkert hægt að
sækja lengur til öryrkja
og eldri borgara. Þá
er nauðsynlegt að
finna aðrar leiðir
til skattheimtu
eða niðurskurðar.
Höfundur er formaður Sjálfsbjargar
á Húsavík og í Þingeyjarsýslum
og er í kjarahóp ÖBÍ.
Það syrtir jafnan að
þegar ástvinur kveður.
Ofan á sorgina og
söknuðinn sem leggj-
ast á sálina bætast oft
áhyggjur af framtíð-
inni, m.a. fjárhags-
legar.
Í samfélaginu hafa
skapast hefðir um
hvernig skuli standa
að útför og þeim fylgir
gjarna gífurlegur kostnaður sem
reynist mörgum ofviða og veldur
kvíða og erfiðleikum.
Ég hef orðið vitni að innri átökum
eftirlifenda milli þess að „gera vel“
við minningu hins látna og þess að
sitja uppi með erfiðar skuldir.
Ég hef líka líka orðið vitni að því
þegar aðstandendur þurfa að velja
milli þess sem þeir álíta að hafi ver-
ið ósk hins látna og þess sem aðrir
vinir og ættingjar búast við eða ætl-
ast til varðandi útförina.
Það er ekki svo einfalt að brjóta á
bak aftur hefðir þegar andlát ber að
höndum. Sorg og söknuður og
væntingar samfélagsins gera það
erfitt að beita skynseminni eða fara
óhefðbundnar leiðir þegar um
hinstu kveðju er að ræða.
Og tilheyrandi
Flestir leita til útfararstofu þegar
ástvinur deyr, enda auðveldar það
erfiða ferð um ókunna stigu. Útfar-
arstofur og -þjónustur eru margar
og ekki um sömu þjónustu né kostn-
að að ræða alls staðar. Þess má þó
geta að viss lög gilda um hinn
tæknilega þátt útfara, sbr. greftrun
og bálför og um það stendur ekkert
val.
Hin hefðbundna útför miðast við
að hinn látni sé jarðsettur eða
brenndur í þartilgerðri líkkistu sem
kostar liðlega hundrað og allt á
þriðja hundrað þúsund krónur. Í
kistuna er einnig í boði ýmis um-
búnaður s.s. vandaðar fóðringar,
sæng, koddi, klútur og líkklæði. Ef
lík er brennt þarf einnig að kaupa
duftker.
Til að gera umhverfi útfararinnar
sem glæsilegast eru í boði blóma-
skreytingar á kistuna sjálfa og á alt-
ari í kirkju. Fallegur söngur þykir
prýða og við allflestar
athafnir eru aðkeypt
tónlistaratriði með
hljóðfæraleik og söng.
Í boði er einnig að láta
gera vandaða sálma-
skrá sem dreift er
meðal gesta.
Þá gerir hefðin ráð
fyrir að tilkynnt sé um
andlát og útför með til-
heyrandi auglýsingum
í útvarpi og blöðum og
að í framhaldi sé erfi-
drykkja þar sem öllum
athafnargestum er boðið til kaffi-
hlaðborðs sem helst þarf að svigna
undan kræsingum.
Ekki er óalgengt að leigður sé
salur undir erfidrykkjur og við það
bætist kostnaður við veitingarnar
sjálfar, laun starfsmanns og oft ein-
hver kostnaður við skreytingar. Ef
hinn látni hefur verið vinmargur,
ættstór eða opinber persóna hleyp-
ur kostnaður af slíkri erfidrykkju á
hundruðum þúsunda króna.
Að lokum þarf að merkja leiðið og
bætist þar við kostnaður við leg-
stein eða annars konar minn-
ismerki.
Það gefur auga leið að hefðbundin
útför er ekki aðeins óyfirstíganlegur
kostnaður fyrir marga, heldur getur
einnig strítt gegn vilja og sannfær-
ingu hins látna og eftirlifenda hans.
Gerviþarfir og efnishyggja
Því miður get ég ekki litið á þessa
hefð öðruvísi en sem óskapnað efn-
ishyggjunnar.
Hér er einfaldlega búið að gera
„eins dauða að annars brauði“ og
smyrja þá sneið ríkulega. Er ekki
löngu kominn tími til að hugsa sinn
gang og spyrja sig hvort þjónkun
við gegndarlaust prjál og sölu-
mennsku sé það sem við viljum láta
einkenna okkar hinstu kveðju?
Og margar spurningar vakna:
Hvers vegna þarf líkkista að
kosta 100-250.000 krónur?
Hvers vegna brennum við rán-
dýrar kistur við líkbrennslur? Væri
ekki nóg að brenna botninn, en end-
urnýta lok og hliðar hennar?
Eru umbúnaðurinn og skreyting-
arnar endilega nauðsynlegar eða
viðeigandi?
Hvers vegna þarf líkklæði og
annan umbúnað í kistu þegar hinn
látni á fatnað og annað sem þarf til
hinstu fararinnar?
Er ekki alveg nóg að bjóða kaffi,
te, vatn og e.t.v. gosdrykki þar sem
ættingjar eru aðeins komnir til að
votta virðingu sína og minnast?
Mörgum finnst það vinalegur sið-
ur að ættingjar hittist eftir útför en
í sumum tilfellum vilja nánustu ætt-
ingjar fá að hittast einir við slík
tækifæri og það á að vera jafn sjálf-
sagt.
Að ósk
Það verður æ algengara að full-
orðið fólk hafi mótað sér skoðun á
því hvernig það vill vera kvatt og
setji fram óskir um það við sína
nánustu.
Í öllum tilfellum sem ég þekki
hafa þessar óskir miðast við að
minnka tilstandið, kostnaðinn og
mannfjöldann við útför.
Hvað er það sem mestu máli
skiptir við þessa dýrmætu kveðju-
stund?
Er það aðkeyptur umbúnaður,
dýrar og mannmargar veislur eða
tilfinningaleg úrvinnsla þeirra sem
eftir lifa?
Öll höfum við ólíkar skoðanir á líf-
inu og tilverunni, mismunandi trú
og persónulegt mat á því hvað
skiptir mestu máli. Við eigum öll
rétt á að þær skoðanir séu virtar,
einnig við dauðann. Enginn skyldi
láta efnishyggju og sölumennsku
móta það hvernig hann kýs að
kveðja við andlát, hvorki sitt eigið
né ástvinanna.
Ég hvet alla til að endurskoða
þessar hefðir út frá eigin for-
sendum, hugsa málið og þora að
taka sjálfstæðar ákvarðanir ef efn-
ishyggjan og yfirborðsmennskan
gengur fram af þeim. Bestu og inni-
legustu kveðjustundir sem ég hef
orðið vitni að eru þær athafnir sem
ættingjarnir hafa sjálfir af ást og
virðingu mótað að ósk hins látna og
í samræmi við eigin tilfinningar.
„Hefðbundin“ útför
Eftir Jóhanna
Harðardóttir » Það ekki einfalt
að brjóta hefðir
á bak aftur þegar
andlát ber að höndum.
Jóhanna Harðardóttir
Höfundur er blaðamaður
og Kjalnesingagoði.
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Á fimmtudagskvöldum í nóv. og des.
ætlar hinn frábæri tónlistamaður
Eyjólfur Kristjánsson að spila öll
sín bestu lög í bland við sérvaldar
perlur.
Kósýkvöldin hafa verið gríðarlega
vinsæl undanfarin ár og því bendum
við á að panta tímanlega.
Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi
Suðrænn
og seiðandi
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur
hæðum í miðbæ Reykjavíkur
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is