Morgunblaðið - 14.09.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
www.baendaferdir.is
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Skíðaferðirnar
okkar 2013 eru komnar í sölu!
Nánari upplýsingar á www.baendaferdir.is
Spennandi ferðir í beinu flugi til München á útvalda staði íAusturríki
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vegfarendur á Miklubraut ráku margir upp stór
augu þegar þeir sáu skilti neðanjarðarlestakerf-
isins í London við undirgöngin sem liggja undir
götuna við gatnamót Lönguhlíðar í gær.
Ekki var þó um útrás enska lestarkerfisins að
ræða heldur var það sem þar var á ferð hluti af
haustherferð Icelandair til að auglýsa áfanga-
staði sína. Skiltin voru hengd upp á miðvikudag
með leyfi Reykjavíkurborgar og munu fá að
hanga þar í einhvern tíma. Engum sögum fer
enn af ráðviltum erlendum ferðamönnum sem
bíða eftir lest sem aldrei kemur.
Skilti við undirgöngin við Miklatún hluti af auglýsingaherferð
Morgunblaðið/Golli
Kennileiti frá London við Miklubrautina
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Áform Landsnets um að leggja há-
spennulínu þvert yfir Eyjafjörð,
nokkuð sunnan við Akureyrarflug-
völl, hafa vakið hörð viðbrögð flug-
manna og flugrekenda. Þeir telja að
háspennulína á háum möstrum, þvert
á aðflugsstefnu úr suðri, geti skapað
hættu. Í fyrsta lagi vegna þeirrar
hindrunar sem línan sjálf skapar og
eins vegna truflana sem geta orðið á
leiðsögubúnaði, bæði á jörðu niðri og í
flugvélum, vegna raf- og segulvirkni
frá háspennulínu á þessum stað. Það
geti t.d. haft áhrif á blindaðflug að
flugvellinum. Þetta kemur m.a. fram í
athugasemdum frá Norlandair, Mý-
flugi, Flugskóla Akureyrar, Flug-
félaginu Ernir, Landhelgisgæslunni,
Bluebird Cargo og öryggisnefnd Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna. Ice-
landair hefur einnig lýst áhyggjum
sínum af fyrirhugaðri framkvæmd og
leggur til að reynt verði að leysa mál-
ið með öðrum hætti t.d. því að leggja
línuna í jörð.
„Við erum ekki sátt við þessa línu-
staðsetningu frekar en aðrir,“ sagði
Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Íslands. „Við hefðum vilj-
að að þetta væri fjær öryggissvæðinu.
Að setja þetta svona nálægt teljum
við ekki vera góða lausn fyrir flugvöll-
inn.“ Hann taldi æskilegra að leggja
línuna í jörð eða hafa hana fjær flug-
vellinum.
„Við viljum ekki ógna flugöryggi á
nokkurn hátt,“ sagði Guðmundur
Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri
Landsnets. Hann sagði Isavia vera að
meta hvar staðsetja mætti línurnar
með tilliti til flugöryggis.
„Þeir kynntu um daginn bráða-
birgðaniðurstöður sem benda til þess
að þetta sé allt í lagi,“ sagði Guð-
mundur. Hann sagði að bráðabirgða-
niðurstöðurnar væru nú til umsagnar
og að Landsnet mundi hlíta lokanið-
urstöðunni.
Telja línuna skapa hættu
Flugmenn og flugrekendur vilja ekki háspennulínu í aðflugsstefnu að Akureyri
Landsnet kveðst ekki vilja ógna flugöryggi og bíður niðurstöðu öryggisúttektar
Árni
Gunnarsson
Háspennulína
um Eyjafjörð
Loftmyndir ehf.
Flugvöllur
Pollurinn
Akureyri
Ytragil
Syðragil
Teigur
Rein
ÞórustaðirHvammur
Arnarhóll
Fyrirhuguð
háspennulína
(3 tillögur)
Aðflugsstefna
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
Launahækkun
forstjóra Land-
spítalans hefur
valdið ólgu á
Landspítalanum
og víðar að sögn
Elsu B. Friðfinns-
dóttur, formanns
Félags íslenskra
hjúkrunarfræð-
inga. „Ég er búin
að fá fyrirspurnir
frá hjúkrunarfræðingum víða á land-
inu, sem eru auðvitað í sambærilegri
stöðu, og þar vilja menn líka fá upp-
lýsingar og hafa verið að óska eftir
að fá fundi. Þannig að þetta smitar út
frá sér á aðrar heilbrigðisstofnanir,“
segir hún.
