Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Qupperneq 25
23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Heimili og hönnun
E
rla Tryggvadóttir, dagskrárgerðarkona á Rás
1, safnar í kringum sig fallegum hlutum sem
hafa tilfinningalegt gildi fyrir hana. Þó þessi
bjarta íbúð við Elliðavatn sé ný hafa hlut-
irnir í henni sögu. „Mér finnst nauðsynlegt að hlut-
irnir í kringum mann hafi sögu. Mér finnst gaman að
hafa fallega hluti í kringum mig og hluti þar sem ég
tengi við upprunann,“ segir Erla.
„Þeir hlutir sem ég raða í kringum mig, eins og
málverkin sem ég er með, hafa þýðingu fyrir mér,“
segir hún en eitt þeirra er málverk af kvenkyns ofur-
hetjum eftir Erró, sem veitir henni innblástur.
Erla les mikið. „Mér finnst bókalaust heimili vera
sálarlaust heimili,“ segir hún en bækurnar eru bæði í
stofunni og í svefnherberginu. Henni finnst líka að
heimili eigi að vera griðastaður. „Ég legg mikla
áherslu á að það sé gott að koma heim,“ segir hún.
Erla er komin nokkuð langt frá æskustöðvunum í
Vesturbænum. „Ég hef nokkrum sinnum í sumar
vaknað upp við hanagal hér. Þetta er eins og sænskt
úthverfi,“ segir hún um stemninguna í hverfinu og
hlær. „Hverfið er að verða grónara og ein besta vin-
kona mín býr hérna í nágrenninu,“ bætir hún við.
Erla dvaldi ár í Danmörku og er enn hrifnari af
norrænni hönnun eftir þann tíma. „Danirnir hafa ein-
stakt lag á því að raða í kringum sig fáum en fal-
legum hlutum. Þeir eru duglegir við að blanda saman
gamalli hönnun og einhverju nýju. Það er mjög
skemmtilegt.“
„Ég er mikill safnari,“ segir hún og segir það
fylgja því að hafa áhuga á hlutum með sögu. „Ég hef
gaman af gömlum tíma og finnst stundum eins og ég
sé fædd á vitlausum tíma. Mér finnst tímabilið eftir
fyrra stríð til 1960 mjög skemmtilegt.“
Morgunblaðið/Ómar
Vísun í
fortíðina
ERLA TRYGGVADÓTTIR ER SAFNARI, HRIFIN AF HLUTUM MEÐ SÖGU OG
FINNST STUNDUM EINS OG HÚN HAFI FÆÐST Á VITLAUSUM TÍMA.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
* Svefnherbergið er fallegt. Það er ró yfir því og ríkir þar austrænstemning, á rúminu er indverskt silkirúmteppi og myndirnar á veggjunum
eru handmálaðar silkimyndir frá Kína. Skinnið sem er á gólfinu og í púð-
unum er antilópuskinn sem Erla keypti í eftirminnilegri ferð til Namibíu.
* „Þegar ég kláraði BA-gráðu í stjórnmálafræði var ég stödd á tíma-mótum. Mig hafði alltaf langað í verk eftir Karólínu Lárusdóttur og trítl-
aði bara inn í næsta gallerí og keypti þetta verk á vaxtalausu listaverkal-
áni,“ segir Erla en fyrstu árin var verkið hjá móður hennar en hefur nú
fengið samastað fyrir ofan stofusófann. Í sófanum er síðan gamall púði
sem langamma hennar saumaði út.
INNLIT Í FALLEGA ÍBÚÐ VIÐ ELLIÐAVATN
living withstyle
ARRAS
Fráleggsborð, eik.
200x50x80 cm
129.900,-