Morgunblaðið - 14.09.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Þarna hefur náðst sátt um veiga-
mikil atriði, en um önnur grund-
vallaratriði gat aldrei orðið sam-
komulag,“ segir Einar K.
Guðfinnsson, einn fjögurra þing-
manna í trúnaðarmannahópi
stjórnmálaflokkanna um kvóta-
frumvarp ríkisstjórnarinnar. Þann-
ig er samkomulag um að falla frá
ákvæði, sem var í lagafrumvarpi
um stjórn fiskveiða í fyrravetur,
um að banna framsal aflaheimilda
algerlega frá árinu 2032. „Í heild-
ina skiptir það mestu máli að í yf-
irlýsingu formanna stjórnarflokk-
anna skuldbinda þau sig til að
leggja frumvarpið fram með þeim
breytingum, sem við yrðum ásáttir
um,“ segir Einar.
Vísar hann þar til orða í yfirlýs-
ingu oddvita ríkisstjórnarinnar við
þinglok 18. júní þess efnis að „náist
samkomulag á þessum vettvangi
mun það verða lagt til grundvallar
framlagningu frumvarps um stjórn
fiskveiða af hálfu stjórnarflokk-
anna á nýju þingi í haust.“
Margvíslegar áherslur
og athugasemdir
Í yfirlýsingu oddvita ríkisstjórn-
arinnar segir að trúnaðarmanna-
hópur fulltrúa stjórnmálaflokk-
anna, sem hafi unnið með frumvarp
um stjórn fiskveiða muni halda
þeirri vinnu áfram og ljúka störf-
um með samantekt eða greinar-
gerð.
Í sameiginlegri greinargerð
starfshópsins, sem kynnt var á
fundi atvinnuveganefndar í gær, er
fjallað um álit hópsins á fyrirfram
skilgreindum deiluefnum og koma
þar fram margvíslegar athuga-
semdir og áherslur. Í starfshópn-
um voru Kristján Möller, Björn
Valur Gíslason, Einar K. Guðfinns-
son og Sigurður Ingi Jóhannsson.
Auk þeirra sitja í atvinnuvega-
nefnd þingsins Ólína Þorvarðar-
dóttir, Jón Gunnarsson, Lilja Raf-
ney Magnúsdóttir, Þór Saari og
Jónína Rós Guðmundsdóttir.
Einar K. Guðfinnsson segist
gera ágreining um veigamikil mál í
greinargerð starfshópsins og nefn-
ir fyrst andstöðu við hugmyndina
um kvótaþing eins og hún hafi ver-
ið sett fram. Hann segir of mikið
sett í pott 2 og leigupotturinn sem
þar sé að finna sé alltof stór. Auk
þess sem slíkt leigupottakerfi rík-
isins eigi ekki að vera í lögunum.
Einnig segir hann það sína skoð-
un að í frumvarpinu eigi að byggja
á samningaleið, en ekki veiðileyfa-
leið.
Skilgreint magn fer í flokk 2
Hins vegar hafi verið samkomu-
lag í starfshópnum um að falla frá
afnámi framsals eftir 20 ár eins og
áður er nefnt. Einnig var sátt um
að skilgreina skyldi ákveðið magn í
flokk 2 og það yrði sett í hlutdeild
þannig að magnið ykist með vax-
andi kvótum en minnkaði þegar
aflaheimildir yrðu minni. Í upp-
haflegu frumvarpi hafi verið marg-
vísleg ákvæði sem hefðu gert það
að verkum að potturinn gæti
stækkað verulega umfram þau 16,
18 og 20 þúsund tonn sem miðað
var við á ákveðnu árabili.
Einnig hafi nú verið fallið frá því
að þeir sem selja frá sér aflahlut-
deild greiddu 3% af sölukvótanum
til ríkisins og þessi hlutdeild færi í
flokk 2. Sömuleiðis væri fallið frá
svokallaðri stillimynd, sem hefði
einnig aukið heimildir í flokki 2.
Rækju- og skelbætur hafi átt að
falla alveg niður en samkomulag
hafi verið um að þær yrðu áfram.
Bundin af atriðum sem sátt var um
Trúnaðarmannahópur stjórnmálaflokka um stjórn fiskveiða hefur skilað niðurstöðum
Sátt um veigamikil atriði, en um önnur gat aldrei orðið samkomulag, segir Einar K. Guðfinnsson
Morgunblaðið/Ómar
Flotinn í Reykjavíkurhöfn Frumvarp um stjórnun fiskveiða verður væntanlega til umræðu á Alþingi á næstu vikum.
Einar K.
Guðfinnsson
Björn Valur
Gíslason
Kristján
Möller
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, vísar til föðurhúsanna
ásökunum um að trúnaðarmannahópur formanna stjórnmálaflokkanna
hafi verið sjálfskipaður. Slíkar yfirlýsingar séu byggðar á misskilningi því
formenn flokkanna hafi þvert á móti tilnefnt hver sinn fulltrúa. Í störfum
hópsins hafi verið unnið af mikilli trúmennsku og í samræmi við yfirlýs-
ingu oddvita ríkisstjórnarinnar.
