Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Side 6
Dagblaðið Boston Globe velti
því fyrir sér í vikunni hvers vegna
frambjóðendur frá Massachusetts
yrðu að gjalti þegar þeir kæmu á
stóra sviðið í forsetakosningum.
Mitt Romney var þar ríkisstjóri.
„Hér eru þeir greindir menn
með skynsamlegan, en háleitan,
metnað,“ sagði í blaðinu. „Á
þjóðarsviðinu breytast þeir í
skopmyndir. hvaðan sem þeir
koma í stjórnmálum verða þeir
hrokafullir frambjóðendur með
stífa hárgreiðslu sem ná ekki til
almennings.“ Benti
blaðið á misheppn-
uð framboð Johns
Kerrys 2004 og
Michaels Dukakis
1988 máli sínu
til stuðn-
ings.
Mitt Romney á erfiða vikuað baki. Birting mynd-skeiðs frá lokuðum fjár-
öflunarfundi þar sem forseta-
frambjóðandi repúblikana afskrifar
47% Bandaríkjamanna sem afætur,
sem borgi ekki skatt og aldrei
muni kjósa sig, tröllreið hinni póli-
tísku umræðu. Hörðustu stuðnings-
menn Romneys reyndu að réttlæta
ummælin, en gagnrýnin barst bæði
frá hægri og vinstri.
Bandaríkjamenn kjósa ekki að-
eins forseta 6. nóvember, heldur
einnig fulltrúadeild þingsins og
þriðjung öldungadeildarinnar.
Frambjóðendum repúblikana í
kjördæmum þar sem mjótt er á
munum hugnast lítt að þurfa að
svara fyrir óþægileg ummæli for-
setaframbjóðandans, en demókrat-
ar líta á þau sem fallbyssufóður í
kosningabaráttunni.
„Ef fánaberanum í forsetakosn-
ingunum gengur ekki vel hefur það
áhrif á öllum kjörseðlinum,“ segir
Tommy G. Thompsons, fyrrverandi
ríkisstjóri í Wisconsin, sem nú
sækist eftir öldungadeildarsæti
þar.
Það hefur vakið nokkrar umræð-
ur að Romney skuli segja að tæp-
lega helmingur Bandaríkjamanna
sé þurfalingar, sem séu háðir því
að vera á framfærslu ríkisins. Þeir
hyggist kjósa Obama vegna þess
að þá sé tryggt að þeir fái áfram
skammtinn sinn.
Hafa menn velt því fyrir sér
hvaða hugmyndir hann geri sér um
þjóðina sem hann hyggst leiða.
Ummæli Romneys hafa ekki orðið
til í tómarúmi. „Okkur blöskrar
það óréttlæti að nánast helmingur
allra Bandaríkjamanna borgi ekki
einu sinni tekjuskatt,“ sagði Rick
Perry, ríkisstjóri í Texas, þegar
hann bauð sig fram til forseta í
forkosningum repúblikana. Paul
Ryan, varaforsetaefni Romneys,
hefur einnig talað um að skammt
sé í að „þiggjendur verði í meiri-
hluta gagnvart þeim sem þéna í
samfélaginu“.
Þótt rétt sé að tæplega 47%
Bandaríkjamanna borgi ekki tekju-
skatt
til
alríkis-
ins er
ekki þar með
sagt að þeir séu
skattlausir. Margir borga launa-
tengd gjöld og útsvar. Ekki má
heldur gleyma að í þessum hópi
eru eftirlaunaþegar, sem nú njóta
þess, sem þeir lögðu af mörkum
þegar þeir voru á vinnumarkaði.
Romney stendur við ummæli sín,
segir aðeins að þau hafi verið
óheppilega orðuð. Hann kveðst
ekki vilja búa til „net fíknar“, þess
í stað vilji hann fylgja stefnu, sem
stækki hagkerfið og lyfti Banda-
ríkjamönnum úr fátækt. Um leið
segir hann að hann sé málsvari
100% þjóðarinnar.
Enn er vitaskuld óvíst hvaða
áhrif ummæli Romneys munu hafa
á framboð hans. Það er ekki rétt
hjá Romney að 47% þjóðarinnar,
sem hann vísaði til, séu bakland
demókrata. Svo virðist sem kjós-
endur úr þessum hópi séu hlutfalls-
lega fleiri í ríkjum, sem kosið hafa
repúblikana. Samkvæmt skoðana-
könnunum er mjótt á munum á
milli hans og Baracks Obama for-
seta. Obama hefur þó yfirleitt for-
skot og í fyrsta skipti í marga
mánuði er rúmlega helmingur
Bandaríkjamanna ánægður með
störf forsetans, samkvæmt skoð-
anakönnunum. Hann hefur einnig
meira fylgi í þeim ríkjum, sem tal-
ið er að muni ráða úrslitum.
