Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Side 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Side 49
Viðtal 23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 unnið fyrir sér sem leikari og þarna rættist það. Hann fór í prufur og var valinn í hlut- verkið. Nú er hann álíka glaður með það hvað er að gerast í lífi sínu, en hann nefnir aftur að tilviljanir séu ekki til staðar í líf- inu að hans mati. Það séu stundir og staðir sem ætlað sé mismunandi verkefnum. Fyrirætluð mynd Dags Kára er til dæmis eitt af þeim. Tökur í myndinni verða vetrartökur að miklu leyti og aðallega inn- an borgarmarka. „Ég hef verið með hug- ann við karakterinn og er svona að skoða hann. Já, þetta er góðmenni, það má alveg segja það. Ekkert illt í honum. Ég hef fengið tilfinningu fyrir karakternum með því að lesa handritið nokkrum sinnum yfir. Ég hef leyft honum að vera með mér þeg- ar ég hef tíma en hann er jafnvel líka far- inn að þvælast fyrir mér þegar ég hef ekki tíma.“ Var líklega illmenni í fyrra lífi Gussi er sem fyrr segir að huga að eigin skriftum og ætlar að gera úr því alvöru að klára handrit sem hann hefur gengið lengi með í maganum. „Sú hugmynd kom í ró- legheitunum, á síðustu þremur árum, ég hef ekki verið að reyna að þvinga hana fram. Þetta er eiginlega mynd um tilfinn- ingar. Þegar maður er alinn upp í umhverfi þar sem var ekkert annað en vinna og spurning um að komast af þá er það auð- vitað stórt skref að taka þá ákvörðun að að setjast og leyfa sér að láta draum sem þennan rætast. En ég held ég hvetji alla til að gera það. Hugsa reglulega um það hvaða drauma fólk byrgir innra með sér og leyfa þeim að brjótast út. Fólk veit það sjálft hvað það vill og á ekki að láta aðra segja sér hvernig það á að haga lífi sínu.“ Hefur þú alltaf verið svona kjarkaður? „Ef fólk veltir hlutunum of lengi fyrir sér er það líklegra til að hætta við. Það hefur ekki verið minn stíll að segja nei við hlut- verkum né svíkja eitthvað sem ég er búinn að lofa mér í. Grípa augnablikið en auðvit- að hef ég líka stundum beðið of lengi. Fengið hugmyndir og hugsað – það væri gaman að gera þetta ef ég hef tíma.“ Um tíma var spurning hvort Gussi færi út í kraftlyftingar en hann segist líklega hafa vantað ákveðinn rembing. Vantað að vilja vita meira en aðrir eða vera sterkari en þeir. Líka skort karlrembu. Hann er vanur þeirri tilfinningu að enginn þori í hann án þess að hann velti því sérstaklega fyrir sér. Það er fremur að Gussi hafi áhuga á andlegum málefnum og við- urkennir að hann sé líklega ofurlítið næm- ur. Hann trúir líka á fyrri líf. „Ég hálf- partinn trúi því að erfiðustu lífin mín séu að baki. Mig dreymir alltaf sama drauminn. Ég er staddur á torgi að mér finnst á suð- rænum slóðum. Jafnvel á Spáni eða á Ítal- íu. Ég held á byssu og reyki og það eru látið fólk, skotið fyrir framan mig. Tilfinn- ingin er því miður að mér er alveg sama og það er hræðilegt. Mér var sagt af vin- konu minni sem er spámiðill að ég hafi verið illmenni í fyrri lífum. Í þessu lífi langar mig að gleðja og fá fólk til að hlæja. Við þurfum sérstaklega á því að halda núna.“ Gussi útilokar ekki að stofna fjölskyldu, en segist ekki hafa haft þörf fyrir það hingað til. Hans hlut- verk sé annað í lífinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg * En mér finnstvond tilfinning aðvera vondur við fólk og brjóta það niður. Áður fyrr var ég líka meira í því að brjóta sjálfan mig niður. MHW KELVINATOR Herrastærðir: svartar og bláar. Dömustærðir: svartar og rauðar. 54.990 KR. FULLT VERÐ 69.990 KR. – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is Ellingsen býður upp á mikið úrval af vönduðum úlpum og öðrum hlífðar- fatnaði frá þekktum framleiðendum á borð við Didriksons, Mountain Hardwear og Columbia. Í Ellingsen færðu hlífðarfatnað frá toppi til táar. DIDRIKSONS JARVIS Stærðir 80–130. Bláar, grænar, bleikar og fjólubláar. 11.990 KR. FULLT VERÐ 14.990 KR. DIDRIKSONS MICHI Stærðir: 130–170. Rauðar og svartar. 14.990 KR. FULLT VERÐ 17.990 KR. Mikið úr val af húfum og vettling um

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.