Morgunblaðið - 14.09.2012, Qupperneq 35
neshreppi frá 1996. Póstdreifingin
er tvisvar í viku, yfirferðin um 60
kílómetrar, en færðin er oft slæm.
Jón Guðbjörn var fréttaritari
Morgunblaðsins á Ströndum á ár-
unum 1997-2005. Hann hefur blogg-
að töluvert á Mbl.is og heldur nú úti
eigin frétta- og myndavefsíðu frá
Árneshreppi á Litlihjalli.is.
Jón Guðbjörn býr nú með bróður
sinum í Litlu-Ávík, en Sigursteinn,
bróðir hans, heldur þar búskap með
um 250 fjár. Þá er þar enn umtals-
verður reki sem þeir nýta og saga
niður í girðingarstaura og jafnvel
palla- og klæðningaborð með stórri
bandsög.
Fimm veðurskeyti á dag
Blaðamaður innir Jón Guðbjörn
eftir starfinu við vitagæsluna og veð-
urathugun:
„Þetta verður nú seint talin erf-
iðisvinna. Hins vegar er þetta mjög
bindandi starf. Ég verð að senda
veðurskeyti fimm sinnum á sólar-
hring, tek veðrið fyrst klukkan 6 á
morgnana og síðast kl. 21.00.
Vitinn gengur nú svona af sjálfum
sér en það þarf auðvitað að fylgjast
vel með honum, skipta um perur og
þrífa ljósakrónuna vel og oft. Það er
svona ýmislegt sem tínist til við
þetta starf. Þegar póststússið er tal-
ið með hefur maður í alveg nógu að
snúast alla daga."
Karlar mæta í saumaklúbbinn
En þér leiðist ekkert í skammdeg-
ismyrkrinu og fábreytileikanum á
löngum vetrarkvöldum?
„Ég læt það nú allt vera. Það er
ljósastaur hérna við hvern bæ. Það
er bara aumingjaskapur að láta sér
leiðast. Maður hefur síma og getur
vafrað um allan heim á tölvunni.
Auðvitað saknaði ég konunnar
þegar hún féll frá en ég held að þetta
endalausa leiðindatal, kvartanir og
ólund út í allt og alla sé fundið upp af
ykkur þarna fyrir sunnan, ef þið haf-
ið þá ekki apað þetta upp frá erlend-
um stórborgum. Ég veit ekki til þess
að nokkrum leiðist hér.
Félagslífið er líka mikið hérna.
Það er haldin félagsvist í skólanum
einu sinni til tvisvar í mánuði og svo
mæta allir í saumaklúbbinn, karlar
jafnt sem konur. Þær sauma út en
við karlarnir spilum á spil og fáum
svo þetta fína kaffihlaðborð á eftir.
Það væsir því ekkert um mann.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Guðbjörns var
Magnea Guðleif Guðjónsdóttir, f.
6.5. 1929, d. 28.1. 1999, húsfreyja, frá
Bakkakoti á Rangárvöllum.
Hálfsystkini Jóns Guðbjörns,
sammæðra: Halla Kristína Svein-
björnsdóttir, f. 10.10. 1932, d. 22.7.
1988, húsfreyja í Garðabæ; Guðrún
Ágústa Sveinbjörnsdóttir, f. 12.9.
1934, húsfreyja í Norðurfirði; Sig-
ursteinn Sveinbjörnsson, f. 28.9.
1938, bóndi í Litlu-Ávík; Lýður
Sveinbjörnsson, f. 1.5. 1940, stýri-
maður í Reykjavík; Sigríður Anna
Sveinbjörnsdóttir, f. 18.2. 1943, bú-
sett í Grindavík; Sveinbjörn Svein-
björnsson, f. 15.10. 1944, d. 12.5.
2012, bóndi í Norðurfirði og síðar á
Ísasfirði.
Foreldrar Jóns Guðbjörns voru
Guðjón Jónsson, f. 22.4. 1906, d. 5.9.
1978, bóndi og bátasmiður í Litlu-
Ávík, og Þórdís Jóna Guðjónsdóttir,
f. 20.11. 1913, d. 10.7. 2000, húsfreyja
í Litlu-Ávík.