Enn er þó rúmur mánuður í
kosningar. Á síðustu öld hafa sex
repúblikanar reynt að fella sitjandi
forseta. Aðeins einum tókst það.
Ronald Reagan felldi Jimmy Car-
ter 1980. Frambjóðendurnir eiga
þrisvar eftir að mætast í kapp-
ræðum. Romney hefur digrari sjóði
en keppinauturinn. Tekið var til
þess að í liðinni viku einbeitti Rom-
ney sér að fjáröflun og sást vart á
kosningafundum. Romney var í lið-
inni viku spurður hvort hann hygð-
ist nú bæta í kosningabaráttuna.
„Við erum á lokasprettinum, er það
ekki?“ var svarið.
Romney
gerir sér
erfitt fyrir
MITT ROMNEY, FORSETAFRAMJÓÐANDI REPÚBLIKANA,
SAGÐI Á LOKUÐUM FUNDI AÐ HELMINGUR BANDARÍKJA-
MANNA VÆRI ÞURFALINGAR SEM ALLTAF MYNDU KJÓSA
BARACK OBAMA. ORÐ HANS VÖKTU HARÐAR DEILUR, EN
HVER ER SKAÐINN?
ÓLÁN UPPRUNANS?
John
Kerry
Mitt Romney, forsetaframbjóðandi repúblikana, heilsar stuðningsmönnum og slær á létta strengi við komuna
til Sarasota í Flórída á fimmtudag. Ummæli hans á lokuðum fundi hafa valdið uppnámi.
AFP
Það eru 47% sem styðja [Obama], sem eru háð ríkisvaldinu, sem telja
sig vera fórnarlömb … Verkefni mitt er ekki að hafa áhyggjur af þessu
fólki. Ég mun aldrei geta fengið það til að axla ábyrgð á sjálfu sér og sjá
um sig sjálft.“ Mitt Romney á lokuðum fjáröflunarfundi.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012
HEIMURINN
VENESÚELA
SAN CRISTOBAL Kólumbíski eiturlyfjabaróninn
Daniel „El Loco“ Barrera var handtekinn í upphafi
vikunnar í símaklefa í San Cristobal íVenesúela. Juan
Manuel Santos, forseti Kólumbíu, sagði að sá síðasti
hinna aðsópsmiklu eiturlyfjaforingja væri fallinn.
Barrera hafði gert ýmislegt til að villa á sér heimildir,
farið í aðgerðir á andliti til að breyta útlitinu og baðað
fingurna í sýru til að eyða fingraförunum. Hann náðist
með því að miðaðir voru út 69 almenningssímar, sem
hann notaði til að eiga samskipti við fjölskyldu og
bandamenn.
SPÁNN
MADRÍD Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hafn-
aði á fimmtudag alfarið kröfu Katalóna um fjárhagslegt
sjálfstæði eftir að hafa átt fund með Arturi Mas, leiðtoga
Katalóníu. Í yfirlýsingu frá Rajoy sagði að spænska
stjórnarskráin veitti ekki svigrúm til slíks sjálfstæðis og
takast yrði á við yfirstandandi kreppu með því að standa
saman. Mas harmaði afstöðu forsætisráðherrans og sagði
að málinu væri ekki lokið.
RÚSSLAND
MOSKVU Rússnesk stjórnvöld
greindu frá því á miðvikudag að
bandarísku þróunarstofnuninni
USAID hefði verið gefinn
frestur til 1. október til að
binda enda á starfsemi sína í
Rússlandi. Rússneskir ráðamenn
halda því fram að stofnunin hafi
með störfum sínum haft afskipti
af rússneskum stjórnmálum og
við það verði ekki unað. Þessi
ráðstöfun ber vitni kólnandi
samskiptum Bandaríkjanna og
Rússlands.
KÍNA
PEKING Hávær mótmæli hafa
verið við japanska sendiráðið og
japönsk fyrirtæki í Kína auk þess
sem japanskir vegfarendur í landinu
hafa orðið fyrir árásum vegna deilu
stjórnvalda landanna um yfirráð
yfir eyjum í Suður-Kínahafi sem
Japanar kalla Senkaku, en Kínverjar
og Taívanar Diaoyu.Verulega hitnaði
í samskiptum ríkjanna og japönsk
fyrirtæki stöðvuðu starfsemi sína í
Kína tímabundið. Ástandið róaðist
eftir því sem leið á vikuna.