Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Side 54
Menning
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012
E r þetta rými innan í rýminu eðarými utan um rýmið? Eða er allsekkert rými, bara óheft flæði?Hvar byrjar annars rými og hvar
sleppir því? Ekki er laust við að maður rugl-
ist lítið eitt í ríminu, nú eða rýminu, þegar
komið er inn á sýningu Söru Björnsdóttur í
aðalsal Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúss.
HA er yfirskriftin og hermt er að einhverjir
gestir við opnunina fyrir viku hafi haft ein-
mitt það á orði, ha!
Lítið er á listakonunni sjálfri að græða,
hún vill sem allra minnst um verkið tala.
Fyrir því færir hún þó haldbær rök. „Það er
ómögulegt að tala um þetta verk, þetta er
upplifunarverk sem talar fyrir sig sjálft. Það
er ekki hlutverk mitt sem listamanns að leiða
fólk í túlkun á verkinu, þetta er persónu-
bundin upplifun. Þú upplifir verkið án efa
með öðrum hætti en ég,“ segir Sara Björns-
dóttir, þar sem við höfum komið okkur mak-
indalega fyrir í bókasafni Hafnarhússins.
Mikið til í því.
„Sjáðu til,“ heldur hún áfram. „Það er gerð
sú krafa á myndlistarmenn að þeir útskýri
verkin sín út í hörgul og ég er ekki sammála
því að það sé alltaf rétt. Myndlist er andleg
og persónuleg. Meðan ég var í framhalds-
námi í London upplifði ég verk á sýningu
mjög sterkt. Nokkrum dögum síðar kom
listakonan í skólann og útskýrði hugmyndina
sem lá að baki verkinu í smæstu atriðum.
Það eyðilagði upplifun mína á því, ég man
ekki einu sinni lengur hvaða verk þetta var.
Það getur gelt listaverk að útskýra það of
mikið.“
HA er sjötta verkið af þessari tegund sem
Sara vinnur heima og erlendis, þar sem hún
sleppir hendinni af listhlutnum sem slíkum
en vinnur þess í stað með rýmið sjálft.
Sjálf kveðst Sara hafa á tímabili farið að
hugsa mikið um listhlutinn, hvers vegna að
búa til hlut, efaðist um tilgang þess og undir-
strikaði það raunar með þremur sýningum
með stuttu millibili, þar sem hún sýndi sömu
hlutina, breytti bara litnum og heitinu. „Á
þeim tíma fannst mér heimurinn yfirfullur af
listhlutum og að ég hefði engu við það að
bæta. Þá fór ég að huga að rýminu sjálfu og
hinni staðbundnu list.“
Fær fljótt leiða á hlutum
Hún segir að lítið hafi verið rætt um stað-
bundna list (e. site-specific) hér heima þegar
hún var í námi. Hugtakið heyrði hún fyrst
meðan hún var í framhaldsnámi í London.
„Þetta er mjög ögrandi og spennandi listform
sem reynir til hins ýtrasta á ímyndunaraflið
og hvernig þú horfir. Verk af þessu tagi er á
og um ákveðinn stað og getur fyrir vikið ekki
farið neitt annað nema að falla úr samhengi
við sig sjálft. Í því er vitaskuld fólgin viss
takmörkun en á móti kemur að ég fæ ekki
leiða á að vinna á þennan hátt, það er enda-
laus uppspretta. Það á vel við mig, ég fæ
fljótt leiða á því sem ég geri.“
Þegar Söru bauðst að sýna í Hafnarhúsinu
ákvað hún strax að gera staðbundið verk.
Ekki spillti heldur fyrir að aðalsalur hússins
er „mjög dóminerandi“, eins og listakonan
kemst að orði. „Þessi salur er vel til þess fall-
inn að vinna svona verk inní, því hann hefur
svo sterkan persónuleika. Mig langaði til að
sprengja rýmið upp og eyða út veggjum. Það
er ekkert auðvelt að sýna í honum en á hinn
bóginn freistandi að búa til úr honum list.“
Til að ná fram tilætluðum áhrifum notar
Sara videó/myndbönd sem varpað er á veggi
fyrir atbeina tíu skjávarpa. Hún kveðst nota
vídeó/myndband af nokkrum ástæðum: „Í
fyrsta lagi vegna þess að rýmið er lifandi og
því vil ég ná, t.d. eins og rykkorn sem fellur í
sólargeisla. Þetta virðist í fyrstu eins og ljós-
myndir en mjög fljótlega áttar áhorfandinn
sig á að þetta eru lifandi myndir sem kemur
mörgum á óvart,“ segir Sara en verkið stýrir
sér sjálft í þeim skilningi að myndunum er
varpað á veggina af handahófi.