Úr frændgarði Jóns Guðbjörns Guðjónssonar
Guðmundur Jónsson
b. í Stóru-Ávík
Kristlaug Jónsdóttir
húsfr. í Stóru-Ávík
Jón Magnússon
bátasmiður í Litlu-Ávík
Jóhanna Magnúsdóttir
húsfr. í Litlu-Ávík
Guðbjörg Jónsdóttir
húsfr. í Ingólfsfirði
Jón Jónsson
b. og smiður í Munaðar-
nesi og Krossnesi
Kristín Ólafsdóttir
húsfr. í Krossnesi
Jón Guðbjörn
Guðjónsson
Guðjón Jónsson
b. og bátasmiður í Litlu-Ávík
Þórdís Jóna Guðjónsdóttir
húsfr. í Litlu-Ávík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Litlu-Ávík
Guðjón Steindór Guðmundsson
b. í Litlu-Ávík
Sigríður Ágústa Jónsdóttir
húsfr. í Litlu-Ávík
Jón Magnússon
bátasmiður í Litlu-Ávík
Magnús Jónsson
b. í Krossnesi og Ingólfsfirði
Ólöf Jónsdóttir
rithöfundur
Vitavörðurinn Jón Guðbjörn.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Jökull Jakobsson, rithöfundur,fæddist á Neskaupstað í Norð-firði 14. september 1933. Faðir
hans var séra Jakob Jónsson og
móðir Þóra Einarsdóttir. Auk Jök-
uls eignuðust þau Guðrúnu Sigríði
persneskufræðing, Svövu rithöfund
og alþingismann, Jón Einar lögfræð-
ing og Þór veðurfræðing.
Börn Jökuls eru fimm talsins.
Dótturina Unni Þóru eignaðist hann
með Áslaugu Sigurgrímsdóttur. Ár-
ið 1957 kvæntist hann Jóhönnu
Kristjónsdóttur, blaðamanni og rit-
höfundi, en hún er systir Braga
Kristjónssonar, bóksala í Bókinni.
Jóhanna og Jökull eignuðust El-
ísabetu Kristínu, Illuga og Hrafn.
Þau skildu. Seinna eignaðist hann
Magnús Hauk með Ásu Beck.
Jökull lauk námi í Mennta-
skólanum í Reykjavík, 1953. Eftir
það stundaði hann háskólanám í Vín-
arborg, London og Reykjavík, m.a. í
leikhúsfræðum. Hann vann m.a. sem
blaðamaður á Tímanum og ritstýrði
Vikunni. Eftir 1961 helgaði hann sig
ritstörfum og starfaði einnig við út-
varp og sjónvarp.
Fjöldi ritverka liggur eftir hann,
m.a. ferðasögur, smásögur, skáld-
sögur og leikrit. Fyrsta skáldsaga
Jökuls, Tæmdur bikar, kom út þeg-
ar hann var sautján ára gamall.
Jökull var mikilvirkt leikritaskáld.
Meðal leikverka hans voru Pókók
(1961), með gamansömu ívafi, Sjó-
leiðin til Bagdad (1965), Sumarið ’37
(1968) var harmrænna en fyrri verk
og gamansemin vék fyrir íróníunni.
Verk hans voru sett upp á fjölum
leikhúsanna og í útvarpi. Leikritið
Hart í bak sem frumsýnt var í Iðnó
1962 er alla jafna talið marka upphaf
nútíma leikritunar á Íslandi. Leik-
ritið naut mikilla vinsælda og hann
stimplaði sig inn sem fremsta leik-
ritaskáld Íslendinga á sjöunda ára-
tug tuttugustu aldarinnar. Efn-
ishyggja eftirstríðsáranna og
hefðbundnir atvinnuvegir þjóð-
arinnar endurspeglast gjarnan í per-
sónum leikverkanna.
Þættir hans í útvarpi voru róm-
aðir, þá einkum Gatan mín þar sem
hann gekk um götur Reykjavíkur og
rifjaði upp sögu þeirra.
Jökull lést lést 25. apríl 1978.