Þrátt fyrir að sextán mánuðir séu
liðnir frá því að skrifað var undir nýj-
an kjarasamning hefur enn ekki ver-
ið gengið frá stofnanasamningi milli
Landspítalans og Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Elsa segir að samningafundi um
stofnanasamning hafi nú verið flýtt
og verði hann haldinn næstkomandi
þriðjudag. Hún óttast að batni kjörin
ekki hér heima muni margir leita
fyrir sér erlendis.
Um 350 hjúkrunarfræðingar sóttu
tvo fundi sem Fíh efndi til fyrir fé-
lagsmenn sína á Landspítalanum í
vikunni. „Ég held að menn geti alveg
unnt honum að fá hækkun launa, af
því að flestir eru sammála um að
hann hafi staðið sig alveg ágætlega í
sínum verkefnum,“ segir Elsa. „En á
sama tíma og menn gleðjast yfir því
að þarna sé þó verið að umbuna fyrir
viðbótarálag og viðbótarstörf þá
gildir það bara um svo marga aðra,“
segir hún. holmfridur@mbl.is
Hefur smitað út frá sér
Óánægju með launahækkun forstjóra Landspítalans gætir
víðar Um 350 hjúkrunarfræðingar sóttu tvo fundi um málið
Elsa B.
Friðfinnsdóttir
Blaut tuska í andlitið
» Kristín Á. Guðmundsdóttir,
formaður Sjúkraliðafélags Ís-
lands, segir að hækkunin hafi
verið eins og blaut tuska í and-
litið, sé eitt stórt hneyksli.
» Stjórn Ljósmæðrafélags Ís-
lands telur hækkunina mjög
óeðlilega.
Erlendur ferðamaður lenti í nokkr-
um erfiðleikum í Hafnargötu í
Reykjanesbæ í gærkvöld þegar
hann ók bifreið sinni upp á hring-
torg og endaði ferðina á steini sem
þar er staðsettur.
Bifreið mannsins, sem var bíla-
leigubíll, skemmdist þó ekki mikið
og ók hann sína leið eftir að lög-
reglan hafði komið á staðinn og af-
greitt málið.
Svo virðist, að sögn lögreglu, sem
maðurinn hafi hreinlega ekki áttað
sig á því að hringtorg væri fram-
undan á veginum og því hafi farið
sem fór.
Erlendur ferðamað-
ur ók bílaleigubíln-
um upp á hringtorg
Brot 15 ökumanna vegna hraðakst-
urs voru mynduð í Hamravík í
Reykjavík í gær samkvæmt tilkynn-
ingu frá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu.
Ábendingar höfðu borist um hrað-
akstur á þessum stað. Fylgst var
með ökutækjum sem ekið var eftir
veginum í vesturátt að Víkurskóla.
Á einni klukkustund eftir hádegi
fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og
því ók um þriðjungur ökumanna,
eða 34%, of hratt eða yfir afskipta-
hraða. Meðalhraði hinna brotlegu
var 45 km/klst en þarna er 30 km
hámarkshraði. Fjórir óku á 50
km/klst eða hraðar.
Ábendingarnar áttu
við rök að styðjast
Landsnet mun ekki leggja há-
spennulínur í Eyjafirði eða
annars staðar í jörð að eigin
frumkvæði, að sögn Guð-
mundar Inga Ásmundssonar
aðstoðarforstjóra. Hann sagði
það vera gríðarlega kostn-
aðarsamt.
„Það er of stór ákvörðun
fyrir Landsnet að ákveða slíkt.
Það er frekar stjórnmálamanna
að axla þá ábyrgð,“ sagði Guð-
mundur.
Dýr ákvörðun
HÁSPENNULÍNUR Í JÖRÐ