Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Síða 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Síða 47
irnir mínir eru samt þannig að ég reyni að hafa þá ekki á kostnað annarra, hvorki háð né spott, heldur get ég tekið upp á því að skipuleggja hrekki sem fela í sér eitthvað flóknara. Svona í þeim dúr sem afi minn gerði, hann átti það til að hnýta saman skóreimar allra skópara sem voru í forstof- unni þegar mannmargt var í húsi. En mér finnst vond tilfinning að vera vondur við fólk og brjóta það niður. Áður fyrr var ég líka meira í því að brjóta sjálfan mig nið- ur.“ Fór í mig að vera þekktur Gussi var feiminn og var hálfpartinn að flýja stríðni þegar hann var 19 ára og flutti á Vestfirði. „Ég var í Flensborg en skulda þar ennþá fjórar einingar fyrir lélega mæt- ingu. Hafði aðeins of gaman af félagslífinu. Ég hef meira og minna verið með aðra löppina úti á sjó. Var síðast í vor á frakt- ara við Eystrasalt. En stríðnin var tilkomin af því að á þessum tíma hafði ég verið áberandi, býst ég við. Hafði verið að leika. En þetta var sjálfskipuð útlegð og ég flutti út á land í 10 ár. Það fór í mig að vera þekktur. Ég vildi á þeim tíma vera í leik- listinni en fannst erfitt að taka því sem fylgdi – að vera þekktur. Í Hafnarfirði vissu allir hver ég var og þar sem ég hafði leikið í kvikmynd, hjá Hrafni Gunnlaugs- syni, var athyglin meiri en ég vildi. Mig langaði bara að fá útrás fyrir sköpun og þetta var allt öðruvísi – meiri stríðni. Stef- án Karl elst upp í Hafnarfirði á svipuðum tíma og lenti líka í svipuðum aðstæðum.“ Gussi bjó í Súðavík, vann í frystihúsinu og síðustu tvö árin úti á sjó. Súðavík varð fyrir valinu fyrir hálfgerða tilviljun. Ver- búðarlífið var skemmtilegt fyrst og það fylgdi því ákveðið lífsmynstur – þar sem fólk fékk sér ágætlega í glas frá fimmtu- Gussi sá sér leik á borði að láta gaml- an draum rætast þegar Morgun- blaðið hafði samband við hann. „Ég ákvað fyrir tveimur árum að endur- gera forsíðumyndatökuna sem Ásdís Rán var í fyrir Playboy. Mér þykir gaman að pota og stríða svolítið.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðtal 23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47 Degi Kára Péturssyni kynntist Gussi þegar hann bak- aði fyrir hann pönnukökur í stuttmynd sem Dagur Kári gerði en það er í eina skiptið sem þeir hafa unnið saman. „Hann hringir í mig í vor þar sem ég er stadd- ur í Rússlandi og vill senda mér handrit og biður mig um að lesa það því það sé skrifað með mig í huga. Ég les það og verð hrifinn. Þetta er bæði falleg og dálítið fyndin saga. Karakterinn er svolítið líkur mér fyrir utan það að hann býr einn með móður sinni. Þetta er dá- lítið dramatískt þótt undirtónninn sé grátbroslegur. Mér finnst kannski svolítið erfitt að svara því hvort mér hafi fundist gaman að hann skrifaði þetta sér- staklega fyrir mig. Er ekkert mikið fyrir að hrósa sjálf- um mér en draumur minn er samt leiklist þótt ég hafi ekki getað látið hann rætast almennilega og því er ég mjög hamingjusamur með þetta. Ég hef aldrei verið góður í að koma sjálfum mér á framfæri.“Dagur Kári Pétursson KYNNTUST VIÐ PÖNNUKÖKUBAKSTUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.