Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 29
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29
Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ung-
mennafélags var haldinn 25. febrúar
sl. í félagsheimili Keflavíkur að Sunnu-
braut 34. Fjölmenni var á fundinum
og gengu þingstörf vel. Ellert Eiríksson
var fundarstjóri og Sigurvin Guðfinns-
son ritari. Formaður var endurkjörinn
sem og stjórn félagsins.
Sæmundur Runólfsson, fram-
Aðalfundur Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags:
Gunnar og Sigurbjörn sæmdir gullheiðursmerkjum
kvæmdastjóri UMFÍ, flutti ávarp á
fundinum og sæmdi þá Hermann
Helgason, körfuknattleiksdeild, og
Þorstein Magnússon, knattspyrnu-
deild, starfsmerki UMFÍ. Á fundinum
var Bjarney S. Sævarsdóttir, aðalstjórn,
sæmd gullmerki Keflavíkur. Jón S.
Ólafsson, knattspyrnudeild, og Ásgeir
S. Vagnsson, skotdeild, voru sæmdir
Mynd til hægri: Sigurbjörn Gunnarsson og
Gunnar Sveinsson sem sæmdir voru gull-
heiðursmerkjum, ásamt Einari Haraldssyni,
formanni Keflavíkur, íþrótta- og ung-
mennafélags.
Mynd til vinstri: Hermann Helgason og
Þorsteinn Magnússon en þeir voru sæmdir
starfsmerkjum UMFÍ.
silfurmerki. Birna Petrína Sigurgeirs-
dóttir, badmintondeild, Falur Helgi
Daðason, sunddeild, og Jens Magnús-
son, skotdeild, voru sæmd brons-
merki. Þá sæmdi aðalstjórn Fal Harð-
arson og Elís Kristjánsson silfurheið-
ursmerki félagsins.
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T