Sara er afar ánægð með viðtökurnar sem
HA hefur fengið fyrstu daga sýningarinnar,
þær séu vonum framar. „Ég hef lagt mikla
vinnu í þetta verk, það hefur verið hálft ann-
að ár í undirbúningi og þess vegna er mjög
ánægjulegt að fá svona jákvæða svörun. Þeg-
ar ég sýndi verkið „Rugl í rými“ í Listasafni
Íslands fyrir níu árum sem var fyrsta stað-
bundna vídeóið/myndbandið á fleiri en einum
skjávarpa kom fólk og fór án þess að segja
neitt. Svona er þetta misjafnt, ég var mjög
ánægð með það verk og hefði verið til í að
ræða það við fólk. Það stóð undir nafni á
margan hátt.“
Sara hefur sýnt víða erlendis og segir út-
lendinga oft mun opnari og viljugri að ræða
um myndlist en Íslendinga. „Íslendingar eru
mun feimnari að ræða við listamenn, hvað þá
að gagnrýna þá. Við viljum hvorki stuða né
særa. Við gætum verið betri í að rýna í og
gagnrýna en ég býst við að almennt kunnum
við ekki að rökræða, höfum ekki lært það,
hér heita rökræður rifrildi og gagnrýni skít-
kast. það er frábært að einhver skuli þora að
gagnrýna listir í fjölmiðlum og koma sér
þannig jafnvel út úr húsi vegna þess hversu
hörundsárir listamenn geta verið. Þá und-
anskil ég alls ekki sjálfa mig.“
HA stendur til 6. janúar næstkomandi og
Sara fagnar lengd sýningartímans sér-
staklega enda mun algengara að myndlist-
arsýningum hér á landi ljúki á þremur vikum
en þremur mánuðum. „Ég er Listasafni
Reykjavíkur mjög þakklát fyrir að afhenda
mér þennan sal, gefa mér algjörlega frjálsar
hendur og þann tækjabúnað sem ég þurfti
sem gaf mér tækifæri til að ögra sjálfri mér
og þenja getu mína. Safnstjórinn tók vissa
áhættu því ég hef ekki unnið verk á svo
stórum skala áður. Ég er líka mjög ánægð
með hið frábæra samstarfi sem ég átti við
sýningarstjórann, Hönnu Styrmisdóttur sem
sá til þess að ég þyrfti ekki að pæla í neinu
öðru en verkinu sjálfu.“
Sara ætlar að halda ótrauð áfram á sömu
braut, skapa staðbundin listaverk þegar tæki-
færi gefst og blekkja sjón okkar áhorfenda,
auk þess sem hún hyggst halda áfram að
sinna textaverkum af fullum þunga. „Í langan
tíma hef ég upplifað allt mitt líf gegnum
listina. Mitt hlutskipti er að skapa list hún
heldur mér vakandi – ég kann ekkert annað.“
Sara Björnsdóttir inni í verki sínu í Hafnarhúsinu. „Það er ómögulegt að tala um þetta verk, þetta er upplifunarverk sem talar fyrir sig sjálft.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
HA, hvað ertu að fara?
SJÓNBLEKKING OG RUGL MEÐ RÝMI
ERU SNAR ÞÁTTUR Í SÝNINGU
SÖRU BJÖRNSDÓTTUR. EN HVAÐ
ER LISTAKONAN AÐ FARA MEÐ
VERKI SÍNU, HA, Í HAFNARHÚSINU?
ÞVÍ VERÐUR HVER OG EINN SÝN-
INGARGESTUR AÐ SVARA.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
SARA BJÖRNSDÓTTIR SÝNIR Í HAFNARHÚSINU
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Rautt eftir John Logan
frumsýnt í Borgarleik-
húsinu. Hægt að kaupa
miða á www.midi.is.
MUSÉE ISLANDIQUE
Sýning Ólafar Nordal í
Listasafni Íslands. Opið
11-17 nema mánudaga.
Teiknismiðja fyrir börn
3-14 ára í Aðalsafni
Borgarbókasafns sunnu-
dag 23. sept. Opið 13-17.
Sýningin Lífið í Vatns-
mýrinni í Norræna húsinu
um fuglana, gróðurinn og
mannlífið. Opið 12-17.
Söngkonur stríðsáranna
með Kristjönu Skúla-
dóttur leikkonu í Iðnó á
sunnudaginn kl.20. 1 2 3 4 5
Bergþóra Marín 9 ára.