Skinfaxi - 01.03.2013, Blaðsíða 13
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13
16. Unglingalandsmót UMFÍ Höfn í Hornafirði 2.–4. ágúst 2013
Ungmennasambandið Úlfljótur (USÚ) heldur 16. Unglinga-landsmót UMFÍ á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.
Þetta er í annað sinn sem mótið er haldið á Höfn en síðast var það
haldið þar árið 2007. Veruleg uppbygging íþróttamannvirkja var
fyrir mótið 2007 og hún hefur haldið áfram síðan. Stórglæsileg
sundlaug og stórt knattspyrnuhús hafa verið tekin í notkun og munu
koma að góðum notum á mótinu. Tjaldsvæðið, sem verður vel útbúið,
verður í göngufæri við aðalkeppnissvæðið.
Fólk býr yfir dýrmætri reynslu frá mótinu 2007„Það er ekki hægt að segja annað en að undirbúningi miði vel áfram. Aðstaðan á Höfn er til
fyrirmyndar og í raun er allt til staðar. Það er búið að ráða sérgreinastjóra í allar greinar svo
að undirbúningur er á góðu róli. Það vant fólk, sem kemur að undirbúningnum, sem býr yfir
dýrmætri reynslu frá Unglingalandsmótinu sem haldið var á Höfn 2007. Tjaldsvæðið er það
sama og 2007 og þar er aðstaðan góð og umhverfið sjálft frábært. Drög að dagskránni eru að
verða tilbúin og hana verður hægt að nálgast á heimasíðu mótsins,“ sagði Ómar Bragi Stefáns-
son, framkvæmdastjóri 16. Unglingalandsmóts UMFÍ á Höfn í Hornafirði.
Flott fyrirmynd er forvarnaverkefni sem
unnið er upp úr verkefninu Local Hero.
Local Hero er sænskt forvarnaefni sem
CAN (Centralförbundet för alkohol- och
narkotikaupplysning) í Svíþjóð hefur nýtt
undanfarin ár við góðan orðstír. Tilgangur-
inn með Local Hero er að gefa unglingum
tækifæri til að vinna eigin verkefni og velta
fyrir sér spurningum varðandi lyfjaneyslu
og ræða áhættuna og hvað sé til varnar.
Samkvæmt hugmyndafræði Local Hero
getur hver sem er orðið flott fyrirmynd.
Það skiptir engu máli hvaða áhugamál
maður hefur eða hvað maður vill gera við
frítímann sinn, maður getur alltaf orðið
Flott fyrirmynd. Hvort sem manni finnst
gaman í billjard eða bara að hanga í félags-
miðstöðinni, hvort sem maður stundar
íþróttir í einhverju félagi eða gerir lítið
sem ekkert fyrir utan skólann. Eina tak-
mörkunin er áhugi þátttakenda á því að
lifa heilsusamlegu lífi án vímuefna.
Námsefni til að nýta við klúbbastarfsemi
hefur verið þýtt ásamt leiðbeiningabók
fyrir klúbbstjóra sem á að halda utan um
klúbbinn hverju sinni. UMFÍ fékk, í sam-
starfi við SAMFÉS, þær Stinu Hähnert og
Ninu Dahlman frá CAN í Svíþjóð til að
Maður getur alltaf orðið Flott fyrirmynd
koma til landsins af þessu tilefni. Þær leiddu
tveggja daga námskeið, sem haldið var
6.–8. febrúar sl., um notkun bókanna, til að
koma þátttakendum af stað til að nýta sér
efnið í félagsmiðstöðvum. Hugmyndin er
svo sú að hópur sá sem tók þátt í námskeið-
inu muni leggja mat á efnið og hvernig
það nýtist í starfi.
Tíu þátttakendur voru á námskeiðinu
og starfa þeir allir í félagsmiðstöðvum.
Skemmtileg dreifing var meðal þátttak-
endanna og komu þeir alls úr sjö félags-
miðstöðvum og einu íþróttafélagi. Eftir
námskeiðið fóru allir til síns heima með
meiri þekkingu á Flottri fyrirmynd í far-
teskinu og eru byrjaðir að starfa í félags-
miðstöðvum sínum.
Vinsamlega hafið samband við Sabínu
Steinunni Halldórsdóttur landsfulltrúa,
sem sér um verkefnið fyrir UMFÍ, ef frekari
upplýsinga er óskað.
Frá námskeiðinu
um notkun leiðbein-
ingabókar Local
Hero. Það tókst vel
og virtust þátttak-
endur njóta sín vel.
Samkvæmt hug-
myndafræði Local
Hero getur hver
sem er orðið Flott
fyrirmynd.