Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012
Matur og drykkir
Í
ísskápnum voru ótal dollur sem innihéldu allt frá sultu upp í fetaost,
mikið af grænmeti, nýuppteknar kartöflur úr garðinum og þá var þar
fisk og tilbúið lasagna að finna.
Örn: Ég hef dottið í það að eiga ýmsa tilbúna rétti sem geta farið
beint inn í ofninn handa börnunum mínum svo sem lasagna. Þessi börn
borða ekki hvað sem er. En ég á þá bara til eitthvað eins og fisk, sem all-
ir borða. Ég steiki hann til dæmis í raspi eins og ég ætlaði upphaflega að
gera í kvöld – þangað til ég mundi að Nanna væri að koma. Úti í garði á
ég sítrónumelissu og eitthvert kál.
Nanna: Það gæti verið eitthvað. Mín eldamennska er meira og minna
þannig að ég opna ísskápinn og gái hvað ég á.
Örn: Kíktu í minn. Hér er ég til dæmis með fiskinn sem ég tók úr frysti í
gær. Því miður hefur ástandið í ísskápnum þróast þannig að það er hrein-
lega meiriparturinn í dollum. Eins og mangó-chutney, sem mér finnst
ógurlega gott. Svo eru tómatar hér eins og þú sérð.
Nanna: Það á aldrei að geyma tómatana í ísskáp Örn.
Örn: Af hverju ekki? Missa þeir eitthvert bragð eða hvað?
Nanna: Jú, einmitt, þeir missa bragð. Mér líst ágætlega á fiskinn.
Örn: Ég á líka mozarellu og smáskyr. Viltu það ekki? Nei, allt í lagi. En
hér eru líka nýjar kartöflur, sem ég tók upp.
Nanna: Þær eru flottar, ég nota þær.
Hvaða hráefni finnst þér best að vinna með svona án mikillar umhugs-
unar eða undirbúnings, Nanna? Og fyllið þið oft á ísskápinn?
Nanna: Grænmeti líklega og það er gott að vinna með fisk.
Örn: Sem ég á einmitt nóg til af – fisk og grænmeti.
Nanna: Ég held að ég noti ofninn. Áttu eldfast mót fyrir mig?
Örn: Ég þarf að fylla á þessar grunnvörur reglulega. Stundum eru sjö
manns í mat. Stelpurnar og kærastarnir og sonur minn stundum og fjöl-
skyldan hans. Á ég kannski að sækja eitthvað úr garðinum Nanna? Ég á
líka sítrónuolíu sem systir mín gaf mér.
Nanna: Það væri fínt að fá smá graslauk og sítrónumelissu. Áttu eitt-
hvert salat segirðu? Annars fer ég á hverjum degi í búðina. Ég er fót-
gangandi og kaupi því það sem ég þarf hverju sinni.
Örn skreppur út í garð með skærin. Nokkur snjókorn féllu á Örn og
ljósmyndara meðan klippt var af jurtunum. Enda er þetta sama dag og fé
fennti í þúsundatali fyrir norðan. Talið berst að múffum og Dýrunum í
Hálsaskógi en Nanna var að gefa út múffubók og Örn leikur í verkinu.
Af því sem fannst í ísskáp Arnar notaði Nanna fisk, kartöflur, tómata, papriku,
ferskju og mangó-chutney. Auk þess sítrónuolíu, salt, pipar og krydd úr garðinum.
ELDAÐ ÚR ÍSSKÁP ANNARRA
Dollur, fiskur
og grænmeti
Örn Árnason skrapp út í garð eftir kryddjurtum.
NANNA RÖGNVALDARDÓTTIR MATREIÐSLUBÓKAHÖF-
UNDUR MEÐ MEIRU LEIT Í HEIMSÓKN TIL ARNAR ÁRNA-
SONAR EN NANNA FÉKK ÞAÐ VERKEFNI AÐ ELDA EITT-
HVAÐ ÚR ÞVÍ SEM FYRIRFYNDIST Í ÍSSKÁP LEIKARANS.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Rétturinn úr ís-
skápnum kom-
inn á diskinn.
½ paprika, skorin smátt
2 tómatar, smátt skornir
3 gulrætur, smátt skornar
300 g ýsuflök
1 nektarína, skorin í bita
6 nýuppteknar kartöflur,
skornar smátt
1⁄3 bolli graslaukur, smátt
skorinn
sítrónuolía
nokkrir dropar chiliolía
1 msk. mangó-chutney
Aðferð Kartöflum, gulrót-
um og tómötum er stráð í
botninn á smurðu eldföstu
móti og inn í ofn í 10 mín-
útur. Í skál er blandað sam-
an sítrónuolíu og nokkrum
dropum af chiliolíu. Mat-
skeið af mangó-chutney,
smávegis af salti og pipar
er þá hrært saman við og
örlitlu af graslauk. Blandan
er sett öðrum megin á
fiskflökin og hinum megin
eru flökin krydduð með
salti og pipar. Flökin eru
misþykk og eru því brotin
saman og sett ofan á kart-
öflu- og grænmetisblönd-
una. Þar ofan á er nekta-
rínubitunum og paprikunni
stráð. Rétturinn er þá
hafður í ofninum í 10 mín-
útur til viðbótar.
Fiskur á staðn-
um fyrir tvo