Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Qupperneq 29
23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Matur og drykkir
Örn: Ég hef gert litlar og harðar hálfgerðar haframúffur, mjög góðar. Ég
ræð ekki við stórar múffur. Ég hef lent í því að panta mér múffu á veit-
ingahúsi, að ég taldi fyrir einn, en hún var þá í rauninni fyrir sex.
Nanna: Já nei, nei, þessar eru bara fyrir einn. Annars baka ég ekki
samskonar múffur tvisvar í röð því ég nota aldrei uppskrift. Þótt ég hafi
auðvitað gert það þegar ég var að gera bókina. En múffubakstur er svo
afskaplega einfaldur því þetta eru bara ákveðin hlutföll af hráefni. Hægt
að gera hvað sem er í raun.
Örn: Já, svo lengi sem grunnurinn er fyrir hendi?
Nanna: Jú, einmitt. Svo baka ég líka mikið af ósætum múffum, til að hafa
með súpum eða salati. Það er reyndar svolítið merkilegt að þótt ég hafi
ekki séð neina af þessum uppfærslum sem Örn hefur leikið voru Dýrin í
Hálsaskógi eina stykkið sem ég sá sem krakki – sveitastelpan. Einhvern
tímann upp úr 1960. Það var brúðuleikhússýning sem var komið með í
Blönduhlíðina. En þú ert búinn að leika hreinlega öll dýrin veit ég.
Örn: Mikið rétt. Ég er búinn að leika Bangsapabba, Lilla klifurmús og nú
er ég að leika Hérastubb bakara. Ég lána þér flotta hnífinn minn í þetta.
Þennan sem ég þarf að fela, annars er hann eyðilagður þegar aðrir setja
hann í uppþvottavél. Einhver sagði mér að bitið færi þannig bara eins og
hendi væri veifað, er það ekki rétt hjá mér Nanna?
Nanna: Jú, það gerir það. Heitt vatn er alveg nóg og smásápa. Nú set ég
nektarínur ofan á fiskinn sem ég fann hérna í skál.
Örn: Já, dóttir mín á þessa ávexti, þú mátt alveg fá þá lánaða. Ég fíla
þetta sem þú ert að gera við fiskinn Nanna. Hefði ekki dottið í hug að
blanda saman olíu og mangó-chutney.
Þá er sest að snæðingi.
Örn: Þá látum við vaða.
Nanna: Kartöflurnar hefðu mátt fá eilítið meiri tíma en það er samt mis-
munandi áferð í þessu sem getur verið ágætt.
Örn: Ég finn alveg mangóið, það kemur vel í gegn, sterkt og gott.
Nanna: Já, en ég setti líka nokkra dropa af chiliolíunni þinni út í. Hvern-
ig finnst þér koma út að hafa ferskjuna með?
Örn: Jú, mjög góð hugmynd.
Nanna: Ég hef einhvern tímann ætlað að markaðssetja írska kartöflukúr-
inn. Írar suðu kartöflurnar gjarnan bara til hálfs, nöguðu utan af það sem
var meyrt og gleyptu svo boltann sem eftir var því þannig entist hann svo
lengi í maganum.
Örn: Þetta er alveg sérdeilis góður matur, Nanna. Gaman að fá þig í
heimsókn.
Nanna: Já, takk sömuleiðis. Gaman að fá að skoða ísskápinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Örn Árnason og Nanna
Rögnvaldardóttir voru
sátt með afraksturinn.
* „Það á aldreiað geyma tóm-atana í ísskáp Örn.“