Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 35
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35 91. sambandsþing UMSB fór fram í Þinghamri á Varmalandi laugardaginn 9. mars sl. Þingið var vel sótt og mættu 33 þingfulltrúar frá 12 aðildarfélögum sam- bandsins. Einnig sat þingið Sæmundur Runólfsson, fram- kvæmdastjóri UMFÍ. Tvö ný félög óskuðu eftir inngöngu í Ungmennasambandið, Golfklúbbur Húsafells og Frjálsíþrótta- félag Borgarfjarðar. Voru bæði félögin tekin inn í sambandið með fyrirvara um að lög þeirra hljóti samþykki laga- nefnda UMFÍ og ÍSÍ. Sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar: Samningar og framtíðarstefna samþykkt Mörg og stór mál lágu fyrir þinginu en þar ber helst að nefna framtíðar- stefnu UMSB og samstarfssamning við Borgarbyggð. Samningurinn felur í sér náið samstarf UMSB og Borgar- Mynd að ofan: Sigurður Guðmunds- son, sambandsstjóri UMSB í ræðustóli. Mynd til vinstri: Sæ- mundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Sigurður Guðmundsson, sambandsstjóri UMSB, og Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ. byggðar sem breytir að nokkru leyti rekstrargrundvelli UMSB sem með samningnum tekur að sér umsjón allra íþróttatengdra mála fyrir sveitar- félagið. Samningurinn kemur til út frá vinnu við framtíðarstefnu sambands- ins en við þá vinnu kom bersýnilega í ljós vilji almennings til að UMSB starfi sem samnefnari ólíkra íþróttagreina í héraðinu og samstarfsvettvangur. Bæði samningurinn og stefna UMSB voru samþykkt samhljóða. Í ljósi sam- starfsvilja ætti því ekki að koma á óvart að einnig var samþykkt sam- hljóða að sækja um að halda þau Landsmót sem í boði verða á næstu árum, en það eru Unglingalandsmót UMFÍ 2016, Landsmót UMFÍ 2017 og/ eða 2021 og Landsmót 50+ 2015. Einnig var samþykkt að koma upp heimasíðu þar sem hægt væri að nálgast 100 ára sögu sambandsins á rafrænu formi ásamt þeim fjölda mynda sem sambandið á frá starfi sínu í héraðinu síðustu áratugi. Kjósa átti að þessu sinni um þrjá í stjórn, þau Aðalstein Símonarson, meðstjórnanda, Maríu Hlín Eggerts- dóttur, ritara, og Sigurð Guðmunds- son, sambandsstjóra. Þeir Aðalsteinn og Sigurður gáfu kost á sér áfram og voru þeir endurkjörnir en í stað Maríu var Þórhildur María Kristinsdóttir, Umf. Reykdæla, kosin nýr ritari sam- bandsins. Ný inn í varastjórn sam- bandsins komu þau Sólrún Halla Bjarnadóttir, Umf. Íslendingi, Bjarni Johansen, Golfklúbbi Borgarness, og Jón Eiríkur Einarsson, Umf. Íslendingi. KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.