Morgunblaðið - 14.09.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
BAKSVIÐ
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Mótmæli vegna kvikmyndar gegn
íslam, sem gerð var í Bandaríkjun-
um, breiddust út um Mið-Austur-
lönd og Norður-Afríku í gær.
Mótmælendum tókst að brjótast
inn á lóð Bandaríska sendiráðsins í
Sanaa, höfuðborg Jemen, í gær og
brenna bandaríska fánann áður en
jemenskum öryggissveitum tókst að
hrekja þá á braut. Undir kvöld í gær
var sagt að öryggissveitir hefðu
skotið fjóra til bana og sært tugi.
Boða milljónar manna
mótmæli
Mótmælendur grýttu sendiráð
Bandaríkjanna í Kaíró, höfuðborg
Egyptalands í gær. Sagði egypska
heilbrigðisráðuneytið að 224 hefðu
hlotið meiðsl í mótmælunum.
Þetta var þriðji mótmæladagur-
inn í röð í Kaíró. Hópar íslamista
hafa hvatt til „milljónar manna mót-
mæla“ í borginni í dag.
Mohammed Mursi, forseti
Egyptalands, bað Egypta að halda
ró sinni. „Ég fordæmi og stend gegn
öllum þeim, sem … móðga spámann
okkar. En það er skylda okkar að
vernda gesti okkar og aðkomumenn
frá útlöndum,“ sagði hann í yfirlýs-
ingu, sem ríkisfjölmiðlar landsins
sendu út. Hann fordæmdi einnig
árásina í Benghazi á þriðjudags-
kvöld þar sem Chris Stevens,
bandaríski sendiherrann í Líbíu, og
þrír aðrir sendiráðsstarfsmenn létu
lífið í mótmælum. Mótmælendurnir
voru vopnaðir.
Þúsundir stuðningsmanna síta-
klerksins Moktada al-Sadr mót-
mæltu í nokkrum borgum í Írak í
gær. Mótmælendur brenndu banda-
ríska fánann og héldu á borðum með
vígorðum á borð við „Dauðinn taki
Bandaríkin, óvin þjóða“.
Í Teheran, höfuðborg Írans, söfn-
uðust mótmælendur saman við
svissneska sendiráðið, sem gæti
hagsmuna Bandaríkjanna þar í
landi.
Bandarískir embættismenn kváð-
ust vera að rannsaka hvort lagt hefði
verið á ráðin um árásina í Líbíu og
sögðu að grunur léki á um að her-
skár hópur jihadista gæti hafa
skipulagt árásina. Hún hefði verið
flókin í framkvæmd og atvinnumenn
virst hafa verið að verki. Þeir hafa
gefið í skyn að myndin kunni að hafa
verið átylla.
Líbíumenn segja menn í haldi
Mustafa Abu Shagur, forsætis-
ráðherra Líbíu, sagði við fréttastof-
una AFP að mikil árangur hefði
náðst í rannsókn árásarinnar í
Benghazi. „Búið er að handtaka og
verið er að handtaka fleiri í þessum
töluðum orðum,“ sagði hann.
Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fordæmdi í
gær myndina, sem er tilefni mót-
mælanna, og sagði hana bæði „við-
urstyggilega“ og „forkastanlega“.
Hún hafnaði bæði innihaldi mynd-
arinnar og boðskap, en sagði að hún
væri engin afsökun fyrir ofbeldi.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
sagði í gær að hætta væri á að
„glundroði“ breiddist út í Mið-Aust-
urlöndum eftir árásina á bandarísku
ræðisskrifstofuna í Líbíu og ofbeldið
í Egyptalandi og Jemen. „Við ótt-
umst að svæðið verði glundroða að
bráð, í raun er það að gerast nú þeg-
ar,“ sagði Pútín
AFP
Ólga Egypskur mótmælandi hendir táragassprengju til baka í átt að óeirðalögreglu nærri sendiráði Bandaríkjanna í Kaíró, höfuðborg Egyptalands.
Ólga út af mynd magnast
Mótmæli gegn Bandaríkjunum breiðast út um Mið-Austurlönd og Norður-
Afríku Ráðist inn í bandaríska sendiráðið í Jemen og grjóti kastað í Kaíró
Kvikmyndin, sem er kveikjan að mótmæl-
unum, nefnist Sakleysi múslíma. Hún var tekin
í Bandaríkjunum, sett á netið fyrr á þessu ári
og hafa atriði úr henni verið sýnd í arabískum
sjónvarpsstöðvum.
Í henni er spámanninum Múhameð lýst sem
flagara og hann gerður að blóðþyrstum leið-
toga manna sem njóta þess að drepa.
