Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
3. Landsmót UMFÍ 50+ Vík í Mýrdal 7.–9. júní 2013
Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu
(USVS) er mótshaldari 3. Landsmóts UMFÍ 50+ í
Vík í Mýrdal en mótið fer fram dagana 7.–9. júní í
sumar. USVS heldur mótið í samstarfi við Mýrdals-
hrepp. Aðstaðan í Vík í Mýrdal er góð til að halda
Landsmót UMFÍ 50+. Íþróttahús er í Vík sem er
sambyggt við sundlaugina á staðnum. Góður
frjálsíþróttavöllur er á staðnum með gerviefni en
honum var komið upp fyrir Unglingalandsmótið
sem fram fór í Vík 2005. Sparkvöllur er á staðnum
sem og tveir reiðvellir. Glæsilegur 9 holu golfvöllur
er í Vík. Fyrir utan þessa góðu aðstöðu í Vík er nátt-
úran einstök.
Umgjörðin verður góð
„Undirbúningur fyrir mótið gengur vel og ákveðnar
hafa verið greinar sem keppt verður í á mótinu.
Drög að dagskránni, með fyrirvara um breytingar,
má finna á heimasíðu UMFÍ. Eins og á mótinu í
Mosfellsbæ í fyrra verður boðið upp á heilsufars-
mælingar, zumba og sund-
leikfimi. Þá verður farin sögu-
ganga um Vík svo að eitthvað sé
nefnt. Tjaldsvæðið í Vík er einstaklega gott og því til-
valið fyrir keppendur og gesti að nýta þessa þjón-
ustu alla mótsdagana og hitta um leið gamla kunn-
ingja. Aðstæður allar í Vík eru mjög góðar þannig
að öll umgjörðin í kringum mótið er góð,“ sagði
Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri 3.
Landsmóts UMFÍ 50+, í samtali við Skinfaxa.
27. Landsmót UMFÍ Selfossi 4.–7. júlí 2013
Héraðssambandið
Skarphéðinn heldur
27. Landsmót UMFÍ á
Selfossi 4.–7. júlí í sumar. Undirbúningur fyrir mótið gengur vel. Glæsilegur frjálsíþróttavöllur hefur verið gerður á Selfossi en á honum var keppt á Unglinga-landsmótinu sem haldið var þar í fyrrasumar. Hvert sem litið er eru allar aðrar aðstæður til íþróttaiðkana fyrsta flokks á Selfossi.
„Undirbúningur fyrir mótið er kominn í fullan gang og gengur samkvæmt áætlun. Við erum að vinna dagskrána og tímasetningar fyrir keppnisgreinar í íþróttahúsinu. Við erum ennfremur að vinna að fjár-mögnun og því að fá samstarfsaðila að mótinu. Sama framkvæmdanefnd er að störfum og vann á Ungl-ingalandsmótinu í fyrra svo að við erum með vant fólk sem er mikilvægt. Það er tilhlökkun í herbúðum okkar og við munum hvetja sambandsaðila til góðrar þátttöku á mótinu,“ sagði Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, í samtali við Skinfaxa.