Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 23
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23 Davíð Hildiberg íþróttamaður Keflavíkur Davíð Hildiberg Aðalsteinsson var valinn íþróttamaður Keflavíkur 2012 en hann vann þrjá Íslandsmeistaratitla á árinu í flokki karla, í 50 m, 100 m og 200 m baksundi. Davíð átti gott ár í ár þar sem besta frammistaða hans var í 100 m baksundi á ÍM 50 þar sem hann vann gullverðlaun. Fékk hann fyrir það sund 748 FINA-stig sem er frábær árangur og þetta var einnig besti tími hans. Hann var valinn fyrir Íslands hönd til að keppa á meist- aramóti smáþjóða en gat ekki mætt á það mót. Hann keppti á Evrópumótinu, sem hald- ið var í Chateres í Frakklandi nú í nóvember, í 25 m laug þar sem hann náði sínum bestu tímum í 50 m, 100 m og 200 m baksundi. Fyrir 100 m baksundið fékk hann 698 FINA- stig. Davíð æfir nú í Arizona í Bandaríkjunum þar sem hann stundar háskólanám. Rannveig íþróttamaður UFA Íþróttamaður Ungmennafélags Akureyrar árið 2012 er Rannveig Oddsdóttir langhlaup- ari. Rannveig er götuhlaupari ársins á Íslandi í kvennaflokki. Hún hefur bætt árangur sinn jafnt og þétt undanfarin ár. Rannveig náði besta árangri sínum í 10 km hlaupi í sumar en þá hljóp hún á tímanum 37:11 í Akureyrar- hlaupinu. Hún tók þátt í Berlínarmaraþoninu í október þar sem hún náði öðrum besta tíma Íslendings frá upphafi 2:52,3. Þessi árangur fleytti henni inn í Ólympíuhóp FRÍ 2016. Ingibjörg íþróttamaður Strandabyggðar Ingibjörg Emilsdóttir, hlaupakona, var valin íþróttamaður Strandabyggðar fyrir árið 2012. Ingibjörg er fædd árið 1975. Hún hefur unnið mikið og gott starf í þágu hlaupaíþróttarinn- ar í Strandabyggð. Í umsögn um hana segir að hún sé dugleg, hvetjandi og frábær fyrir- mynd. Auk þess að æfa og keppa hefur Ingi- björg smitað marga af hlaupabakteríunni og m.a. haft umsjón með hlaupahópi fólks á öll- um aldri sem æfir í viku hverri. Ingibjörg hljóp m.a. hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu og 17 km í Hamingjuhlaupinu svo að fátt eitt sé nefnt. Bjarki íþróttamaður Borgarbyggðar Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness var valinn Íþróttamaður Borgar- byggðar fyrir árið 2012. Að valinu stendur tómstundanefnd Borgarbyggðar á grund- velli tillagna íþróttafélaga í sveitarfélaginu og var þetta í 22. sinn sem verðlaunin eru afhent. Einnig valdi UMSB Bjarka íþrótta- mann Borgarfjarðar 2012 og hann er því verð- launum klyfjaður um þessar mundir. Það ætti ekki að koma á óvart því að hann náði á síðasta ári frábærum árangri í íþrótt sinni. Almannaheill, samtök þriðja geirans, efndu þann 12. febrúar sl. til málþings í Háskólan- um í Reykjavík undir yfirskriftinni „Hvaða gagn gera frjáls félagasamtök?“ Málþingið var vel sótt. Flutt voru þrjú erindi og eftir hvert þeirra voru teknar fyrir spurningar úr sal og umræður um þær. Ragna Árnadóttir, formaður Almanna- heilla, flutti ávarp við upphaf málþingsins og sagði þar m.a. frá gerð lagafrumvarps um frjáls félagasamtök þar sem unnið er að því að tilvist félaga, sem vinna án hagn- aðarvonar í þágu almennings, verði viður- Vel sótt málþing Almannaheilla kennd og framlag þeirra til íslensks sam- félags metið á sýnilegan hátt. Una María Óskarsdóttir, MA í lýðheilsufræðum, flutti erindi og sagði frá áhrif félagsstarfs á heilsufar. Þá flutti Björn Þorsteinsson, doktor í heimspeki og sérfræðingur við Heimspekistofnun Háskóla Íslands, erindi um þátt frjálsra félagasamtaka í lýðræði og loks flutti Ketill B. Magnússon, fram- kvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð, erindi og fjallaði um hvert væri framlag frjálsra félagasamtaka. Almannaheill – samtök þriðja geirans – voru stofnuð sumarið 2008 til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum frjálsra félagasamtaka er starfa í almanna- þágu og að vera málsvari þeirra gagnvart opinberum aðilum og fjölmiðlum. Samtökin ætla að vinna að því að heild- arlöggjöf verði sett um starfsemi frjálsra félagasamtaka, að skattaleg staða þeirra verði bætt og að þriðji geirinn verði sýni- legri í þjóðfélaginu. Tilgangur félagsins er að vinna að sam- eiginlegum hagsmunamálum fyrir almanna- heillasamtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa í almannaþágu, að skapa þessum aðilum hagfellt starfsumhverfi, styrkja ímynd þeirra og efla stöðu þeirra í sam- félaginu. Einnig á félagið að vera málsvari almannaheillasamtaka gagnvart opinber- um aðilum og samfélaginu, stuðla að um- ræðu um hagsmunamál meðal almanna- heillasamtaka og á opinberum vettvangi og þrýsta á aðgerðir stjórnvalda í málefn- um þeirra. Aðilar að Almannaheillum eiga AFA, SKB, Blindrafélagið, Bandalag íslenskra skáta, Geðhjálp, Gróður fyrir fólk, Heimili og skóli, Hjartavernd, Hjálparstarf kirkjunnar, Land- vernd, Krabbameinsfélagið, Kvenréttinda- félag Íslands, Neytendasamtökin, Styrktar- félag lamaðra og fatlaðra, Umhyggja, UMFÍ, Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands. Frá málþingi Almannaheilla sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík. F M BS

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.