Morgunblaðið - 14.09.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Ríkisstjórnin var auðvitað fyrirlöngu búin að slá öll met í
skattahækkunum og þess vegna var
alveg óþarfi af henni að halda áfram
að hækka skatta eins og hún ætlar
sér samkvæmt nýframlögðu fjár-
lagafrumvarpi.
Vitað var aðstjórnarliðar
höfðu mikinn metn-
að í þessu efni og
fyrrverandi fjár-
málaráðherra hafði
stöðugt í hótunum
við landsmenn um
að þeirra biðu enn
frekari skattahækkanir.
Engum datt þó í hug að það lof-orð yrði efnt svo rækilega ár
eftir ár í ljósi þess að öll önnur hafa
verið svikin.
Það má teljast mikil ógæfa fyriralmenning í landinu að rík-
isstjórnin skyldi ákveða að einmitt
þetta loforð skyldi haldið en öll önn-
ur svikin. Ef stjórnvöld hefðu farið
þveröfugt í efndirnar væru staða og
horfur óneitanlega mun bjartari.
Þá hefði ríkisstjórnin til að myndaekki ítrekað svikið loforð sín
við aðila vinnumarkaðarins, sem enn
virðast undrandi þegar þeir fá rýt-
inginn í bakið.
Nú er það fyrirhuguð hækkuntryggingargjalds sem þeir fá
að eigin sögn í bakið, auk annarra
árása á atvinnulíf og atvinnu-
uppbyggingu.
Þetta gerir ríkisstjórnin á kosn-ingavetri.
Hvers konar fjárlagafrumvarpætli hún mundi leggja fram
haustið 2013 fengi hún tækifæri til?
Oddný G.
Harðardóttir
Ein svikin enn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.9., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 7 rigning
Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað
Vestmannaeyjar 10 rigning
Nuuk 6 skúrir
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 13 skýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 15 skýjað
London 17 heiðskírt
París 17 léttskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 17 heiðskírt
Vín 11 skúrir
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 26 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 20 þrumuveður
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 12 alskýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:50 19:57
ÍSAFJÖRÐUR 6:52 20:05
SIGLUFJÖRÐUR 6:35 19:48
DJÚPIVOGUR 6:19 19:28
Framsóknarmenn munu á næstu dögum
leggja fram þingsályktunartillögu þar sem
lagt verður til að afborganir af verð-
tryggðum fasteignalánum komi til frádrátt-
ar tekjuskattsstofni og að afslátturinn verði
lagður inn á höfuðstól viðkomandi fast-
eignalána. Þetta mun skapa svigrúm fyrir
heimilin til að verða aftur virkir þátttak-
endur í efnahagslífinu, segir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins.
Tillagan miði að því að létta undir með þeim
sem hafi reynt að standa í skilum en ekkert
hafi verið komið til móts við hingað til.
„Við lítum svo á að meginfyrirstaðan í
efnahagslífinu núna sé skuldastaðan og þar
af leiðandi sé það grunnforsenda fyrir því að
hér verði heilbrigt efnahagslíf til langtíma
að tekið verði á henni,“ segir Sigmundur.
Hann segir að gera megi ráð fyrir að í kjöl-
farið muni innstreymi fjármagns aukast hjá
bönkunum og lánasöfn þeirra batna og því
verði samhliða lagt til að samið verði við þá
um að færa lánin niður í 100% af verðmæti
fasteigna.
Í tillögunni er mælst til þess að ráðstöf-
unin verði látin gilda til þriggja ára en Sig-
mundur segir erfitt að segja til um hvað hún
muni kosta ríkissjóð. Þó sé mikilvægt að við
útfærslu hennar verði litið til þess hvað það
myndi kosta að bregðast ekki við „og eins að
metinn verði efnahagslegur ábati af því að
skuldirnar verði viðráðanlegar,“ segir hann.
holmfridur@mbl.is
Vilja lækka skuldir með sköttum
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Fasteignaafborganir myndi afslátt til lækkunar höfuðstóls Lánin í 100%
Þrír þingmenn
hafa lagt fram
frumvarp um að
margnota bleiur
verði færðar úr
25,5% virð-
isaukaskatt-
sþrepi í 7%
þrep. Þeir
benda á að
breytingin hefði
jákvæð áhrif á
umhverfið og að
sambærilegar breytingar hafi verið
gerðar á virðisaukaskattsprósent-
unni af raf- og tvinnbílum í þegar
ökutæki af því tagi voru færð niður
um skattþrep vegna umhverfissjón-
armiða.
Í frumvarpi þeirra Lilju Mós-
esdóttur, Birkis Jóns Jónssonar og
Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur er
bent á að samkvæmt mati Um-
hverfisstofnunar noti hvert barn
5-6 þúsund bleiur á sínum fyrstu
æviárum sem geri um tvö tonn af
sorpi. Notkun margnota bleia sé
betri kostur hér en víðast hvar er-
lendis enda séu þeir orkugjafar
sem knýja þvottavélarnar umhverf-
isvænir. runarp@mbl.is
Margnota
bleiur fari í
7% þrepið
Eitt barn notar 5-6
þúsund einnota bleiur
Æska Margnota
virkar jafnvel.
HAUST 2012
Smáralind | s.512 1744 | www.ntc.is | erum á
By Malene Birger - Bruuns Bazaar - Boris - Great Plains - Saint Tropez - Siste's - Siste's More - Soaked in Luxury - Sunlight