Morgunblaðið - 14.09.2012, Síða 11
Börn og matur Börn eru jákvæð og áhugasöm um mat og gott að nýta áhugann til að opna skilningarvit þeirra.
elda góðan mat því það opnar þeim
svo marga möguleika til að njóta lífs-
ins. Börnin sem ég hef fengið til mín
á námskeið hafa verið jákvæð og
áhugasöm og því er mikilvægt að
nýta áhugann til að opna skilningar-
vit þeirra en þau verða líka að fá sitt
frelsi. Það þýðir ekki að setja þeim
of margar reglur því þau vilja vera
skapandi. Börnin eru mikið til að
heiman yfir daginn í skóla og tóm-
stundum og koma því lítið að dag-
legu lífi en matargerðin er gott
dæmi um eitthvað raunverulegt sem
þau búa að alla ævi.“
Kærleikur og vinátta
Í Damörku eru aðeins 4 prósent
barna á aldrinum 3-18 ára sem koma
að eldhússtörfum, það var meira, en
nú hafa foreldrar svo mikið að gera
og vilja flýta matargerðinni. „Því er
mikilvægt t.d. um helgar eða í fríum
að gefa sér tíma til að vera með
börnunum í eldhúsinu. Foreldrunum
finnst börnin líka of sóðaleg í eldhús-
inu en það lærist ekki á einum degi
að ganga vel frá og er það eitthvað
sem einnig verður að kenna börn-
unum. Það er mjög gott að kenna
börnunum að bjarga sér í eldhúsinu
áður en þau verða táningar því þau
borða gjarnan mikið á þeim árum og
þá er þægilegt að þau geti komið
heim eftir skóla og búið til sinn eigin
mat. Þeim finnst líka skemmtilegt að
bjóða vinum sínum í mat og læra að
með því að elda fyrir aðra má sýna
kærleika og vináttu,“ segir Klinken.
Draslið partur af ferlinu
Í matreiðslubókum sínum fyrir
börn setur Klinken uppskriftirnar
upp á einfaldan og aðgengilegan
máta. Hún segir mikilvægast að
læra grunnatriði við að baka, steikja
og sjóða og eftir það megi byrja að
breyta hráefnum í uppskriftum og
fikra sig lengra áfram. Þannig séu
bækurnar ekkert síður ætlaðar full-
orðnum sem eru að stíga sín fyrstu
skref eða eru ekki sérlega lagnir í
eldhúsinu. Klinken telur mikilvægt
að elda og borða hollan mat en segir
þó að ekki ætti að skipta öllu máli
hvað barnið vilji búa til og það megi
alveg vera pönnukökur eða kökur.
Hollustan ætti ekki að standa í vegi
fyrir því að barnið hafi áhuga á mat-
argerð og vilji vera í eldhúsinu. Þó
auðvitað sé gott að hafa hollustuna í
og með. Hægt sé að byrja á að leyfa
yngri börnum að þvo grænmeti og
ávexti og jafnvel breyta því í eins
konar vatnsleik en smám saman
megi síðan bæta við kunnáttuna.
Klinken er sjálf alin upp við það frá
10 ára aldri að taka þátt í matargerð
foreldranna sem lögðu áherslu á að
fjölskyldan borðaði saman máltíðir
úr góðu hráefni og leyfðu börnum
sínum að prófa sig áfram í eldhús-
inu. Hún hefur nú starfað við matar-
gerð í 30 ár og komið víða við á ferli
sínum. „Þetta er allt sama ferlið og
þó að allt sé í drasli og sulli í eldhús-
inu þínu þá er það bara partur af
þessu. Börnin drasla ekkert meira
út þar en annars staðar,“ segir Klin-
ken. Þetta er í fyrsta sinn sem hún
kemur til Íslands og hún vonast til
að smakka ýmiss konar íslenskan
mat á meðan á dvöl hennar stendur.
Margt skemmtilegt verður á
dagskrá á Matur úti í mýri, en há-
tíðin stendur frá 15.-17. sept-
ember. Allar nánari upplýsingar
má finna á www.myrin.is og þar fer
einnig fram skráning í þær vinnu-
stofur sem í boði eru.
