Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Side 18
Danida’s Discovery Circles
Nýlega var opnuð fimmtíu ára af-
mælissýning Danida, dönsku þró-
unarmiðstöðvarinnar. Sýningin
tekur gesti í hugarferðalag til fimm
þróunarlanda. Kitlar ekki aðeins
sjónskyn heldur einnig nef og
eyru.
Verð: 1.200 kr.
Torvaldsen-museum
Tímavél 150 ár aftur í tímann
en safnið hefur staðið eins
frá opnun þess árið 1848.
Þar er boðið upp á teikni-
kennslu fyrir alla fjölskyld-
una eða lengra komna
listamenn.
Verð: Fullorðnir: 900 kr.
Frítt fyrir börn undir 18 ára
og fyrir alla gesti á mið-
vikudögum.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2012
Ferðalög og flakk
Tenerife
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
53
0
43
Sumarið 2013
FERÐAÞYRSTIR ÍSLENDINGAR FJÖLMENNA TIL KAUPMANNAHAFNAR ÁRIÐ UM
KRING ENDA ERU FARNAR NOKKRAR FERÐIR DAGLEGA FRÁ KEFLAVÍK.
Ingibjörg Friðriksdóttir if@mbl.is
Fjársjóðsleit
í Köben
S
á Íslendingur sem ekki hefur heyrt minnst á Strikið, Tívolí eða Litlu hafmeyjuna er vandfund-
inn. Frændur okkar Danir taka jafnan glaðlega á móti okkur, enda ekki við öðru að búast
þar sem þeir eru hamingjusamasta þjóð heims samkvæmt mælingum OECD fyrr á þessu ári.
Smituð af hamingjuveirunni og með kreditkortið að vopni er auðvelt að falla í
hina hefðbundnu ferðamannagryfju. Það getur reynst tímafrekt að leita að
óhefðbundnum stöðum til þess að heimsækja og því ákvað
Sunnudagsblað Morgunblaðsins að vinna smá heimavinnu
fyrir ferðalanga. Við grófum upp nokkra gullmola og
fengum Kaupmannahafnarháskólanemann Jóhannes
Pál Sigurðsson til þess að leiða okkur í gegnum hvað
hann býður sínum gestum upp á í borginni.
Ekki var hægt að synda í höfninni við Ís-
landsbryggju fyrr en árið 2002 vegna meng-
unar í sjónum. Síðustu ár hafa Danir eytt mikl-
um fjármunum til þess að hreinsa svæðið sem
er í dag einn vinsælasti sjósundsstaður Kaup-
mannahafnar.
Margrét Danadrottning lumar á „Íslend-
ingabók“ en hún getur rakið ættir sínar
1.000 ár aftur í tímann, allt til víkinganna.
Neðjarðarlestarkerfi Kaupmannahafn-
ar fékk viðurkenningu fyrir að vera best
sinnar tegundar í heiminum árið 2010.
Strikið er lengsta verslunargata Evr-
ópu.
Fáir hjólastígar í veröldinni eru fjöl-
farnari en stígar Kaupmannahafnar en
þar hjóla rúmlega 36.000 borgarbúar
daglega.
Tæplega 10% af dönsku þjóðinni
eru af erlendum uppruna.
Margrét Dana-
drottning getur
rakið ættir sínar
1.000 ár aftur í
tímann.
AFP
Skemmtilegar
staðreyndir um
Kaupmannahöfn
Fyrir
listunnandann Vikingship
museum
Hálftíma fyrir utan Kaup-
mannahöfn, í Hróars-
keldufirðinum, er Vík-
ingaskipasafnið. Sálir
forfeðranna svífa yfir firð-
inum en gestum býðst að
klæðast víkingaklæðum
og skoða fimm glæsileg
víkingaskip, jafnvel fara í
siglingu. Verð: Fullorðnir: 1.500 kr. Börn, undir 18 ára: frítt
Experimentarium
Tækni- og vísindasafn fyrir handóða en safnið hvetur sýningargesti til
þess að fikta í safnmunum. Verð: Fullorðnir: 3.500 kr. Börn, 3-11
ára: 2.300 kr.
Tycho Brahe Planetarium
Geimrannsóknarstöð, stjörnusjónauki og stærsta þrívíddarbíó heims!
Verð: Fullorðnir: 3.000 kr. Börn, 0-13 ára: 1.900 kr.
Copenhagen Zoo dýragarður
Enginn venjulegur dýragarður enda hefur hann fengið viðurkenningu
sem besti dýragarður heims. Þar má sjá yfir 3.000 dýr en nýlega bættust
fílar í hópinn. Verð: Fullorðnir: 2.400 kr. Börn, 3-11 ára: 1.100 kr.
Morgunblaðið/Ómar
Víkingaskipasafnið
sýnir fimm víking-
arskip frá 10.öld. .
Fyrir krílið