Morgunblaðið - 14.09.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta yrði algjört rothögg fyrir okk-
ur og gæti einnig gengið af íslenskri
ferðaþjónustu dauðri,“ segir Stein-
grímur Birgisson, framkvæmdastjóri
bílaleigunnar Hölds, um þau áform
sem boðuð eru í nýju fjárlagafrum-
varpi að fella niður undanþágu á vöru-
gjöldum af innfluttum bílaleigubílum.
Hækka á vörugjöldin í tveimur áföng-
um árin 2013 og 2014 og laga þau að
almennum vörugjöldum á ökutækj-
um. Er áætlað að þetta skili ríkissjóði
500 milljónum króna í auknar tekjur á
næsta ári.
Steingrímur segir þá tekjuáætlun
klárlega ekki takast. „Við neyðumst
til að kaupa mun færri bíla sem þýðir
að virðisaukaskattsupphæðin sem
ríkið tapar af því vegur upp og gott
betur þær auknu tekjur sem ríkið
ætlar sér að ná í þarna, að ótöldum
lækkuðum gjaldeyristekjum vegna
færri bíla í umferð,“ segir Steingrím-
ur og telur að ef áformin fari óbreytt í
gegnum þingið muni það „endanlega
jarða íslenska ferðaþjónustu og
myndi rústa okkar rekstri. Við erum
að láta reikna áhrifin af þessu fyrir
okkur en það er ljóst að við gætum
þurft að hækka verð hjá okkur um
tugi prósenta.“
Lakari samkeppnisstaða
Bílaleigur í landinu hafa notið nið-
urfellingar á vörugjöldum í rúm 10 ár.
Var hún sett á á sínum tíma til að
jafna samkeppnisstöðu íslenskra bíla-
leiga gagnvart erlendum mörkuðum.
Steingrímur bendir á að vörugjöldin
hafi áður verið há í samanburði við
önnur lönd, þar sem sums staðar séu
engin slík gjöld innheimt. Einnig sé
dýrt að flytja bílana til landsins, ólíkt
því sem mörg önnur lönd í Evrópu
búa við. Hér á landi sé háannatími
ferðaþjónustunnar einungis 2-3 mán-
uðir og samkeppnisstaða Íslands í
ferðaþjónustunni því lakari á ýmsum
sviðum.
„Þetta er eins vanhugsað og hugs-
ast getur, maður skilur bara ekki
þennan hugsunarhátt að leggja á
auknar álögur þar sem eftirspurnin
er sögð svo mikil. Þá á bara að stoppa
þessa eftirspurn þar sem ekki sé leng-
ur forsvaranlegt að viðhalda niðurfell-
ingu. Hvaða rök eru það eiginlega?
En þetta mun klárlega takast hjá
stjórnvöldum að draga úr eftirspurn-
inni, til hins verra fyrir alla íslenska
ferðaþjónustu.“
Steingrímur gagnrýnir ennfremur
það sem segir í frumvarpinu að með
niðurfellingu vörugjalda sé unnið
gegn markmiðum um losun koltvísýr-
ings. Hann segir losunina einmitt
hafa minnkað fyrir tilstilli bílaleig-
anna sem haldið hafa uppi innflutn-
ingi nýrra bíla eftir hrunið. Með
hækkun vörugjalda muni bílaleigurn-
ar eiga bílana lengur með aukinni
hættu á meiri losun. „Þetta er
kannski það sem menn vilja; að
druslubílaleigurnar fái að blómstra.“
Ein ástæða fyrir því að fella und-
anþágurnar niður er sögð misnotk-
un við innflutning á bílaleigubílum.
Steingrímur segist vita dæmi um
þetta hjá óprúttnum fyrirtækjum
sem flytji inn nýja bíla og leigi
sjálfum sér. „Við viljum setjast
niður með stjórnvöldum og finna
leiðir til að koma í veg fyrir
þetta, frekar en að hækka
vörugjöldin og fella undan-
þáguna niður,“ segir
Steingrímur.
„Algjört rothögg“
fyrir bílaleigurnar
Fella á niður í áföngum undanþágu vörugjalda á bílaleigur
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við erum alltaf tilbúin til viðræðna
en höfum sagt það fyrr að við trúum
því ekki fyrr en við tökum á því að
meirihluti þingmanna og fyrrverandi
ferðamálaráðherrar ætli að sam-
þykkja þessa fáránlegu hækkun.
Okkar krafa er ennþá sú að hætt
verði alfarið við hækkunina,“ segir
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
(SAF), en hún var skipuð í starfshóp
fjármálaráðherra
nýverið til að
fjalla um skatt-
lagningu ferða-
þjónustugreina.