Ég tel mikilvægt að
opna matarheiminn fyrir
börnum, veita þeim inn-
blástur, kenna þeim að
elda góðan mat og að
njóta þannig lífsins.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Sushi Nemendur Iðnskólans í Hafnarfirði kunna því vel að læra sushigerð.
Ísíðustu viku settist ég á skóla-bekk að nýju eftir 5 ára hlé. Ámeðan á sleitulausum náms-ferli stóð frá leikskóla til BA-
prófs heyrði ég stundum að það væri
óskynsamlegt að taka sér hlé frá
námi af því þá væri svo erfitt að
byrja aftur. Ég gaf frekar lítið fyrir
þetta enda taldi ég mig svo mikinn
akademíker í eðli mínu. Skólabekk-
urinn væri mitt náttúrlega umhverfi.
Það fór því um mig fiðringur af til-
hlökkun fyrir haustinu þegar ég
skráði mig í Háskóla Íslands í maí.
Haustin eru nefnilega tími skól-
anna, allar auglýsingar og fréttir eru
uppfullar af áminningum um skóla-
starf í öllum myndum. Verandi
hvorki nemandi né foreldri skóla-
barns hef ég verið svolítið utanveltu
á haustin síðustu ár. Lönguninni til
að kaupa fallega penna, skrifa
merkimiða á möppur og strika nýja
þekkingu út af leslista vikunnar, hef-
ur ekki verið fullnægt.
Ég hef reynt að klóra í kláðablett-
inn með því að fara á námskeið.
Haustið 2011 fór ég á samnorrænt
námskeið fyrir blaðamenn í Dan-
mörku. Haustið 2010 fór ég á ljós-
myndanámskeið. Haustið 2009 fór
ég á köfunarnámskeið. Haustið 2008
sat ég hraðnámskeið í efnahags-
hruni smáríkja, ásamt reyndar allri
þjóðinni. Haustið 2012
ákvað ég að ganga
lengra og skrá mig
aftur í Háskóla Ís-
lands. Sem fyrr
segir vakti til-
hugsunin hjá
mér spennu í vor,
en þegar leið á
sumarið fóru að
renna á mig tvær
grímur. Skyndilega
rifjaðist nefnilega upp
fyrir mér fylgi-
fiskur þess
að vera í skóla: Hið stöðuga sam-
viskubit. Vinnudagur háskólanem-
ans er aldrei búinn í reynd. Ef mað-
ur fer í bíó, horfir á sjónvarpið, situr
lengi við kvöldverðarborðið, les bók
sér til skemmtunar eða sefur út á
sunnudegi, er það aldrei gert af heil-
um hug því undir niðri er þessi nag-
andi tilfinning að maður ætti að vera
að gera eitthvað annað. Læra.
Ég áttaði mig á því að ég væri að
gefa frá mér allan frítíma minn,
sjálfviljug og óumbeðin, með því að
velja að eyða öllum stundum utan
vinnunnar í að læra eða vera með
samviskubit yfir að vera ekki að
læra. Þessi tæpu 5 ár sem ég hef ein-
göngu verið á vinnumarkaði hefur
mér lærst að meta frítíma minn
mjög mikils.
Ég var því farin að kvíða svolítið
fyrir fyrsta skóladeginum. En það
bráði fljótt af mér. Jú, í des-
ember mun ég án efa sakna
þess að geta legið
áhyggjulaus uppi í
sófa með nýjustu af-
urðir jólabókaflóðs-
ins, en veturinn
leggst samt vel í
mig. Það er gaman í
skóla.
»Skyndilega rifjaðistnefnilega upp fyrir
mér fylgifiskur þess að
vera í skóla. Hið stöðuga
samviskubit. Vinnudagur
háskólanemans er aldrei
búinn í reynd.
HeimurUnu
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Bættu Chia fræjum
í morgungrautinn
Chia fræ eru sannkölluð ofurfæða
sem innihalda m.a. ríkulegt magn af
omega 3 fitusýrum, auðmeltanleg
prótín og andoxunarefni.
Ofureinfaldur Chia grautur:
1/2 dl Naturya Chia fræ
3 dl Isola möndlumjólk
1 dl NaturalCool frosin bláber eða ávextir
Öllu blandað saman og hrært vel.
Látið liggja í bleyti í 10-15 mínútur.
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðasmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710www.lifandimarkadur.is