Myndin hefur verið rakin til manns í Kali-
forníu, Nakoula Basseley Nakoula, sem hefur
notað ýmis dulnefni. Leikarar í myndinni segja
að þeir hafi verið notaðir og samtölum þar
sem Múhameð er svívirtur verið bætt við síðar.
Myndin rakin til Kaliforníu
MÚHAMEÐ LÝST SEM BLÓÐÞYRSTUM FLAGARA
Mótmælandi við höfuð-
stöðar SÞ í Gasaborg.
Dómstóll í
Egyptalandi
dæmdi í gær Ah-
med Nazif, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra
landsins, í þriggja
ára í fangelsi og
til greiðslu níu
milljóna
egypskra punda
(rúmlega 180
milljóna króna) fyrir að fjárdrátt úr
opinberum sjóðum og að sölsa undir
sig eigur ríkisins.
Nazif hrökklaðist úr embætti
seint í janúar í fyrra rétt eftir að
uppreisnin gegn Hosni Mubarak, þá-
verandi forseta, hófst. Hann var sak-
aður um að nota stöðu sína til að
hagnast með ólöglegum hætti.
Nokkrir háttsettir embættismenn
og kaupsýslumenn, sem voru nánir
stjórn Mubaraks, hafa verið dregnir
fyrir rétt eftir að hann fór frá 11.
febrúar í fyrra. Mubarak og synir
hans eru þar á meðal. Mubarak af-
plánar ævilangt fangelsi fyrir dauða
mótmælenda í uppreisninni gegn
stjórn hans í fyrra. Ásakanir á hend-
ur sonum hans vegna spillingar voru
látnar niður falla vegna fyrningar,
en þeir eru í haldi vegna þess að nýj-
ar kærur munu vera yfirvofandi.
EGYPTALAND
Fallinn forsætis-
ráðherra í fangelsi
Ahmed Nazif
Fyrsta opinbera
yfirlýsingin frá
Xi Jinping, vara-
forseta Kína,
sem búist er við
að taki við for-
ustu kínverska
kommúnista-
flokksins, birtist
í málgagni kín-
verska komm-
únistaflokksins í
Guangxi í gær.
Þetta er það fyrsta sem spurst
hefur opinberlega til Xis síðan
hann flutti ræðu fyrsta september.
Síðan hefur hann aflýst fundum
með fjórum erlendum gestum, þar
á meðal Hillary Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna.
Fjarvera Xis hefur vakið athygli
um allan heim. Skrifað hefur verið
um málið á spjallvefjum í Kína, en
þeir sæta harðri ritskoðun. Kín-
verskir fjölmiðlar hafa ekki minnst
á málið en frétt dagblaðsins í Gu-
angxi hefur verið birt víða. Tals-
maður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins neitaði í gær, fjórða
daginn í röð, að svara spurningum
um hvar Xi væri niðurkominn.
KÍNA
Spyrst til leiðtoga
eftir fjarveru
Xi Jinping
„Hefur þú nokk-
urn tímann séð
nokkurn stað í
heiminum sem er
dásamlegri?“
spyr Grace Kelly
þegar hún ekur
með Caru Grant í
hlíðum Mónakó í
mynd Alfreds
Hitchcocks „To
Catch a Thief“
frá 1955. Kelly lét lífið á sama vegi í
bílslysi 14. september 1982.
Kelly kynntist Rainier prinsi af
Mónakó ári eftir að myndin var tek-
in, giftist honum 1956 og lék ekki
meir.
Andláts hennar fyrir 30 árum
verður minnst í Mónakó í dag. Fjöl-
skylda hennar mun koma saman í
kapellu hallarinnar í Mónakó í lok-
aðri minningarathöfn, en sonur
hennar, Albert II., mun verða við-
staddur opinbera sýningu á mynd-
inni „To Catch a Thief“ í fursta-
dæminu á morgun.
MÓNAKÓ
Andláts Grace Kelly
minnst í Mónakó
Grace Kelly
Járnskortur
getur verið
ein ástæðan
Vandaðar bætiefnablöndur
úr lífrænni ræktun,
fyrir börn og fullorðna.
Þreytt og
slöpp?
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum.
• Einkenni járnsskorts geta verið
t.d. mæði, þreyta svimi, kulsækni,
hjartsláttaróregla og höfuðverkur.
• Floradix og Floravital hjálpa fólki
til að viðhalda góðri heilsu og
heilbrigði.
• Blandan byggist upp á fljótandi
lífrænu járni, sérvöldum jurtum,
ávaxta djús og blöndu af c- og
b-vítamíni, til að auka járnbúskap
líkamans.