Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012 Ferðalög og flakk Ef það er eitthvað sem er nóg af í Berl- ín er það ís. Mest er af ískaffihúsum í Prenzlauer Berg en þau hafa sprottið upp víðar. Hver staður hefur sinn sjarma, sumir bjóða t.d. eingöngu upp á lífrænan ís. Súkkulaðiísinn er sígildur en finna má óvenjulegri tegundir á borð við freyðivíns- og myntuís. Ís- kaffihúsið Annamaria er að finna í einni fallegustu götunni í Berlín, Husemannstraße, rétt fyrir ofan Kollwitzplatz. Leit- ið eftir orðunum „eigene her- stellung“ eða „eigin fram- leiðsla“ í glugganum. DÁSAMLEGT ÍSKAFFIHÚS B erlín er nú orðin einhver allra vinsælasti áfanga- staðurinn í Evrópu, á pari við París og London. Ferðamönnum í borginni hefur fjölgað mjög enda er margt sem mælir með henni. Fyrir utan heimsfræg minnismerki á borð við Brandenborgarhliðið og rústir Berlínarmúrsins er borgin mikil menningarborg með ótrúlegum fjölda safna. Margir af hvað vinsælustu ferða- mannastöðunum í borginni tengjast seinni heimsstyrjöldinni eins og minnisvarðinn um helförina, sem er mikil upplifun að sjá og Gyðingasafnið (Jüdisches Museum Berlin). Önnur tengjast sögu borgarinnar og þessum mótum austurs og vesturs sem þar voru eins og Berlínarmúrinn, Checkpoint Charlie-safnið og DDR-safnið, svo eitthvað sé nefnt. Fyrir utan allt þetta eru síðan allir veitingastaðirnir, skemmtistaðirnir, búðirnar og garðarnir en Berlín er óvenjulega græn borg. Það er líka alveg sérstakur andi í henni og hún hefur mjög afslappað yfirbragð, öfugt við hina hefðbundnu þýsku ímynd. Borgin nær yfir stórt svæði og hafa bæjarhlutarnir hver sinn sjarma. Þau hverfi sem hafa notið hvað mestra vinsælda síðustu ár eru hvað helst Prenzlauer Berg, Mitte, Kreuzberg og Neukölln. Frábærar almenningssamgöngur eru í borginni svo enginn þarf að óttast að eiga erfitt með að komast milli svæða. Góða ferð! HEIMSBORGIN Berlín Í BORGINNI ÞAR SEM ÁÐUR MÆTTUST AUSTUR OG VESTUR MÆTAST NÚ AÐRIR MENNINGARSTRAUMAR OG BORGIN IÐAR AF LÍFI. BERLÍN ER SÉRSTAKLEGA SKEMMTILEG BORG TIL AÐ SÆKJA HEIM. Texti og myndir: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Fyrir fólk með áhuga á útivist og hreyfingu er nóg að gera í Berlín eins og til dæmis í Tempelhof- garðinum. Þar sem áður var flug- völlur stundar fólk nú ýmiss konar íþróttir á breiðum flugbrautunum. Uppáhalds markaðurinn minn er markaður sem haldinn er við Kollwitzplatz á hverjum laugardegi. Þarna er matur í fyrirrúmi og bæði hægt að kaupa sér gott hráefni og líka setjast niður og borða. Líka er þarna að finna föt, hálsmen og annað handverk. Stemningin við Kollwitzplatz er einstök og nauð- synlegt að gera ráð fyrir rúmum tíma á staðnum til að geta bæði skoðað og sest niður og fengið sér bita. Annar magnaður markaður, sem er töluvert stærri í sniðum, er haldinn í Mauerpark á sunnu- dögum. Þar eru gömul og ný föt, húsgögn, smá- hlutir og bara alls kyns gamalt dót sem gaman er að gramsa í. Mörg veitingasvæði eru í garðinum svo þarna er einnig hægt að koma til að borða. MAGNAÐIR MARKAÐIR FLJÓTANDI LÚXUSHÓTEL 19. OKT - 1. NÓV 2012 OASIS OF THE SEAS Fljótandi 5 stjörnu hótel sem undirstrikar að skemmtisiglingar eru ævintýri og upplifun sem seint gleymist. MEIRA Á UU.IS 13. APRÍL - 1. MAÍ 2013 SERENADE OF THE SEAS Þér gefst m.a. tækifæri á að fara eyðimerkursafarí í Dubai, skoða Luxor og Konungadalinn í Egyptalandi, kafa í Rauðahafinu VERÐDÆMI: 464.900*,- á mann m.v. 2 fullorðna í innri-klefa. Tilhugsunin um fljótandi lúxus hótel sem líður á milli áfangastaða er freistandi! VERÐDÆMI: 359.800*,- á mann m.v. 2 fullorðna í innri-klefa. * Innifalið: flug, skattar, gisting, akstur og íslensk fararstjórn. Prentað með fyrirvara um villur. ÚRVAL ÚTSÝN | LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | MEIRA Á URVALUTSYN.IS VESTUR - KARÍBAHAFDUBAI OG SUEZ CANAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.