Merkir Íslendingar
Jökull
Jakobsson
85 ára
Áslaug Kristjánsdóttir
Jón Bergs
Sigurbjörg Guðlaugsdóttir
80 ára
Einar H. Guðmundsson
Sigvaldi Magnús
Ragnarsson
75 ára
Einar Þorkelsson
Kristín Þórðardóttir
Ólafur Valdimar
Guðmundsson
Úndína Gísladóttir
70 ára
Edda R. Niels
Guðmundur Agnar
Axelsson
Svanfríður Larsen
60 ára
Auður Höskuldsdóttir
Ásthildur B. Snorradóttir
Gunnlaugur Sverrisson
Jóhann Geir Frímannsson
Ólafur Pálmi Baldursson
Pálína Aðalbjörg Pálsdóttir
Rúnar Hafberg Jóhannsson
Sigurður Guðni Sigurðsson
Sigurður Örn Magnússon
Zbigniew Michelis
Þorgerður Helga
Halldórsdóttir
Þráinn Örn Friðþjófsson
50 ára
Björn Gísli Halldórsson
Guðmundur L Sverrisson
Guðrún Bergmann
Vilhjálmsdóttir
Haukur Valdimarsson
Helgi Jensson
Hörður Valdimarsson
Júlíus Ragnar Pétursson
Lúðvík Eiríksson
Sherry Inga Halterman
Sigríður Arnþórsdóttir
Svanhvít Sverrisdóttir
Þorsteinn Guðbrandsson
Örn Guðmundsson
40 ára
Andrea Barbara Dettling
Bragi Smith Helguson
Diljá Sigursveinsdóttir
Guðrún Björk Bjarnadóttir
Gunnar Snævarr Jónsson
Ragnheiður Erla
Hjaltadóttir
Valgarður Lyngdal Jónsson
30 ára
Andri Þór Ómarsson
Elín Kristín Guðrúnardóttir
Gyða Hrund Þorvaldsdóttir
Hrafn H. Malmquist
Húni H. Malmquist
Írena Björk Ásgeirsdóttir
Kolbrún Franklín
Mantas Ceskauskas
Marzena Bogumila
Kulikowska
Sigurður Trausti
Traustason
Stephan Hafsteinn
Magnússon
Svavar Jón Árnason
Til hamingju með daginn
30 ára Nói lauk BA-prófi í
myndlist frá Listaháskóla
Íslands og MA-prófi í
mannfræði frá HÍ og
stundar nú MA-nám í
bókasafns- og upplýs-
ingafræði.
Maki: Lena Geirlaug
Yngvadóttir, f. 1986,
nemi.
Foreldrar: Kristinn H.
Þorsteinsson, f. 1956,
garðplöntufr., og Rósa
Þórarinsdóttir, f. 1956,
skrifstofum. hjá Hörpu.
Nói
Kristinsson
30 ára Helgi ólst upp á
Akureyri, er byggingaiðn-
fræðingur frá HR og starf-
andi húsasmíðameistari.
Maki: Valdís Ösp Jóns-
dóttir, f. 1985, hjúkr-
unarfræðingur.
Börn: Birkir Kári Helga-
son, f. 2008, og Þórhildur
Eva Helgadóttir, f. 2011.
Foreldrar: Hörður Geir
Björnsson, f. 1954, stál-
smiður, og Laufey Braga-
dóttir, f. 1956, starfar við
heimaþjónustu.
Helgi Valur
Harðarson
30 ára Íris lauk prófi í
markaðsfræði við Baruch
College í New York og
starfar hjá Rannsókn-
arnefnd Alþingis.
Maki: Kristinn Ólafur
Kristinsson, f. 1978, starf-
ar hjá Primera Air.
Synir: Mikael Andri, f.
2005; Viktor Ágúst, f.
2008, og Kristinn Arnar, f.
2010.
Foreldrar: Helga Að-
alsteinsd., f. 1950, og Ás-
björn Þorleifsson, f. 1950.
Íris Björk
Ásbjarnardóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
REMINGTON
merkið sem
fólkið treystir
Tæki til hársnyrtingar fyrir alla
Act Heildverslun - Dalvegi 16b - 201 kópavogur
577 2150 - avon@avon.is