Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 9
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9 ÍR bar sigur úr býtum í jafnri og spennandi 7. bikarkeppni FRÍ innanhúss sem fram fór í Laugardalshöll helgina 16.–17. febrúar sl. ÍR hlaut 119 stig en í öðru sæti var lið Norður- lands (UMSS, UMSE, UFA og HSÞ) með 109,5 stig og FH, bikarmeistarar síðasta árs, urðu í þriðja sæti með 90 stig. Norðlendingar sigr- uðu í karlakeppninni með 58 stig eða 3 stig- um umfram ÍR sem var með 55 stig. ÍR-konur fengu flest stig í kvennakeppninni eða 64 en Norðlendingar urðu í 2. sæti með 51,5 stig. FH varð í þriðja sæti, bæði í karla- og kvenna- keppninni. Mikið var um góðan árangur sem gerist ekki oft í stigakeppni. Í stangarstökki bar helst til tíðinda að tveir keppendur stukku Sameiginlegt lið Norðurlands sigraði í karlaflokki Bikarkeppni FRÍ innanhúss: yfir 5 metra þegar þeir Bjarki Gíslason, Norð- urlandi/UFA, og Mark Winston stukku báðir 5 metra en Bjarki hafði sigur þar sem hann fór yfir þá hæð í fyrstu tilraun. Nokkuð óvænt sigraði Bjarki í þrístökki líka. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist hér á landi síðan 1982, á 75 ára afmælismóti ÍR, en þá fóru tveir íslensk- ir stökkvarar yfir fimm metra, Sigurður T. Sigurðsson og Kristján Gissurarson. Hafdís Sigurðardóttir sigraði tvöfalt, í lang- stökki með 6,16 m og í 60 m hlaupi á 7,70 sek. sem er besti árangur hennar í greininni, og jafn árangri Hrafnhildar Eir, ÍR, sem varð 1/100 úr sek. á eftir Hafdísi að þessu sinni. Hrafnhildur sigraði nokkuð sannfærandi í 200 m hlaupinu. Kolbeinn Höður Gunnars- son, Norðurlandi, sigraði bæði í 60 og 400 m hlaupi. Í 60 m hlaupi kom hann í mark á 7,09 sek. sem er næstbesti tími hans og ársins innanhúss í ár, og í 400 m hlaupi á tímanum 48,26 sek., eftir harða keppni við Trausta Stefánsson, FH. Þorsteinn Ingvarsson og Kristinn Torfason urðu í 1. og 2. sæti í lang- stökkinu með 7,48 m og 7,11 m. Þórdís Steinsdóttir, FH, setti met bæði í flokki 13 ára og 14 ára stúlkna í 800 m hlaupi, þegar hún kom í mark á tímanum 2:16,46 mín., en Björg Gunnarsdóttir, ÍR, sigraði á 2:15,28 mín. sem er persónulegt met hjá henni í greininni. Lið ÍR hafði nokkuð öruggan sigur í stiga- keppni Meistaramóts Íslands innanhúss sem fram fór í Laugardalshöll 9.–10. febrúar sl. ÍR sigraði bæði í karla- og kvennaflokki. Í karla- flokki hlaut ÍR 16.741 stig en í öðru sæti var lið Breiðabliks með 11.326 stig og FH í því þriðja með 9.346 stig. ÍR-konurnar hlutu sam- tals 16.520 stig en UFA varð í öðru sæti með 11.201 stig og FH í þriðja sæti með 8.731 stig. Samanlagt hlaut ÍR 33.261 stig. FH varð í öðru sæti með 18.077 stig og UFA í því þriðja með 15.733 stig. Góður árangur náðist í mörgum greinum. Aníta Hinriksdóttir, ÍR, setti nýtt Íslandsmet í 400 m hlaupi, 54,42 sek., í flokkum 16–17 ára, 18–19 ára og 20–22 ára en sjálf er Aníta á sautjánda ári. Með þessum árangri náði Aníta einnig lágmarki á Evrópumeistaramót innan- húss sem fram fór í Gautaborg í byrjun mars. Þá má geta þess að Kolbeinn Höður Gunn- arsson, UFA, sigraði í 400 m hlaupi karla á Kvennasveit UFA í öðru sætiMeistaramót Íslands: tímanum 48,58 sek. Sigurvegarinn í 60 m hlaupi kvenna var Hrafnhildur Eir Hermóðs- dóttir, ÍR, á 7,70 sek. Sigurvegari í 60 m hlaupi karla var Haraldur Einarsson, HSK/Selfoss, á tímanum 7,08 sek. Kúluvarpið unnu FH-ing- arnir Óðinn Björn Þorsteinsson með 17,78 m og Sveinbjörg Zophoníasdóttir með 13,31 m. Stefán Þór Jósefsson úr UFA hafði sigur í þrí- stökki karla með stökki upp á 12,59 m og Hafdís Sigurðardóttir, UFA, sigraði í langstökki kvenna með 6,17 m. ÍR-ingarnir Hlynur Andrésson og Fríða Rún Þórðardóttir unnu í 1.500 m hlaupi. Hlynur hljóp vegalengdina á 4:10,23 mín. og Fríða Rún á 5:14,16 mín. Í hástökki kvenna sigraði María Rún Gunn- laugsdóttir, Ármanni, en hún stökk 1,73 m.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.