Þar hafi nákvæmlega verið tíundað hver verkefni hópsins væru. Aðeins í
einu tilviki hefði verið brugðið út frá því, en hópurinn fór þess á leit við
sjávarútvegsráðherra í síðasta mánuði að gerð yrði fagleg og fræðileg út-
tekt á strandveiðum.
Atvinnuveganefnd hefði síðan fengið skýrslu um störf hópsins í gær-
morgun eða við fyrsta tækifæri. Kristján segist ekki hafa starfað í hópnum
sem formaður atvinnuveganefndar heldur hafi hann verið skipaður beint
af Jóhönnu Sigurðardóttur. Sérstakur formaður hafi ekki farið fyrir starf-
inu í trúnaðarmannahópnum.
Í skilabréfi hópsins til ráðherra komi fram skoðanir fjórmenninganna og
þær bindi hvorki aðra þingmenn né þingflokka. Það sé síðan ráðherra að
ákveða framhaldið.
Kristján segist ekki hafa miklar áhyggjur af bókun Þórs Saari og kvört-
un til forsætisnefndar. Þór hafi skrifað nefndinni bréf og sagt sig frá störf-
um hópsins. Skoðanir hans hafi komið fram á fundum hópsins á fyrri stig-
um og í samtölum við hann síðar.
Vísar ásökunum til föðurhúsa
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, á
sæti í atvinnuveganefnd og lýsir hún sig mótfallna og um
leið óbundna af hugmyndum fjórmenninganna. Í bloggi
sínu í gær undir fyrirsögninni Átakafundur í atvinnu-
veganefnd kemur fram að auk hennar hafi Lilja Rafney
Magnúsdóttir og Þór Saari lagt fram bókanir þar sem
tildrög hópsins og vinnuaðferðir séu gagnrýndar, sem
og þau efnisatriði sem hópurinn hefur unnið út frá.
„Sá hópur fjögurra þingmanna sem hér leggur fram
greinargerð sína hefur ekki hlotið umboð atvinnuvega-
nefndar Alþingis né heldur þingflokka stjórnarflokkana til sinna starfa.
Hópurinn er sjálfskipaður hluti nefndarmanna í atvinnuveganefnd sem
fengið hefur samþykki forystumanna ríkisstjórnarinnar til þess að leita
niðurstöðu sín á milli um fiskveiðistjórnunarfrumvarp atvinnuvegaráð-
herra sem sátt geti náðst um,“ skrifar Ólína.
Hún gagnrýnir 20 ára forgangsúthlutun 95% aflaheimilda til núverandi
kvótahafa, takmarkanir á vaxtarmöguleikum leigupottsins við 20 þús. tonn
og segir óviðunandi að í uppsjávar- og úthafsveiðum deilistofna „verði
komið á samskonar gjafakvótakerfi og því sem viðgengist hefur í botn-
fiskveiðum, eins og tillögur hópsins gera ráð fyrir“.
Þá segir að „verði þær breytingar á fiskveiðistjórnunarfrumvarpinu sem
fjórmenningarnir hafa drepið á er ljóst að upphaflegt markmið með frum-
varpinu – um jafnræði, atvinnufrelsi og nýliðunarmöguleika – yrði að
engu. Væri þá verr af stað farið en heima setið með mál þetta í heild sinni.“
Mótfallin og óbundin af áliti hópsins
Á fundi atvinnuveganefndar í gær mótmælti Þór Saari
harðlega vinnubrögðum formanns hópsins „sem hefur
tekið að sér að stýra fundi hennar þrátt fyrir óafgreitt
erindi til forsætisnefndar um vanhæfi hans sem for-
manns vegna brots á samkomulagi formanna stjórn-
málaflokkana um þinglok og kröfu um afsögn hans sem
formanns nefndarinnar,“ segir í bókun Hreyfingarinnar
um vinnubrögð í nefndinni.
„Framganga formanns atvinnuveganefndar í þessu
máli er Alþingi, atvinnuveganefnd og formanninum
sjálfum til vansa og hann og þeir þrír þingmenn sem tóku þátt í þessari
vinnu … eiga að biðja Alþingi opinberlega afsökunar á framkomu sinni í
þessu máli,“ segir í bókuninni.
Haft var eftir Birni Val Gíslasyni fyrir nokkru að Þór hefði lýst því yfir á
fundi í sumarbyrjun að hann myndi ekki taka þátt í störfum hópsins enda
teldi hann hópinn ekki hafa þinglegt umboð til að starfa. Björn Valur sagði
einnig þá að það væri tæpast við hæfi að færa menn til fundar í böndum og
gegn þeirra vilja.
Framganga Alþingi til vansa