Boðað hefur verið
til fyrsta fundar
starfshópsins í
næstu viku en
ráðherrann ákvað
að stofna hann í
kjölfar mikillar
gagnrýni á áform
stjórnvalda um að hækka virðisauka-
skatt á gistingu úr 7% í 25,5%, sem
yrði hæsta slíka skattþrep á ferða-
þjónustu í Evrópu og þó að víðar
væri leitað.
Skjóta fyrst og spyrja svo
Við kynningu á fjárlagafrumvarp-
inu fyrir árið 2013 lét Oddný G.
Harðardóttir fjármálaráðherra hafa
eftir sér að ekki yrði hætt við skatta-
hækkunina. Samkvæmt frumvarp-
inu er miðað við að hækkunin taki
gildi 1. maí 2013 en í umræðum á Al-
þingi í gær gaf Oddný í skyn að hún
væri til í að fresta skattlagningunni
til haustsins 2013, til að gefa ferða-
þjónustunni aukið svigrúm til und-
irbúnings.
„Við lítum svo á að það sé ekki búið
að ákveða þetta ennþá, þó að ráð-
herrann skjóti fyrst og spyrji svo.
Við höfum með skýrslugerð sýnt
fram á hve áhrifin verða neikvæð fyr-
ir greinina í heild sinni og skýrsla
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
tekur undir það á margan hátt. Þeg-
ar þingmenn hafa kynnt sér öll þessi
gögn þá á ég bágt með að trúa að þeir
leggi þessi ósköp á ferðaþjónustuna,
þannig að hún verði komin með
hæsta skattþrep í heimi,“ segir Erna
ennfremur.
Hún segir ferðaþjónustuna á góðri
siglingu og hafi verið að skila miklum
tekjum inn í ríkissjóð. Hækkun
skattsins um rúm 17 prósentustig
muni ekki auka tekjur ríkisins heldur
snarminnka þær. Það komi jafnvel
fram í skýrslu Hagfræðistofnunar,
sem unnin var af beiðni fjármálaráð-
herra, að fækkun erlendra ferða-
manna gæti orðið allt að 48 þúsund,
sem þýddi 11,5 milljarða króna minni
gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið.
Erna bendir einnig á áhrifin af því
ef ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að
fækka starfsfólki. Þannig hafi ein-
göngu tekjuskattur af starfsfólki Ice-
landair Group numið 7 milljörðum
króna á síðasta ári og aukist um 2
milljarða á tveimur árum. „Þarna eru
peningarnir, þarna er tekjuaukning-
in fyrir ríkissjóð þannig að ferða-
þjónustan fái áfram að blómstra.
Margföldunaráhrif geta verið gríðar-
leg,“ segir Erna.
Ennþá krafa
um að hætta
við hækkunina
SAF vonar að þingmenn sjái að sér
Morgunblaðið/Ómar
Ferðaþjónusta Stjórnvöld áforma
auknar og umdeildar álögur.
Skaðinn skeður
» Erna Hauksdóttir segir
áform um hækkun vsk. af gist-
ingu þegar hafa valdið miklum
skaða fyrir greinina.
» Fréttir hafa birst í erlendum
fjölmiðlum undanfarið að nú sé
Ísland orðið dýrt ferðamanna-
land á ný.
» Erna segir þetta hafa mikil
áhrif þar sem bókanir í ferða-
þjónustu séu oft gerðar með
löngum fyrirvara.
Erna
Hauksdóttir
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir ár-
ið 2013 segir að ekki þyki for-
svaranlegt að viðhalda nið-
urfellingu vörugjalda á
bílaleigubíla, þegar litið sé til
þess að eftirspurn eftir bíl-
unum hafi aukist og kerfið sé
þungt í rekstri fyrir stjórn-
sýsluna. Hin almenna skatt-
lagning á ökutæki gefi færi á
að innkaupum sé hagað með
þeim hætti að skattlagning sé
takmörkuð. „Kerfið vinnur
gegn markmiðum um minni
losun koltvísýrings frá öku-
tækjum, hætta er á misnotk-
un sem erfitt hefur reynst að
hafa eftirlit með auk þess
sem almennt þykir ekki for-
svaranlegt að almenningur
niðurgreiði leiguverð á bíla-
leigubílum,“ segir ennfremur í
frumvarpinu um þessa
tekjuöflunaraðgerð fyrir
ríkissjóð, sem á að skila
500 milljónum króna í
auknar tekjur eins og
kemur fram hér til
hliðar. Steingrímur Birg-
isson hjá Höldi bíla-
leigu gagnrýnir
þessi áform
harðlega.
Telja hættu á
misnotkun í
innflutningi
FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ
Steingrímur
Birgisson
Morgunblaðið/Ómar
Bílaleigur Stór hluti af innflutningi nýrra bíla er fyrir bílaleigurnar. Hætt er við að draga muni úr þeim innflutningi
og bílaleigur noti bílana lengur en áður, segir Steingrímur Birgisson hjá Höldi, sem rekur bílaleigur víða um land.
Ertu að taka til …
… á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn