Morgunblaðið - 14.09.2012, Side 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samstarfsfólk þitt er reiðubúið til að
aðstoða þig með samvinnu í dag. Ef það er
fyrir neðan þína virðingu geturðu afþakkað
það kurteislega.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt þér finnist þú hafa alla hluti á
hreinu ertu samt ekki viss um hvaða skref þú
átt að stíga næst. Láttu í þér heyra svo hægt
sé að koma hugmyndum þínum á framfæri.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú nærð árangri í samskiptum í dag
því þú áttar þig á því hvað aðrir eru að fara.
Vertu því ekki að rökræða málin þegar nið-
urstaða er fengin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Mundu það, þegar þú átt orðaskipti
við aðra, að vera má að viðmælandi þinn sé
ekki eins harður af sér og sýnist. Ef þú vilt
sýna vægðarleysi, þá er þetta rétta málefnið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú þarft að taka ákvörðun fyrir annað
fólk skaltu gæta þess að hugsa um hag þess
en ekki þinn. Til allrar hamingju hefur þú fulla
stjórn á aðstæðum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er sama hversu þróað sjálfsöryggi
þú hefur, það er alltaf smuga fyrir smá efa til
að laumast að þér. Eignir þínar gætu borið
ríkulegan ávöxt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert síbrosandi og upplífgandi fyrir
fólk í kringum þig. Hugsaðu um það hvernig
best er að koma á jafnvægi milli andlegra og
líkamlegra þarfa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú lætur freistast til þess að
eyða fáránlegum fjárhæðum í einhvern ann-
an. Taktu fagnandi þeim breytingum sem eru
nauðsynlegar þegar til lengri tíma er litið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér tekst að miðla málum ef þú
kemur til dyranna eins og þú ert klæddur.
Vondu fréttirnar eru þær að þú þarft að við-
urkenna gallana fyrst – að minnsta kosti fyrir
sjálfum þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Margt af því sem sýnist áríðandi
leysist upp ef maður lætur sem maður taki
ekki eftir því. Skemmtun, rómantík og
ánægjulegar stundir eru framundan.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft á hvíld að halda. Svo
lengi sem þú ert á réttri leið, er allt í þessu
fína. Varastu bara að gera ekki of mikið úr
hlutunum eða ganga of langt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Dagurinn hentar vel til að ræða við yf-
irmann þinn. Framlag þitt í verkefnum og
ákvörðunum er mikils metið.
Það var svalt og haustlegt ámorgungöngunni hjá Pétri
Stefánssyni:
Alltaf kólnar meir og meir
og myrkrar fyrr á kvöldin.
Hnígur gróður, hrörnar, deyr,
er haustið tekur völdin.
Jón Ingvar Jónsson rakst á þessa
vísu á Leirnum, póstlista hagyrð-
inga. Hann var lítt hrifinn og taldi
um sjálfsögð sannindi að ræða á
þessum árstíma. Leirlöggan, eins
og Jón Ingvar er stundum kallaður,
lét vísu fylgja með þessum aðfara-
orðum: „Við Steindór Andersen
ákváðum einu sinni að yrkja vísu
með „húmar að“. Hún varð svona
(seinni parturinn kom vegna velgj-
unnar sem við fengum af fyrri part-
inum):
Húmar að og hausta fer,
hrynja lauf af tránum.
Þessi vísa ótæk er,
ort af tveimur bjánum.“
Pétur ákvað þegar að breyta vísu
sinni:
Alltaf kólnar meir og meir
morkna lauf á runna,
Svona vísur semja þeir
sem það varla kunna.
Og enn breytti hann haustvís-
unni:
Sólin lækkar, sífellt meir,
sumarblómin hníga.
Svona vísur semja þeir
sem í vitið stíga.
Nú stóðst Friðrik Steingrímsson
ekki mátið:
Klúður var með kveðskapinn
svo kappinn reyndi betur,
þetta tókst í þriðja sinn,
þrautseigur er Pétur.
Jón Eiríksson Drangeyjarjarl
orti á sextugsafmæli sínu:
Þegar ellin á mig kallar,
inn ég henni tæpast býð,
en vona, þegar hausti hallar,
hitti ég á góða tíð.
Gylfi Pálsson hafði samband
vegna vísu sem birtist í bréfi til
Vísnahornsins í vikunni: „Hef alltaf
heyrt upphafið á vísu Steingríms
Einarssonar læknis þannig: „Und-
arleg er vor rulla ...“ Síðustu tvær
ljóðlínurnar eru með ýmsu móti;
jafnvel aðeins: „Ýmist drulla eða
harðlífi.“ Þá er vísan svona:
Undarleg er vor rulla
í þessu jarðlífi.
Ýmist drulla
eða harðlífi.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af hausti, þrautseigju
og tveimur bjánum
eftir Jim Unger
„EF HÚN MÆTIR EKKI, EIGUM VIÐ ÞÁ AÐ
SKREPPA OG SKOÐA GULLFOSS?“
HermannÍ klípu
„ÉG ER ALVEG NÓGU KLÁR. ÉG ER BARA
EKKI MEÐ RÉTTA TENGSLANETIÐ.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...það sem gefur
þér útgeislun.
EIN-
KUNN
IR
HROLLUR,
HVERNIG HUNDUR
ER SNATI?
HANN ER BARA
ÓMERKILEGUR
BLENDINGUR,
BASTARÐS-
AFKVÆMI.
SJÁÐU NÚ HVAÐ
ÞÚ GERÐIR!
SNÖKT!
AF HVERJU KVEIKIRÐU
EKKI Á TÖLVUNNI?
OG SPILLI ÞESSUM
GÓÐA DEGI?Íslenska karlalandsliðið í fótboltanáði óskabyrjun í undankeppni
Heimsmeistaramótsins með því að
vinna Norðmenn 2:0 á Laugardals-
velli í liðinni viku en missti flugið þeg-
ar það tapaði 1:0 fyrir heimamönnum
á Kýpur í sömu keppni í vikunni. Ís-
lenskir knattspyrnuáhugamenn
héldu vart vatni eftir fyrri leikinn en
ekki var hátt á þeim risið eftir þann
síðari. En það er ástæðulaust að ör-
vænta, því enn eru átta leikir eftir í
keppninni.
x x x
Þetta verður allt í lagi, segir Böddiprentari gjarnan við fréttastjóra
á morgnana þegar autt blað morg-
undagsins blasir við og engar virðast
vera fréttirnar. Þetta verður allt í
lagi, segir Böddi þegar hann mætir á
kvöldvaktina og hlustar á vaktstjór-
ann þusa um tómar síður morg-
undagsins. Þetta verður allt í lagi,
segir Böddi við blaðamanninn sem á í
erfiðleikum með að láta fréttina og
myndina passa í sniðið. Þetta eru orð
að sönnu hjá Bödda því blaðið kemur
alltaf út.
x x x
Böddi styður mál sitt með því aðbenda á að í 95% tilfella búi fólk
til vandamál, geri úlfalda úr mýflugu.
Því sé ástæðulaust að hafa áhyggjur,
að minnsta kosti fyrirfram. Málarar
máli ekki skrattann á vegginn heldur
lífgi upp á tilveruna með litum sínum.
Það sé til eftirbreytni frekar en til-
búningur ótta og erfiðleika.
x x x
Landsliðið skemmti áhorfendumfyrir viku. Áhorfendur létu sitt
ekki eftir liggja. Fylltu nær völlinn og
voru hreint út sagt frábærir, sungu
og hvöttu sína menn áfram. Vinur
Víkverja hafði á orði að andrúmsloftið
minnti einna helst á stemmninguna
sem ríkti á vellinum, þegar Ísland
vann Austur-Þýskaland 2:1 í und-
ankeppni EM 1975.
x x x
Töluverð breyting hefur orðið álandsliðinu í fótbolta og Víkverji
er á því að bjartir tímar séu fram-
undan þrátt fyrir tapið á móti heima-
mönnum á Kýpur. Í október eru það
Albanía úti og svo Sviss heima. Vík-
verji tekur undir með Bödda. Þetta
verður allt í lagi. víkverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Lofa þú Drottin, sála mín.
(Sálm. 146:1)
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár